Morgunblaðið - 12.11.2016, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
✝ Bjarni Jónsson,prófessor
emeritus í stærð-
fræði við Vander-
bilt-háskólann í
Nashville í Banda-
ríkjunum, fæddist á
Draghálsi í Svína-
dal 15. febrúar
1920. Hann lést í
Cincinnati í Ohio,
96 ára að aldri, 30.
september 2016.
Foreldar hans voru hjónin
Jón Pétursson, f. 23. mars 1887,
bóndi þar og svo hreppstjóri á
Geitabergi í Svínadal, d. 22.
september 1969, og Steinunn
Bjarnadóttir, f. 17. mars 1895,
húsmóðir á Geitabergi, d. 27.
desember 1972. Bjarni fór til afa
síns og ömmu á Geitabergi þeg-
ar hann var á fyrsta ári en árið
1929 fluttist hann til foreldra
sinna og ólst upp hjá þeim á
Draghálsi og á Geitabergi í
stórum systkinahópi. Systkini
Bjarna voru Sigríður, f. 1916, d.
1986, Pétur, f. 1918, d. 2003,
Einar, f. 1921, d. 2009, Halldóra,
f. 1923 d. 1923, Halldóra, f.
1925, d. 2014, Erna, f. 1927, d.
2014, Haukur, f. 1929, d. 1991,
Pálmi, f. 1932, d. 1956, og Elísa,
f. 1939, d. 1986.
Bjarni var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Amy Spraque
forníu í Bandaríkjunum 1943 og
doktorsprófi þar 1946. Bjarni
var merkur vísindamaður,
frumkvöðull í stærðfræði og
virtur í heimi algebrunnar en
mörg hugtök í greininni eru
tengd við hann. Eftir að Bjarni
hóf störf við Vanderbilt-háskól-
ann 1966 var hann lykilmaður í
því að koma þar á framhalds-
deild í stærðfræði og er hún nú
talin meðal hinna bestu í Banda-
ríkjunum. Hann kom þar á fót
rannsóknarhópi í algebru sem
hefur laðað til sín stærðfræð-
inga víðs vegar að úr heiminum.
Hann ritaði margar vísinda-
greinar um algebru í virt fagrit
auk þess sem hann var í rit-
stjórnum margra stærðfræði-
tímarita. Bjarni var sæmdur
heiðursdoktorsnafnbót við Há-
skóla Íslands árið 1986 og
sæmdur stórriddarakrossi hinn-
ar íslensku fálkaorðu 1991. Í til-
efni af sjötugsafmæli hans árið
1990 var haldið málþing á Laug-
arvatni honum til heiðurs. Hann
hlaut ýmsar viðurkenningar í
heimi stærðfræðinnar og var
tekinn inn í það sem kalla má
frægðarsetur stærðfræðinga í
Bandaríkjunum árið 2012.
Bjarni bjó síðustu æviárin í
Cincinnati í Ohio í næsta ná-
grenni við Kristínu dóttur sína
og fjölskyldu hennar.
Útför hans verður gerð í
Nashville í Tennessee í Banda-
ríkjunum í dag, 12. nóvember
2016.
Jónsson, f. 11. sept-
ember 1929, d. 30.
apríl 1988. Þau
skildu. Börn þeirra
eru: a) Eric Mars-
hall, f. 27. ágúst
1951, maki Sandra
Kaye Woollard, f.
23. apríl 1942,
þeirra dóttir er El-
isabeth Steinunn, f.
11. janúar 1976. El-
isabeth er gift Ter-
rence Lee Winslow Jr. b) Meryl
Steinunn, f. 25. nóvember 1953,
maki Michael Runion, d. 13. maí
1986, þeirra sonur David Sky-
ler, f. 26. febrúar 1981. Seinni
maður Meryl er Bob Rose, f. 29.
október 1948. Seinni kona
Bjarna var Harriet Parkes Jóns-
son, f. 14. apríl 1930, d. 19. des-
ember 2014. Þeirra dóttir er
Mary Kristín, f. 4. ágúst 1971,
maki Rick Porotsky, f. 10. októ-
ber 1970. Þeirra börn eru Brent,
f. 14. febrúar 1999, Gena, f. 1.
mars 2001, Aaron, f. 10. apríl
2003, William, f. 20. mars 2006,
og Cole, f. 6. maí 2011.
Bjarni ólst upp á Geitabergi
við hefðbundin sveitastörf en
fór ungur að heiman til náms við
Menntaskólann í Reykjavík og
tók þar stúdentspróf 1939. BA-
prófi í stærðfræði lauk hann frá
háskólanum í Berkeley í Kali-
Í dag verður jarðsettur, í Nas-
hville í Tennessee, Bjarni Jónsson
stærðfræðingur, við hlið eigin-
konu sinnar, Harriet, sem lést ár-
ið 2014. Bjarni var sonur
hjónanna Steinunnar Bjarnadótt-
ur og Jóns Péturssonar, einn 10
systkina. Vegna barnafjöldans
var ákveðið að Bjarni myndi búa
hjá afa sínum og ömmu, þeim
Bjarna Bjarnasyni hreppstjóra
og Sigríði Einarsdóttur á Geita-
bergi í Svínadal. Amma mín,
Björg, var yngst Geitabergs-
systkinanna. Hún og Bjarni ólust
að hluta til upp saman og amma
var alla tíð mjög stolt af Badda
sínum. Afi Bjarna og Jón faðir
hans munu snemma hafa séð að
Bjarni litli hafði góðan skilning á
tölum. Þegar Bjarni hreppstjóri
lá fyrir dauðanum bað hann son
sinn Bjarna lækni um að koma
Bjarna til mennta. Eftir stúdents-
próf sigldi Bjarni til Bandaríkj-
anna, þar sem honum hafði verið
boðin skólavist í Harvard og
Berkeley.
Bjarni valdi Berkeley og hóf
þar nám árið 1941. Þá var nýlega
kominn til starfa hinn þekkti
stærðfræðingur Alfred Tarski frá
Póllandi. Skv. ævisögu Tarskis
fékk Bjarni, sem þá var enn í
grunnnámi, það verkefni að yfir-
fara Hausdorff-sannanir og varð
Tarski yfir sig spenntur þegar
Bjarni fann villu í einni slíkri.
Bjarni varð síðar fyrsti doktors-
nemi Tarskis í BNA. Eftir dokt-
orsnám kenndi Bjarni og vann við
vísindastörf, m.a. við Ivy League-
skólann Brown, en lengst af við
Vanderbilt-háskólann í Tennes-
see þar sem hann byggði upp
framhaldsnámsdeild sem nú þyk-
ir meðal þeirra bestu í BNA.
Við fjölskyldan erum afar
þakklát fyrir að hafa átt vináttu
Bjarna þau 10 ár sem við höfum
verið í BNA. Við heimsóttum þau
hjónin bæði til Cincinnati, þar
sem þau eyddu ævikvöldinu, og í
paradísina þeirra, bústaðinn í
Minnesota. Við hlið bústaðsins í
Minnesota var Bjarni með lítinn
kofa sem hann notaði til vísinda-
starfa á sumrin. Skv. nágrönnun-
um var Bjarni með gríðarlanga
pappírsörk sem hann byrjaði á að
festa á veggina allan hringinn.
Þegar leið á sumarið og útreikn-
ingurinn varð lengri og lengri
kom örkin út um gluggann. Minni
Bjarna var með ólíkindum. Við
urðum orðlaus þegar hann þuldi
upp ljóð eftir Björgu ömmu mína
sem höfðu verið lesin upp fyrir
hann, einu sinni, 25 árum áður.
Bjarni lét sér annt um nám og
starf Eddu dóttur minnar, sem
einnig er stærðfræðingur, ráð-
lagði henni varðandi framhalds-
nám, skrifaði meðmælabréf og
fylgdist með framgangi hennar af
áhuga. Sem dæmi um hógværð
Bjarna hafði hann sagt börnunum
sínum að hann var með slaka ein-
kunn þegar hann tók inntökupróf
í menntaskóla en nefndi ekki að
hann var langyngstur, einungis 12
ára gamall.
Hann hafði heldur ekki flíkað
viðurkenningum sínum við neinn
og þannig kom t.d. nýverið í ljós
að Bjarni hafði verið sæmdur
Stórriddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu.
Bjarni hafði svo góða nærveru,
það var stutt í hláturinn og hann
var sérstaklega ljúfur. Orðið snill-
ingur er ofnotað í daglegu tali en
það er fullljóst að Bjarni Jónsson
var snillingur í eiginlegri merk-
ingu þess orðs.
Við munum sakna Bjarna
frænda mikið og sendum börnum
hans og fjölskyldum samúðar-
kveðjur.
Meira: mbl.is/minningar
Björg Guðmundsdóttir.
Þegar ég var yngri heyrði ég
stundum sögur af Bjarna frænda
mínum, stærðfræðingi sem bjó í
Bandaríkjunum. Hann var þekkt-
ur rökfræðingur og eftir honum
hafa verið nefndar stærðfræði-
reglur eins og til dæmis Jonsson-
algebrurnar. Ég hitti Bjarna fyrst
eftir að ég var sjálf flutt til Banda-
ríkjanna og var byrjuð að feta í
fótspor hans í háskólanámi í
stærðfræði. Í nærveru Bjarna var
maður fljótur að finna að hann var
enginn venjulegur maður. Bjarni
var snillingur með meira minni en
flestar tölvur og mjög hlýr. Hann
var alltaf tilbúinn að hjálpa mér
og hafði alltaf áhuga á því sem ég
var að læra meðan ég var í skóla
og svo seinna á því sem ég var að
gera í vinnunni. Á vinnustað mín-
um hefur sú hefð þróast að nefna
tölvur eftir stórmennum stærð-
fræðinnar, þar á meðal Bjarna
Jónssyni. Ég held því áfram að
vinna með Bjarna hér eftir sem
hingað til.
Bjarna verður sárt saknað og
ég er þakklát að hafa fengið að
kynnast honum.
Edda Lind
Styrmisdóttir.
Göfugur er sá maður, sem gefur sitt
eina pund.
Í gröfina fer holdið og sálin á drottins
fund.
En þó líkami mannsins sé þakinn mold
og leir,
þá er eftir minning sem aldrei deyr.
(Björg Bjarnadóttir frá Geitabergi)
Hvíl í friði, kæri frændi. Við er-
um þakklát fyrir þann tíma sem
við höfum haft saman í Bandaríkj-
unum undanfarin ár.
Edda Bergljót og
Guðmundur.
Þegar Bjarni Jónsson frá
Geitabergi sigldi vestur um haf
árið 1941, varð hann, í breyttum
heimi, fyrstur Íslendinga til að
leggja fyrir sig stærðfræði í þeirri
álfu.
Lærifaðir hans til doktorsprófs
í háskólanum í Berkeley í Kali-
forníu, Pólverjinn Alfred Tarski,
var einn höfuðsnillingur meðal
rökfræðinga aldarinnar, og var
Bjarni fyrsti stúdentinn, sem
hann leiddi til slíks prófs þar
vestra. Samstarf þeirra varð lang-
varandi og heilladrjúgt, og er
markverð setning í þeirra fræð-
um við þá kennd og einnig hugtök
en seinna var mörg önnur stærð-
fræðileg hugarsmíð kennd við
Bjarna einan.
Meginstarf Bjarna var á sviði
algebru og á mörkum algebru og
rökfræði og hafa verk hans verið
mjög frumleg og reynzt drjúg
uppspretta rannsókna annarra.
Tvær ritsmíðar á sjötta áratugn-
um urðu undirstaða blómlegrar
sérgreinar í líkanafræði en þá
fyrri vann hann að miklu leyti
þann eina vetur, sem hann starf-
aði í Háskóla Íslands. Á sviði
grindafræði og í allsherjaral-
gebru var Bjarni talinn í allra
fremstu röð.
Hann gegndi lengstum emb-
ætti svokallaðs tignarprófessors
við Vanderbilt-háskólann í Nas-
hville í Tennessee, hinu fyrsta þar
af því tagi, en til þess var hann
kallaður árið 1966. Þar var svo ár-
ið 1995 efnt til verðlauna, sem
bera nafn hans, og eru þau veitt
árlega fyrir afburði í stærðfræði-
rannsóknum.
Í tilefni sextugsafmælis Bjarna
var alþjóðlegt málþing haldið
honum til heiðurs í Nashville en
áratug síðar var slíkt þing haldið á
Laugarvatni.
Hér stóðu Íslenzka stærð-
fræðafélagið og Háskóli Íslands
að því ásamt þremur bandarísk-
um háskólum og var fjallað um
helztu fræðasvið Bjarna, grinda-
fræði, rökfræði og algebru.
Ánægjulegt var að kynnast því af
hinum erlendu stærðfræðingum,
sem hingað komu, hversu vel
virður Bjarni var í þann hóp, og
kom það ekki sízt fram í lokahóf-
inu, sem var í rauninni síðbúin af-
mælisveizla.
Að þinginu hér loknu fóru
margir gestanna í dagsferð um
Kaldadal og Borgarfjörð og var á
suðurleið farið um Svínadal,
bernskustöðvar Bjarna. Bar þá
svo til, að í Kornahlíð sátu fyrir
ferðalöngunum tvö systkina hans
ásamt mökum sínum. Buðu þau af
rausn öllum til stofu á Geitabergi
og voru reiddar fram nýbakaðar
pönnukökur með rjóma og rabar-
barasultu. Gerðu gestirnir sextíu
veitingunum hin beztu skil og
tóku þessu óvænta heimboði með
miklum fögnuði. Þökkuðu menn
fyrir sig með því að taka upp þann
keðjusöng, sem hafði verið sam-
inn á Laugarvatni og frumfluttur
var lokakvöldið. Var það hylling
til Bjarna, algebrunnar og Ís-
lands. Tók nú undir í þéttskipuð-
um stofunum á Geitabergi, enda
þrískiptur keðjusöngurinn þá
æfður til fulls, og var hann end-
urtekinn svo oft sem menn höfðu
þrek til.
Þetta urðu minnisstæðar lyktir
á málþinginu.
Glaður var Bjarni þarna heima
í sveitinni sinni. Og þær mæðgur,
Harriet og Kristín, glöddust með
honum í þessari Íslandsferð allri.
Bjarni Jónsson var hógvær
maður og ljúfur í samskiptum. Að
honum gengnum er bjart yfir
minningunni um kynni, sem hóf-
ust fyrir hartnær hálfri öld, en
vissulega stóðu þau með stopulum
hætti.
Jón Ragnar Stefánsson.
Bjarni Jónsson
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Guðmundur Baldvinsson
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 210 Garðabær
sími 842 0204 www.harpautfor.is
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
BERGLJÓT EIRÍKSDÓTTIR
fyrrv. skrifstofustjóri Ríkissaksóknara,
sem lést 28. október á Hjúkrunarheimilinu
Ísafold, verður jarðsungin mánudaginn
14. nóvember frá Fossvogskapellu
klukkan 15.
.
Auður Jóhannesdóttir Þorsteinn Jóhannsson
Eiríkur Baldur Þorsteinsson Telma Tryggvadóttir
Lóa Bergljót Þorsteinsdóttir
Jóhanna Margrét Þorsteinsdóttir
og langömmubörn.
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG HELGA ÓSKARSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést á Sóltúni 8. nóvember. Útförin fer
fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 16.
nóvember klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög.
.
Alfreð S. Jóhannsson Magdalena Sigurðardóttir
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir Ólafur Gunnarsson
Eiríkur Jónsson Oddný Sigurðardóttir
Ferdinand Jónsson Ishaiga Jalloh
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín,
SIGURBJÖRG RANNVEIG
GUÐNADÓTTIR,
sem lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum
2. nóvember síðastliðinn, verður jarðsungin
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 19. nóvember klukkan 14.
Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Slysavarnafélagið Eykyndil.
.
Gylfi Guðnason og aðrir vandamenn.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
RAGNHEIÐUR KJARTANSDÓTTIR
BUSK,
Ási, Hveragerði,
lést 7. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 14.
.
María Busk Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
Kjartan Rúnar Busk Gunhild Windstad
Ragnheiður Elsa Busk Steinar Logi Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
LÚÐVÍK BJÖRNSSON,
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést þriðjudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju mið-
vikudaginn 16. nóvember klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Höfða eða
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis.
.
Björn Lúðvíksson, Jenna Gottlieb,
Fjóla Lúðvíksdóttir, Jóhann Þór Sigurðsson,
Þorsteinn Jóhannesson
og afabörn.