Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 15

Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 15
DAGLEGT LÍF 15 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Handsmíðaðar Perlurnar eru að öllu leyti handsmíðaðar úr mismunandi glerstöngum og efnum sem Nadine vinnur með á ótal vegu í 800°C heitum loga. unaráráttu. „Það er mikil ná- kvæmnisvinna og krefst gríðarlegar æfingar og þolinmæði að móta gler- ið í kúlu, eða annað form ef því er að skipta, í 800°C heitum loga og enn meiri að gera mynstur í perluna í loganum.“ Eftir tvö ár lét Nadine loks tilleiðast – og þá fyrir áeggjan og með aðstoð eiginmannsins – að koma glerlistmunum sínum fyrir sjónir almennings á sýn- ingunni Handverk og hönnun, þar sem hún hefur síð- an sýnt á hverju ári, og víðar. Tennur og gler Nadine sem hafði starfað sem tannsmiður í Frakklandi og einnig hér á landi lagði tannsmíðarnar á hilluna og einbeitti sér að glerlistinni. Spurð hvort eitthvað sé líkt með þessu tvennu, tannsmíðum og gler- smíðum, segir hún hvort tveggja snúast um að vinna við opinn eld og með form og liti. Tannsmíða- námið, sem foreldrum hennar þótti á sínum tíma heillavænlegra fyrir dóttur sína en listnám, hefur því komið Nadine til góða með öðruvísi og óvæntari hætti en ætla mátti í upphafi. Sá er þó munurinn að tann- smíðarnar bjóða augljóslega ekki upp á að nota viðlíka hugmyndaflug og glerlistin. „Innblásturinn kemur um leið og ég byrja að vinna og úti- loka allt annað í umhverfinu. Þá fer ég að leika mér með liti, form og mynstur og nýjar aðferðir og eitt leiðir af öðru. Mér finnst skemmti- legast að gera afar smágerð og oft erfið samhverf mynstur,“ segir Nadine og upplýsir að þegar mynstrin séu hvað fínlegust geti tekið allt að þrjár klukkustundir að búa til eina perlu. Hjónin í bláa húsinu eru hvort með sitt borð í sameigin- legri vinnustofu á fremur litlu plássi. Hann situr við tölvu, hún við gaslogann. Hennar umráða- svæði er óneitanlega öllu líflegra, hráefnið enda litríkt; fjöldi gler- stanga, sem minna á handprjóna, í öllum mögulegum litum. Og birtan frá logsuðutækinu skemmir ekki fyrir. Perla verður til „Margir átta sig ekki á að perl- urnar eru að öllu leyti handsmíð- aðar í gasloga,“ segir Nadine og lýs- ir ferlinu í stuttu máli: „Glerstöngin er hituð í 800°C heitum loga þar til hún er orðin seigfljótandi, en þá er henni vafið upp á stálstöng og mynduð kúla eða annað form. Mynstrið er svo gert í glóandi heita perluna og henni snúið á meðan til að halda henni jafnheitri allan hringinn. Loks er henni skellt í 495°C heitan ofn þar sem hún er kæld niður í þrepum á fjórum klukkustundum og þannig hert um leið. Að því búnu er perlan tekin úr ofninum og af járnstönginni. Eftir það get ég hafist handa við að gera úr henni hálsmen eða annað sem mér dettur í hug.“ Nadine flytur sjálf inn gler- stangirnar sem framleiddar eru á Ítalíu og í Þýskalandi. Stundum þarf hún líka að sérpanta verkfæri og hráefni af öðrum toga, til dæmis næfurþunn gull- eða silfurblöð til að skapa „görótt mynstur“ eins og seg- ir á fyrrnefndri vefsíðu. Ekkert ger- ist af sjálfu sér og ljóst að glersmíð- arnar kalla á ýmiss konar umsýslu og útsjónarsemi, viðskiptavit jafn- vel. Og nú er Nadine komin í hóp tíu listamanna, hönnuða og hand- verksfólks sem selja hönnun sína í listagalleríinu Skúmaskoti við Skólavörðustíg. Glermunir Nadine bjóðast þó áfram til kaups á netinu og vinnustofu í bláasta húsinu í Kópavogi. Nadine býr ekki aðeins til skart- gripi úr glerperlum, heldur einn- ig ýmsa nytjamuni úr gleri. Til dæmis mynstruð sköft á bús- áhöld; hnífa, skeiðar og gaffla í ýmsum stærðum og gerðum. Hún hefur hannað og smíðað búsáhaldastand og í samvinnu við Ernu Jónsdóttur, leir- litakonu, ostabakka. Á vefsíðu Nadine er einn grip- ur sem ekki er eftir hana – bókamerki úr stáli sem eig- inmaðurinn, Ingimundur Þór, hannaði. Á umbúðunum stendur eftirfarandi: „Þetta bókamerki ber nafnið „Húslestur“. Það er sýn okkar að húslestur nú- tímans megi leiða okkur til betri vegar á hverjum degi. Valið lestrarefni og gagnrýnin hugs- un gefur af sér þekkingu sem ber ávöxt. Njótið vel!“ Búsáhöld og Húslestur NYTJAMUNIR Húslestur Bókamerki úr stáli. Stúdíó Gerðar verður opnað í dag í Gerðarsafni en það er nýtt fræðslu- rými og tilraunastofa þar sem hægt er að gera eigin listaverk innblásin af sýningum safnsins og listaverk- um Gerðar Helgadóttur. Haldið verður upp á opnunina í dag á milli kl. 13 og 15 þar sem fjöl- skyldur geta tekið þátt í listasmiðj- um en þær verða ókeypis fyrir alla. Hildur Steinþórsdóttir arkitekt og Rúna Thors vöruhönnuður verða með fjölskyldusmiðju kl. 13 þar sem reynt verður að byggja heim úr óvæntum efnum. Kynntir verða einn- ig teiknileikir undir heitinu Kvik strik eftir Eddu Mac myndlist- armann. Þá mun Linda Björklund myndlistarmaður leiða teiknismiðju kl. 14 í anda Kvik strik, þar sem gerðar verða skemmtilegar teiknit- ilraunir í Gerðarsafni og Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Í sölum Gerðarsafns verður einnig sýningin Þá opin bæði gestum og gangandi. Garðskálinn verður einnig opinn á neðri hæð safnsins en þar fást hádegisverður og kaffiveitingar. Stúdíó Gerðar hefur einnig fengið nýtt útlit með sérhönnuðum hús- gögnum eftir Hildi Steinþórsdóttur og Rúnu Thors. Listasmiðjurnar í Stúdíói Gerðar eru hluti af fjölskyldustundum í Menningarhúsum Kópavogs, sem haldnar verða á laugardögum í allan vetur. Gerðarsafn, Bókasafn Kópa- vogs, Héraðsskjalasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofa Kópavogs og Sal- urinn ljúka upp dyrum sínum og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem er gestum að kostnaðarlausu. Fræðslurými og tilraunastofa í Gerðarsafni Nýtt Stúdíó Gerðar hefur nú fengið nýtt útlit með sérhönnuðum húsgögnum. Fjölskyldustund í Stúdíói Gerðar Við trúum því að fegurðin sé lifandi, sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi. Alveg eins og náttúran sjálf. Til að viðhalda æskuljóma húðar þinnar höfum við tínt saman immortelle, blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar. Divine Cream fegrar svipbrigði þín og hjálpar við að lagfæra helstu ummerki öldrunar. Húðin virðist sléttari, *Ánægja prófuð hjá 95 konum í 6 mánuði. Húðin virðist unglegri Mimi Thorisson er franskur matarbloggari. Divine Cream með Immortelle blómum HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ FYRIR LIFANDI FEGURÐ Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.