Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna undirrituðu nýjan kjarasamning á fimmtudag. Það er fagnaðarefni. Við- ræður stóðu einnig yfir við verkalýðs- félög sjómanna og miðaði þeim vel. Skömmu fyrir boðað verkfall kl. 23 á fimmtudagskvöld ákvað forysta sjómanna hins veg- ar að slíta viðræðum. Eðli máls samkvæmt er spurt hvers vegna vélstjórar hafið samið en sjó- mannafélögin kosið að slíta við- ræðum um klukkustund áður en verkfall átti að hefjast? Séu sjómenn ósáttir við kjör sín er það lögbundinn réttur þeirra að leggja niður störf. Vegna þess mikla tjóns sem verkföll geta valdið er hins vegar mikil ábyrgð á herðum samningsaðila að reyna til þrautar að ná samningum. Verkfall á að vera neyðarúrræði. Þrátt fyrir að samningsaðila hafi greint á um einstaka þætti skal staðfest að viðræður gengu lengst af vel, þar sem aðilar sýndu gagn- kvæmt tillit og reyndu í góðri trú að forða því að þúsundir manna í sjávarútvegi, hvort heldur á sjó eða landi, legðu niður störf. Því miður tókst ekki að afstýra því. Um hvað var samið? Í þeim kjarasamningi sem SFS og VM undirrituðu aðfaranótt föstudags er óumdeilt að aðilar sættust á veigamikla þætti í kröfugerð VM. Sú kröfugerð var að mestu leyti sambærileg kröfu- gerð sjómannafélaganna. Í fyrsta lagi náðu aðilar saman um fiskverðsmál; málefni sem ágreiningur hefur staðið um til margra ára. Sú meginregla hefur verið sett að í viðskiptum á milli skyldra aðila, þ.e. útgerðar og vinnslu í eigu sömu aðila, skuli fiskverð að jafnaði taka mið af 80% markaðsverði á fiskmarkaði. Að því er viðskipti með uppsjáv- arfisk varðar hefur gagnsæi verið aukið, samskipti útgerða og áhafna vegna fiskverðssamninga verið styrkt og upplýsingagjöf til eftirlitsaðila verið formfest. Með aukinni tæknivæðingu og betri skipum hefur fækkað í áhöfn þeirra. Sjómenn hafa á það bent að fækkun kunni í einhverjum til- vikum að hafa verið of mikil, þannig að öryggi sjómanna sé stefnt í hættu og reglur um hvíld- artíma séu ekki virtar. Áhyggjur þessa efnis ber að taka alvarlega, enda eru það sameiginlegir hags- munir útgerðar og sjómanna að vel og rétt sé búið að öryggi og heilsu sjómanna. Af þessum sök- um var í öðru lagi um það samið að hraðað skyldi óháðri úttekt á þessum þáttum. Í þriðja lagi var samið um hækkun kauptryggingar, í fjórða lagi var samið um aukinn orlofs- rétt, í fimmta lagi var samþykkt 56% aukning á fjármunum til kaupa á hlífðarfötum og í sjötta lagi voru greiðslur í endur- menntunarsjóð vélstjóra auknar. Í sjöunda lagi urðu aðilar ásátt- ir um að svokallað nýsmíðaákvæði yrði tímabundið frá 1. desember 2023. Mikilvægt er að átta sig á að enda þótt skiptapró- senta geti lækkað tímabundið við kaup á nýju skipi er ekki þar með sagt að laun sjó- manna lækki. Þvert á móti hafa þau að jafn- aði hækkað. Þetta ákvæði byggist á því að viðkomandi skip sé yfir meðal- aflaverðmæti á út- haldsdag í sínum flokki. Þannig eru 25% af tekjulægstu skipunum í viðmiðunarflokki skipsins undan- skilin. Af þessum sökum fer fjarri að öll ný skip uppfylli skilyrði ákvæðisins og gróflega má áætla að nýsmíðaákvæðið hafi aðeins tekið til rúmlega 200 stöðugilda á sjó umliðin ár. Því skal til haga haldið að skip sem hafa uppfyllt skilyrði ákvæðisins eru að jafnaði tekjuhæstu skip íslenska fiski- skipaflotans og laun áhafna á þeim því með því besta sem gerist í ís- lenskum sjávarútvegi. Sem dæmi má nefna að hásetahlutur á uppsjávarskipi sem uppfyllti skil- yrði ákvæðisins árið 2015 var tæp- ar 35 m.kr., eða rúmlega 218 þús.kr. á hvern sjódag. Til við- bótar við laun þessi bætast greiðslur í lífeyrissjóð. Hér hefur verið tæpt á því helsta sem um var samið og stað- reynd málsins er sú að aðilar hafa náð góðri sátt um stærstu kröfur vélstjóra. Um hvað var ekki samið? Eins og áður var vikið að tókust ekki samningar á milli SFS og sjómanna. Það er miður. Sú ástæða sem forysta sjómanna hef- ur gefið fyrir því að slíta við- ræðum við SFS varðar mönn- unarmál. Telur forystan að með átta manna áhöfn á uppsjáv- arskipum og 13 manna áhöfn á ís- fisktogurum séu brotin lög og reglur um hvíldartíma. Um þetta greinir aðila á, en eins og áður var vikið að höfðu SFS og sjómenn áður sammælst um að láta fram- kvæma óháða úttekt þessara mála og að vinnu þeirrar úttektar yrði hraðað. Af þessum sökum er erfitt að finna rök þess að láta samn- ingaviðræður steyta á því skeri. Bæði SFS og sjómenn höfðu lýst því opinberlega umliðna daga að viðræðum miðaði vel áfram. Á síðustu metrunum áður en verkfall skall á mátti raunar ætla að vinna og góður vilji umliðna daga gætu skilað samningi sem vel væri við unað. Þrátt fyrir að verkfall sé nú staðreynd leysa aðilar sig ekki undan þeirri ábyrgð að þeim beri í lengstu lög að forða verulegu tjóni og áframhaldandi verkfalli. Sem fyrr mun SFS ekki liggja á liði sínu í þeirri vegferð. Þegar öllu er á botninn hvolft eru útgerðir og sjómenn samstarfsaðilar með ríka sameiginlega hagsmuni. Því má ekki gleyma. Kjarasamningar í sjávarútvegi Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur » Þrátt fyrir að verk- fall sé nú staðreynd leysa aðilar sig ekki undan þeirri ábyrgð að afstýra verulegu tjóni og áframhald- andi verkfalli. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Fyrsta einvígisskák norskaheimsmeistarans Magn-úsar Carlsen og RússansSergei Karjakin hófst í New York í gær kl. 19 að íslensk- um tíma. Skákinni var ekki lokið þegar þetta var ritað í gærkvöldi en hér að neðan birtist viðureignin fram að þeim tíma en jafntefli blasti þá við. Þetta kemur ekki á óvart því í fyrstu skák margra slíkra er eins og keppendur séu að þreifa fyrir sér og venjast að- stæðum. Strax í byrjun reyndi Magnús að koma Karjakin á óvart með því að velja byrjunarleið sem þótti minna á sigurvegara bandarísku forseta- kosninganna, Trompovsky- byrjun. Hann kom ekki að tómum kofanum hjá andstæðingi sínum sem jafnaði taflið án teljandi erfiðleika en reyndi ekki að nýta sér þau færi sem buðust og var greinilega sáttur við jafntefli. Magnús náði forskoti á skákklukkunni en eftir drottning- aruppskipti og enn meiri uppskipti virtist ekki eftir miklu að slægjast. Skákinni var ekki lokið þegar greinarhöfundur skildi við þá fé- laga. Þeir munu tefla 12 skákir og verði þá jafnt verður gripið til skáka með styttri umhugsunartíma. Tímamörk eru 100 mínútur á mann fyrir fyrstu 40 leikina, 50 mínútur fyrir næstu 20 leiki og eftir það 15 mínútur á skákina allt til loka, 30 sekúndur bætast við tímann eftir hvern einasta leik. Önnur einvígis- skákin fer fram í dag og hefst kl. 19 að íslenskum tíma, frí á morgun og svo eru tefldar tvær skákir, aft- ur frídagur og svo tvær skákir og þannig koll af kolli. 12. skákin er á dagskrá þann 28. nóvember. Leitað eftir aðstoð Microsoft Þó að Magnús Carlsen sé talinn mun sigurstranglegri eru fræði- menn ýmsir fljótir að benda á nokkur einvígi í sögu heimsmeistarakeppninnar þar sem „minnipokamaðurinn“ hefur staðið uppi sem sigurvegari. Helsta von Karjakins liggur á sviði byrjana en þar þykir hann beittari en Carlsen sem gerir sér far um að sneiða hjá alfaraleiðum. Sálfræðiþátt þessarar baráttu má ekki vanmeta og Rússarnir kunna ýmislegt fyrir sér á því sviði. Gam- all vinur Magnúsar, rússneski stór- meistarinn Jan Nepomniahctchi, sigurvegari á minningarmótinu um Tal á dögunum, var í liði heims- meistarans í Sochi fyrir tveim ár- um en er að sögn kominn yfir í herbúðir Karjakin. Á blaðamanna- fundi sl. fimmtudag kvaðst Magnús ekki hafa áhyggjur af vistaskiptum Nepo. Hann hefur hinsvegar leitað eftir aðstoð hjá Microsoft til að girða fyrir þann möguleika að Rússarnir komist yfir gögn sem varða undirbúning hans fyrir ein- vígið. Tortryggni vegna ólöglegrar notkunar á hugbúnaði á meðan skák stendur yfir komst í hámæli þegar Topalov og Kramnik háðu heimsmeistaraeinvígi sitt í Elista í Kalmykíu árið 2006. Í dag mega skákmenn ekki koma með snjall- síma á skákstað og armbandsúr eru líka á bannlista. Fjölmörg svindlmál hafa komið upp und- anfarið og FIDE hefur neyðst til að auka mikið við regluverk sitt. New York hefur áður verið vett- vangur heimsmeistaraeinvígis; Kasparov og Anand tefldu um PCA-heimsmeistaratitilinn á 107. hæð World trade center haustið 1995. Einvígið fer nú fram í Ful- ton-Market byggingunni á Man- hattan í grennd við Wall Street og steinsnar frá Brooklyn-brúnni sem liggur yfir í þann hluta heimsborg- arinnar sem ól upp frægasta skák- mann Bandaríkjanna, Bobby Fischer. Aðalskipuleggjandi einvígisins í New York er Agon, fyrirtæki sem staðið hefur fyrir skákviðburðum á borð við heimsmeistarakeppnina í hraðskák og atskák. Agon mun láta reyna á einkarétt sinn vegna útsendinga frá einvíginu og kynnir nýjar lausnir þar sem áskrifendur eru mataðir með ólíklegustu upp- lýsingum til viðbótar við útreikn- inga „skákvélanna“. Skákmeist- ararnir eru jafnframt í nærmynd meðan á hverri viðureign stendur. Skákin í gær gekk þannig fyrir sig: HM-einvígið New York 2016; 1. einvígisskák: Magnús Carlsen – Sergei Kar- jakin Trompowsky-byrjun 1. d4 Rf6 2. Bg5 d5 3. e3 c5 4. Bxf6 gxf6 5. dxc5 Rc6 (Kramnik lék 5. …e6 gegn Magnúsi á minningarmótinu um Tal árið 2013.) 6. Bb5 e6 7. c4 dxc4 8. Rd2 Bxc5 9. Rgf3 0-0 10. 0-0 Ra5 11. Hc1 Be7 12. Dc2 Bd7?! (Hvassara var 12. …a6 og svarta staðan er síst lakari.) 13. Bxd7 Dxd7 14. Dc3 Dd5 15. Rxc4 Rxc4 16. Dxc4 Dxc4 17. Hxc4 Hfc8 18. Hfc1 Hxc4 19. Hxc4 Hd8 20. g3 (Bíður áttekta. Flestir áttu von 20. g4 eða 20. Kf1.) 20. … Hd7 21. Kf1 f5 22. Ke2 Bf6 23. b3 Kf8 24. h3 h6 25. Re1 (Riddarinn er á leið til d3 þar sem hann stendur vel.) 25. …Ke7 26. Rd3 Kd8 27. f4 h5 28. a4 Hd5 Þetta var staðan eftir þriggja klst. taflmennsku. Karjakin átti ekki að vera í neinum vandræðum að ná jafntefli. Líkur á jafntefli í fyrstu ein- vígiskák Carlsen og Karjakin Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is AFP Heimsmeistaraeinvígi Magnús Carlsen (til vinstri) og Rússinn Sergei Kar- jakin tefla fyrstu einvígisskákina í New York. Önnur skákin fer fram í dag. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.