Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
FRÉTTASKÝRING
Jón Þórisson
Stefán Einar Stefánsson
„Þó að ekki sé skylt að notast við lög
um opinber innkaup við sölu ríkis-
eigna, þá eru þau sá vettvangur sem
notast hefur verið við þar sem finna
má þá formfestu og það stranga
verklag sem tryggir gagnsæi og
jafnræði milli bjóðenda.“ Þetta segir
Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Rík-
iskaupa, spurður út í hvaða viðmið
hið opinbera hafi til að tryggja að
rétt sé staðið að sölu ríkiseigna.
Lögmenn sem Morgunblaðið hef-
ur rætt við í kjölfar umfjöllunar
blaðsins um framkvæmd sölu hlutar
ríkisins í Klakka benda einnig á að
sérstök og brýn rök þurfi að liggja til
grundvallar ef þær meginreglur sem
gilda um innkaup hins opinbera eigi
ekki að gilda um sölu ríkiseigna.
Bjóðendur í hlut ríkisins í félagið
Klakka, sem á fjármálafyrirtækið
Lýsingu, hafa gagnrýnt harkalega
hvernig staðið var að söluferlinu.
Þannig var Steinari Þór Guðgeirs-
syni, lögmanni og stjórnarmanni í
Klakka, falið að taka við tilboðum í
eignarhlut ríkisins í gegnum tölvu-
póst. Var það gert á tölvupóstfang
sem vistað er á lögmannsstofu Stein-
ars Þórs, sem nefnist Íslög. Þar mun
ekki hafa verið tryggt að seljandi
hlutarins hefði ekki aðgang að inni-
haldi framlagðra tilboða fyrr en til-
boðsfrestur var liðinn. Líkt og lesa
má í ramma hér til hliðar er gengið
út frá því að slíkt sé tryggt í útboðum
sem ríkið stendur að á vettvangi Rík-
iskaupa.
Skortir á sérstakt hæfi
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær og fyrradag var Stein-
ar Þór Guðgeirsson stjórnarmaður í
Klakka þegar eigandi félagsins,
Lindarhvoll, fól honum að annast
sölu þess.
Í stjórnsýslulögum eru ákvæði um
sérstakt hæfi. Segir þar að starfs-
maður eða nefndarmaður sé vanhæf-
ur til meðferðar máls ef hann er aðili
þess, fyrirsvarsmaður eða umboðs-
maður aðila. Þá segir einnig að mað-
ur teljist vanhæfur séu fyrir hendi
þær aðstæður sem fallnar eru til að
draga óhlutlægni hans í efa með
réttu.
Umboðsmaður á sama máli
Álit umboðsmanns Alþingis í fjöl-
mörgum málum hníga í sömu átt. Í
skýrslu umboðsmanns fyrir árið
2015 segir: „Það er þó eitt málefni
sem óhjákvæmilega fylgir opinberri
starfsemi, hvort sem það er hjá ríki
eða sveitarfélögum, þar sem ég finn
fyrir því að það gætir oft tregðu til
þess að fylgja stjórnsýslureglum við
meðferð valds og ákvarðanatöku.
Það er við ráðstöfun opinberra
eigna. Þetta gerist þrátt fyrir að
Hæstiréttur Íslands hafi í dómi frá
23. mars 2000 í máli nr. 407/1999
sagt: „Þegar stjórnvald ráðstafar
eigum ríkisins gilda um þá ákvörðun
reglur stjórnsýsluréttar. Um kaup-
samninginn annars gilda almennar
reglur um fasteignakaup eftir því
sem við getur átt.““
Eins og blaðið hefur áður greint
frá veitti Alþingi fjármálaráðherra
heimild til stofnunar félags til að
annast umsýslu svonefndra stöðug-
leikaeigna. Það félag hlaut síðar
nafnið Lindarhvoll ehf. Í upphaflegu
frumvarpi til laganna var sérstak-
lega kveðið á um það að stjórnsýslu-
lög giltu ekki um ákvarðanir sem
teknar væru af hálfu félagsins. Við
þinglega meðferð frumvarpsins var
hins vegar fellt út að stjórnsýslulög
tækju ekki til félagsins. Það var gert
með breytingartillögu meirihluta
efnahags- og viðskiptanefndar við
aðra umræðu. Í nefndaráliti meiri-
hlutans var áréttað að ákvæði stjórn-
sýslulaga og upplýsingalaga skyldu
lögð til grundallar starfsemi félags-
ins eftir því sem við ætti og mælt
væri fyrir um í hlutaðeigandi lögum.
Stjórnsýslulög gildi um söluna
Lögmenn sem Morgunblaðið hef-
ur rætt við vegna málsins benda á að
ekki verði með góðu móti annað séð
en að stjórnsýslulögin gildi um
ákvörðun Lindarhvols um sölu á
eignum sem félaginu hefur verið fal-
ið að hafa í umsýslu en almennar
einkaréttarlegar reglur gildi svo um
samningsgerðina sjálfa í tengslum
við sölu á slíkum eignum. Þá segja
þeir að ekki verði heldur annað séð
en að stjórnsýslureglur gildi jafn-
framt um fleiri ákvarðanir Lindar-
hvols fram að samningagerð og að
stjórnvöldum, beint eða óbeint, beri
að fara eftir óskráðum meginreglum
stjórnsýsluréttar og jafnræðisreglu
65. greinar stjórnarskrárinnar við
ákvarðanatökur sínar.
Þá ber þeim lögmönnum sem blað-
ið ræddi við saman um að óumdeilt
sé af þessu að lagaumgjörð Lindar-
hvols sé ófullkomin um hvar reglum
stjórnsýsluréttarins sleppir. Það séu
þó sterk rök fyrir því að í þeim til-
vikum þar sem um vafa er að ræða
leiði slíkur réttmætur vafi til þess að
almennar stjórnsýslureglur gildi um
málsmeðferð og ákvarðanatöku í
starfsemi Lindarhvols. Enda væru
þær reglur til verndar borgunum en
ekki stjórnvöldum.
Gengið á svig við megin-
reglur við sölu ríkiseignar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sala Lögmannsstofan Íslög hefur séð um sölu ríkiseigna að undanförnu.
Forstjóri Ríkiskaupa segir að líta beri til laga um opinber innkaup við sölu ríkiseigna
● Mest hækkun varð á bréfum Ice-
landair Group í Kauphöll í gær eða
3,17%. Viðskipti með bréf félagsins
námu ríflega 850 milljónum króna.
Næstmest varð hækkunin hjá Marel
eða 2,94% í ríflega 530 milljóna við-
skiptum. Úrvalsvísitalan hækkaði um
1,55% en hefur lækkað um 8,62% frá
áramótum.
Icelandair og Marel
hækkuðu mest í gær
12. nóvember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 111.78 112.32 112.05
Sterlingspund 138.43 139.11 138.77
Kanadadalur 83.22 83.7 83.46
Dönsk króna 16.361 16.457 16.409
Norsk króna 13.47 13.55 13.51
Sænsk króna 12.344 12.416 12.38
Svissn. franki 113.09 113.73 113.41
Japanskt jen 1.0494 1.0556 1.0525
SDR 153.25 154.17 153.71
Evra 121.76 122.44 122.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9767
Hrávöruverð
Gull 1255.65 ($/únsa)
Ál 1772.5 ($/tonn) LME
Hráolía 46.36 ($/fatið) Brent
Með tilkomu
nýrra keppi-
nauta og nýrrar
tækni er ein leið
til þess að auka
samkeppnis-
hæfni að setja
upp vefverslun
sem gerir við-
skiptavinum
kleift að kaupa
vörur og þjón-
ustu hvenær
dags sem er. Þetta var meðal þess
sem fram kom á morgunverðarfundi
Advania í gær um öflugri vopn í auk-
inni samkeppni. Það sé algengur
misskilningur að vefverslanir stuðli
að fækkun stöðugilda, þegar raunin
sé sú að vefverslanir breyta hlut-
verki sölumanna og gera þeim kleift
að verja meiri tíma við að veita þjón-
ustu.
Samkeppni
mætt með
vefverslun
Netið Vefverslun
svar við samkeppni.
● Greiningar-
deildir bankanna
eru ekki á einu
máli hvort stýri-
vöxtum Seðla-
banka Íslands verði
breytt en bankinn
tilkynnir nætu
vaxtaákvörðun á
miðvikudaginn
kemur.
Arion banki metur það svo að stýri-
vextir komi til með að verða óbreyttir
en helstu rökin fyrir því eru þau að
peningastefnunefnd muni vísa í ýmis
merki um töluverða spennu í hagkerf-
inu og því þurfi að viðhalda aðhaldi
peningastefnunnar.
Landsbankinn og Íslandsbanki telja
hins vegar að lækkun vaxta sé í kort-
unum á þessu ári um 0,25%. Helsta
ástæða þess sé sterkara gengi íslensku
krónunnar sem haldið hefur aftur af
verðbólgu en krónan hefur styrkst um
3,9% frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi.
Greiningardeildirnar
hallast að vaxtalækkun
Bankar Spá stýri-
vöxtum óbreyttum.
STUTT
Í lögum um opinber innkaup er sérstaklega fjallað um á hvaða formi til-
boð skuli berast og hvernig haga skuli samskiptum kaupanda og selj-
enda. Þar segir meðal annars í 68. grein: „Auk þess skal tryggt að nafn-
leynd tilboða eða tilkynninga um þátttöku sé ekki rofin og kaupandi geti
aðeins kynnt sér efni tilboða eða þátttökutilkynninga eftir að tilboðs-
frestur eða frestur til að leggja fram þátttökutilkynningu er liðinn.“ Í
sömu grein er allur vafi tekinn af um að upplýsingar sem tengist tilboðs-
gjöf séu dulkóðuð með búnaði sem fullnægi kröfum sem fram koma í til-
skipun sem íslenska ríkið hefur innleitt.
Spurður út í framkvæmd rafrænna útboða segir Halldór Ó. Sigurðsson,
forstjóri Ríkiskaupa, að stofnunin muni hafa viðeigandi búnað til umráða
frá og með apríl næstkomandi en fram að því standi stofnunin ekki fyrir
rafrænum útboðum þar sem ekki séu fullnægjandi kerfi til dulkóðunar til
staðar.
Tilboð með rafrænum hætti
GÖGN HALDIST DULKÓÐUÐ FRAM YFIR ÚTBOÐSFREST