Morgunblaðið - 12.11.2016, Page 31

Morgunblaðið - 12.11.2016, Page 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Isavia ohf. annast rekstur flugvalla landsins og flug- leiðsöguþjónustu ásamt tilheyrandi bún- aði. Félagið er í hópi stærstu fyrirtækja landsins með um 1.100 starfsmenn á launa- skrá. Þótt Isavia sé ungt að árum (stofnað árið 2010) liggja rætur þess dýpra og um þessar mundir minnist félagið merkra tímamót í sögu sem spannar rúma sjö áratugi. Laugardaginn 6. júlí árið 1946 af- hentu Bretar Íslendingum Reykja- víkurflugvöll formlega til eignar og umráða við hátíðlega athöfn sem haldin var vestan við gamla flug- turninn. Var allmörgum gestum boðið til athafnarinnar, þar á meðal íslenskum embættismönnum og sendiherrum erlendra ríkja og al- menningi gafst kostur á að sækja viðburðinn. Athöfninni var einnig útvarpað um land allt, sem segir sitthvað um þýðingu hennar. Bretar hófu gerð flugvallarins haustið 1940 og þjónaði hann mikilvægu hlut- verki í baráttunni um Norður- Atlantshaf. Þegar á stríðsárunum var flugvöllurinn einnig orðinn mið- stöð innanlandsflugs og um árabil var hann vettvangur millilandaflugs Flugfélags Íslands og Loftleiða. 70 ár síðan Íslendingar tóku við Keflavíkurflugvelli Síðar sama ár, hinn 25. október 1946, afhentu Bandaríkjamenn Ís- lendingum Keflavíkurflugvöll við hátíðlega athöfn. Á þessu ári eru því liðin 70 ár síðan Íslendingar tóku við þessum miklu flugvallarmann- virkjum sem bandamenn reistu á stríðsárunum. Eins og kunnugt er hefur Keflavíkurflugvöllur alla tíð síðan verið aðalmillilandaflugvöllur landsins jafnframt því að vera mið- stöð Bandaríkjahers á landinu þar til varnarliðið hvarf af landi brott 30. september 2006. Á þessu 60 ára tímabili hvíldi rekstur flugvallarins að mestu leyti á herðum hersins en Íslendingar önnuðust þjónustuna við borgaralega flugið. Við brott- hvarf varnarliðsins fyrir tíu árum yfirtóku Íslendingar að fullu rekst- ur flugvallarins. Tók Keflavík- urflugvöllur ohf. við sameinuðum rekstri flugvallarins og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar 1. janúar 2009. Um og upp úr miðri síðustu öld voru sjóflugvélar mikið notaðar í innanlandsflugi enda flestir flug- vellir landsins einungis náttúrulegir lending- arstaðir og því afar ófullkomnir. Hinn 13. nóvember 1946 urðu merk tímamót á þessu sviði þegar Vest- mannaeyjaflugvöllur var formlega tekinn í notkun. Var mál manna að flugvöllurinn yrði stórkostleg sam- göngubót fyrir Eyja- menn og er óhætt að segja að sú hafi orðið raunin. Danska verktakafyrirtækið Höjgaard & Schultz A/S, sem var umsvifamikið í framkvæmdum hér- lendis, sá um gerð flugvallarins og má kalla hann fyrsta stórvirki í flugvallagerð sem Íslendingar stóðu fyrir. Íslenska flugstjórnarsvæðið eitt hið stærsta í heimi Skömmu áður en Bretar afhentu Reykjavíkurflugvöll, eða 5. maí 1946, tóku Íslendingar við flugum- ferðarstjórn á flugvellinum undir handleiðslu Breta og 1. nóvember sama ár tóku Íslendingar einnig við flugleiðsöguþjónustu fyrir alþjóða- flug á stóru hafsvæði umhverfis landið. Kom í hlut Flugmálastjórnar Íslands (stofnuð árið 1945) að ann- ast þessi málefni ásamt Landssím- anum, sem veitti fjarskiptaþjón- ustu, og Veðurstofu Íslands, sem sá um flugveðurþjónustu. Rekstur ís- lenska flugstjórnarsvæðisins komst í fastar skorður með fjölþjóðlegu samkomulagi í Genf í Sviss árið 1948 fyrir milligöngu Alþjóðaflug- málastofnunarinnar. Fól sam- komulagið í sér að þær þjóðir sem einkum nytu góðs af flugleiðsögu- þjónustunni kostuðu rekstur henn- ar. Er íslenska flugstjórnarsvæðið eitt hið stærsta í heimi, um 5,4 millj- ónir ferkílómetra. Hefur starf- ræksla þess ekki einungis aflað landinu gjaldeyris heldur einnig skapað fjölmörg vellaunuð störf og verið uppspretta margvíslegrar tækniþekkingar sem íslensk flug- mál hafa notið góðs af í heild sinni. Þess má geta að síðar í þessum mánuði fer fram vígsla nýrrar við- byggingar við flugstjórnarmiðstöð- ina á Reykjavíkurflugvelli en þaðan er flugumferð á íslenska flugstjórn- arsvæðinu stjórnað. Fullyrt að stöðin væri of stór Á vori komanda, nánar tiltekið 14. apríl 2017, verða liðin 30 ár frá því Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli var tekin í notk- un. Kom hún í stað flugstöðvar sem byggð var árið 1949 og var orðin alltof lítil. Með tilkomu nýju flug- stöðvarinnar varð loks fullur að- skilnaður milli borgaralegrar og hernaðarlegrar flugstarfsemi á flugvellinum. Bandaríkjamenn kost- uðu að mestu leyti gerð nýju flug- stöðvarinnar og varð þátttaka þeirra í verkefninu tilefni harðra pólitískra deilna á Alþingi og í þjóð- félaginu almennt. Var meðal annars fullyrt að flugstöðin væri alltof stór en annað kom á daginn. Á und- anförnum fimmtán árum hefur stöð- in verið stækkuð og endurbætt í nokkrum áföngum og innan tíðar verður tekin í gagnið nýjasta við- byggingin. Þar með verður heildar- flatarmál flugstöðvarinnar 72.000 fermetrar en var í upphafi 22.000 fermetrar. Þáttaskil Á nýársdag árið 2007 urðu þátta- skil í sögu íslenskra flugmála þegar rekstur flugvalla og flugleiðsögu- þjónustu var skilinn frá starfsemi Flugmálastjórnar Íslands og falinn nýju fyrirtæki, Flugstoðum ohf. Sinnti Flugmálastjórn áfram eft- irliti og skráningu en nú hefur stofnunin verið lögð niður og verk- efnin færð til Samgöngustofu. Hinn 1. maí 2010 tók Isavia við samein- uðum rekstri Flugstoða og Kefla- víkurflugvallar. Í aðdraganda sam- runans hófst eldgos í Eyjafjallajökli og setti það flugstarfsemi við Norð- ur-Atlantshaf og víðar úr skorðum eins og frægt varð. En elds- umbrotin vöktu líka mikla athygli á Íslandi og hefur hún ásamt viða- miklu kynningarstarfi aukið mjög ferðamannastraum til landsins. Af þeim sökum hefur umferð um Keflavíkurflugvöll vaxið gríðarlega á undanförnum árum og gera áætl- anir ráð fyrir áframhaldandi mikl- um vexti í nánustu framtíð. Í tilefni þeirra mörgu tímamóta sem hér hefur verið tæpt á ákvað stjórn Isavia að ráðst í ritun á sögu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu Íslands. Ráðgert er að ritið komi út á næsta ári. Merk tímamót á starfsvett- vangi Isavia 2016 og 2017 Eftir Arnþór Gunnarsson » Þótt Isavia sé ungt að árum liggja rætur þess dýpra og um þess- ar mundir minnist félag- ið merkra tímamót í sögu sem spannar rúma sjö áratugi. Arnþór Gunnarsson Höfundur er sagnfræðingur. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Vestmannaeyja. Glitfaxi Douglas Dakota-flugvél Flugfélags Íslands TF-ISG, Glitfaxi, á flugvellinum í Eyjum með Helgafell og gömlu „flugstöðina“ í baksýn. Farþegar og áhöfn fyrir framan vélina. Rússneskur máls- háttur segir að hinn hyggni læri af mistök- um annarra, hinn heimski af eigin mis- tökum. Það fylgir ekki sögunni hvað Rússar kalla þann sem ekkert lærir, hvorki af óförum annarra né sínum eig- in. Seðlabanki Íslands býr núna við stöðugt innstreymi gjaldeyris líkt og var í síðustu upp- sveiflu og flestum uppsveiflum þar á undan. Eini munurinn frá síðustu uppsveiflu er að nú er afgangur af viðskiptum við útlönd og erlend fjár- festing sem stýrir mestu um inn- streymi gjaldeyris en ekki erlend skuldsetning íslenskra aðila. Það breytir því ekki að þegar fram í sækir þarf að greiða til baka, auk vaxta, það sem nú hleðst upp í Seðlabankanum. Seðlabanki Íslands viðheldur gríðarlegum vaxtamun við útlönd, sem er um 5%. Þegar gjaldeyrisforði Seðlabankans vex þá þýðir það mik- inn kostnað fyrir bankann, en þeir sem njóta þess munar eru erlendir fjárfestar enda sækja þeir æ meira í íslenskar krónur, sem kemur fram í því að metvöxtur er í hverjum mánuði á gjaldeyrisforða bankans, 50 millj- arðar í október. Bankinn skuldar krónur sem bera ríflega 5% vexti og eignast erlendar myntir sem litla sem enga vexta bera. Hreinn gjaldeyrisforði, sem hefur tvöfaldast frá áramótum, upp á 540 milljarða þýðir vaxtatap Seðlabank- ans upp á 27 milljarða á 12 mánuðum. Styrking íslensku krónunnar á móti erlendum myntum upp á 15% þýðir 81 milljarðs tap í gengismun á ári. Þetta tap Seðlabankans er speg- ilmynd þess hagnaðar sem þeir njóta sem selja gjaldeyri fyrir íslenskar krónur á gengi sem er undir sann- virði þar sem Seðlabankinn hefur reynt að halda því niðri með inn- gripum. Seðlabankinn er svo með um 250 milljarða útistandandi af erlend- um lánum, á mun hærri vöxtum en hann nær að ávaxta fjármagnið á, sem mætti áætla að myndaði tap upp á yfir 5 milljarða á ári. Samandregið eru því heildaráhrifin yfir 113 millj- arðar í mínus. Eigið fé Seðlabank- ans var undir 80 millj- örðum króna við síðustu áramót. Seðlabankinn heldur því fram að afkoma af gjaldeyrisforða sé ein- faldlega reiknaður liður og skipti ekki máli í samhengi hlutanna. Það er eins og að segja „við seldum fullt af krónum á 175 á móti evru, en þó að gengið sé núna 120 þá skiptir það engu máli“. Ég er þessu eðlilega ósammála. AGS hefur ítrekað fjallað um það á síðustu áratugum hvernig fer fyrir litlum seðlabönkum sem ekki hafa jákvætt eigið fé og núverandi stjórnendum Seðlabankans, sem voru arkitektar peningastefnunnar fyrir hrun, ætti að vera minnisstætt hvernig fór fyrir stjórnendum Seðlabankans sem þurftu að axla ábyrgð á þeirri pen- ingastefnu síðast þegar eigið fé Seðlabankans þvarr. Seðlabankinn fór í aflandskrónuút- boð í sumar og innleysti þá 25 millj- arða afgang í þeim viðskiptum, keypti krónur í júní fyrir 72 milljarða en greiddi 47 milljarða í gjaldeyri fyrir. Eins er Seðlabankinn að selja eignir frá því í hruninu, svo sem eignarhlut í Kaupþingi (án útboðs) með vænt- anlega 8 milljarða afgangi frá bók- færðu virði. Þetta eru liðir sem koma ekki aftur inn í reikninga Seðlabank- ans en skila núna 33 milljarða plús í bækurnar. Ef Seðlabankinn ætlar ekki að breyta út af hávaxtastefnu sinni mun krónan styrkjast áfram og tap af gjaldeyrisforða og vaxtamun aukast enn frekar. Þetta er ekkert nýtt og bankinn hefur brennt sig á þessu áð- ur. Hvenær ætlar Seðlabankinn að sjá að sér og læra af eigin mistökum? Seðlabankinn tapar öllu eigin fé – og lætur sem ekkert sé Eftir Heiðar Guðjónsson Heiðar Guðjónsson »Ef Seðlabankinn ætl- ar ekki að breyta út af hávaxtastefnu sinni mun krónan styrkjast áfram og tap af gjald- eyrisforða og vaxtamun aukast enn frekar. Höfundur er hagfræðingur. Hvernig stendur á því að flestir auglýstir dagskrárliðir hjá RÚV standast ekki? Hvers vegna kvart- ar fólk ekki? Hefur fólk ekki tíma til að kvarta? Endalaus er afsökun hjá frétta- mönnum að dagskrá sé komin fram úr auglýstum tíma. Hvernig er hægt að bjóða fólki þetta enda- laust? Ég hef hvergi í heiminum kynnst slíku. Allar sjónvarps- stöðvar virðast hafa þann metnað að hafa fréttir sem annað á réttum tíma, þá meina ég upp á sekúndu. Hjá RÚV virðist þetta ekki skipta máli. Hvernig er hægt t.d. að stilla á upptöku ákveðins efnis, þegar út- sendingu getur seinkað um jafnvel tugi mínútna, sem fer eftir þeirra eigin geðþótta. Telur RÚV sig yfir aðra hafna að hegðan? Að stundvísi sé eitthvað sem þá eina varðar? Takið ykkur saman og sýnið kúnnum ykkar þá kurteisi að hafa útsendingar á nákvæmlega rétt auglýstum tíma. Svanur Jóhannsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Óreglulegar útsendingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.