Morgunblaðið - 12.11.2016, Page 47

Morgunblaðið - 12.11.2016, Page 47
kemur inn í öðrum hlutanum, af- skaplega „íslenskur“ í þessum eyr- um alltént (og á undarlegan hátt því afar róandi. Eitthvað heimilislegt við hann). Þriðji hlutinn er líklega hvað áhrifamestur en þar setur Kjartan sitt fangamark á með af- gerandi hætti. Meginmelódían sem er kynnt í upphafi, kvikmyndaleg nokk, er afar hrífandi, melankólísk og hjartatosandi. Kór og hljómsveit koma svo saman í lokahlutanum, framvinda öll hæg, örugg og ákveð- in sem fyrr og áhrifin eftir því. Í eyrum virkar þetta því af- skaplega vel og tónlistin stendur keik og klár utan heildarverksins. Einhverjir væru kannski til í að slægjast eftir vísbendingum um bakgrunn Kjartans sem einn af meðlimum Sigur Rósar en þær eru varla þarna, ef þá að neinu marki. Og í raun fer lítt fyrir popparfleifð- inni, nema hugsanlega að mel- ódíunæmi Kjartans hafi grætt eitt- hvað á því. Það má líka vel taka þessar spurningar lengra og hlusta á tón- listina sem „viljandi ýkta“ enda var það upplegg sýningarinnar sem fæddi tónlistina af sér. Anna Jóa, myndlistarrýnir Morgunblaðsins, sagði á sínum tíma að með Der Klang der Offenbarung des Gött- lichen væri verið að „varpa fram ögrandi spurningum en af einlægni, sem þó er krydduð spaugi“, og er það nokkuð nösk lýsing. Sjálfur sagði Kjartan, og ég sé hann svo vel fyrir mér, að tónlistin væri „svona poppmúsík með strengjasveit og kór, og smá glimmeri“. En í hinu stóra samhengi skiptir þetta allt litlu. Tónlistin stendur einfaldlega, hún virkar, ýfir upp gæsahúð og þá er tilganginum, eða a.m.k. vissum tilgangi, náð. »Einhverjir værukannski til í að slægjast eftir vísbend- ingum um bakgrunn Kjartans sem einn af meðlimum Sigur Rósar en þær eru varla þarna, ef þá að neinu marki. Fallegur Kjartan Sveinsson tónskáld stígur fram sem sólólistamaður með áhrifamiklu verki. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Leikritið Ævisaga einhvers verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.30. Það er sjálfstæði leikhópurinn Kriðpleir sem segir sögur af venju- legum Íslendingum. Leikhópurinn samanstendur af þeim Árna Vilhjálmssyni, Friðgeiri Einarssyni, Ragnari Ísleifi Braga- syni og Bjarna Jónssyni. Í sýning- unni sér Guðmundur Vignir Karls- son um vídeó og hljóðmynd. Kriðpleir hefur áður sett á svið fjórar sýningar sem þóttu mjög góð- ar og hafa þeir hlotið þrjár tilnefn- ingar til Grímunnar. Sýningar á Ævisögu einhvers verða fjórar, sú síðasta 23. nóvember. Merkingarlaust nafn Leikhópurinn Kriðpleir hefur starfað saman í nokkur ár. „Upphaf- ið má rekja til sýningarinnar Blokk sem ég setti upp heima hjá mér, þar vorum við að vinna saman, ég, Ragn- ar og Bjarni,“ segir Friðgeir sem lærði fræði og framkvæmd í Lista- háskólanum. „Ég byrjaði fljótlega eftir útskrift að starfa með leik- hópum og vinnum við oft handrit og sýningu samhliða,“ segir Friðgeir. Spurður um nafn leikhópsins segir hann það ekki merkja neitt. „Alger merkingarleysa og þýðir ekki neitt, var einhvern tímann afbökun á nafn- inu Friðgeir.“ Að segja ævisögu hvers sem er Í sýningunni fjalla þeir um ís- lenska ævisagnahefð og freista þess að segja sögur venjulegra Íslend- inga, fólksins sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. Friðgeir segir þá alla fjóra hafa samið verkið en þrír þeirra koma fram á sviðinu. „Við leggjum allir til efni og hug- myndir. Bjarni, sem er yfirleitt leik- skáld, tekur svo textann og raðar honum upp,“ segir hann. „Hugmyndin var upphaflega að fjalla um þennan gífurlega áhuga sem Íslendingar hafa á ævisögum. Manni líður stundum eins og hver einasti Íslendingur gefi út ævisögu sína. Okkur langaði að segja ævi- sögu hvers sem er. Við tókum viðtöl við fullt af fólki og byggjum þessa sýningu á þessum viðtölum. Við mið- um ekki endilega á stóru atburðina heldur frekar á litlu atriðin,“ segir hann. Hittu þeir fjölda manns til að viða að sér efni. „Við misstum töluna en það voru tekin um hundrað viðtöl. Við vorum að reyna að kortleggja ævi fólks með spurningum eins og hver er fyrsta minningin, hvernig finnst þér pabbi þinn, hvað er mikil- vægasti hlutur sem þú átt, hvað ger- ir þú fyrst á morgnana,“ útskýrir Friðgeir. „Sumt notuðum við sem innblástur og annað sem beinan texta.“ Að upphefja það venjulega Hvernig er hægt að gera skemmtilegt leikrit úr leiðinlegum hversdagslegum atburðum? „Já, einmitt, það var einmitt ákveðið vandamál sem sýningin fer að snúast s volítið um. Það er ekkert áhugavert við það sem er hversdags- legt. Við beitum ýmsum ráðum til að reyna að upphefja það,“ segir Frið- geir. Hann segir húmorinn ekki langt undan. „Þetta er fyndið en ekkert endi- lega hugsað sem farsi. Allar okkar sýningar hafa þótt nokkuð fyndnar og við höfum stundum viljandi reynt að vera fyndnir og þessi sýning er mjög húmorísk. En okkur finnst hún hafa einhvern undirtón. Hún fjallar um vegferðina í gegnum lífið og þá kannski okkar vegferð. Og hún fjallar um upphafningu hins hvers- dagslega,“ segir hann. „Í sýningunni er sögð undirliggj- andi saga en hún byggist á brota- kenndum samsetningum. Það er sýnt aðeins inn í ferlið um gerð sýn- ingarinnar og sagan er einhvers konar tilfinningalegt ferðalag,“ segir Friðgeir. „Hin dæmigerða ævi fer að flækjast fyrir okkur, lífið er alltaf ei- líft stúss.“ asdis@mbl.is Lífið er eilíft stúss  Nýtt leikrit leikhópsins Kriðpleir frumsýnt í kvöld  Ævisaga einhvers segir ævisögur venjulega fólksins Morgunblaðið/Ásdís Ævisaga Frið- geir Einarsson, Bjarni Jónsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Guðmundur Vignir Karlsson í Tjarnarbíói. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Fim 24/11 kl. 20:00 121.s Lau 3/12 kl. 20:00 127.s Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Fös 25/11 kl. 20:00 122.s Sun 4/12 kl. 20:00 128. s Fim 17/11 kl. 20:00 117.s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s Fim 8/12 kl. 20:00 129. s Fös 18/11 kl. 20:00 118.s Sun 27/11 kl. 20:00 124.s Fös 9/12 kl. 20:00 130. s Lau 19/11 kl. 20:00 119.s Fim 1/12 kl. 20:00 125.s Lau 10/12 kl. 20:00 131. s Sun 20/11 kl. 20:00 120.s Fös 2/12 kl. 20:00 126.s Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn Lau 26/11 kl. 13:00 16.sýn Sun 4/12 kl. 13:00 19.sýn Sun 13/11 kl. 13:00 14.sýn Sun 27/11 kl. 13:00 17.sýn Lau 10/12 kl. 13:00 20.sýn Sun 20/11 kl. 13:00 15.sýn Lau 3/12 kl. 13:00 18.sýn Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Njála (Stóra sviðið) Mið 16/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00 Mið 7/12 kl. 20:00 Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðustu sýningar. Extravaganza (Nýja svið ) Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn Fös 18/11 kl. 20:00 9.sýn Mið 16/11 kl. 20:00 auka. Lau 19/11 kl. 20:00 10.sýn Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur - síðustu sýningar Jólaflækja (Litla svið) Lau 26/11 kl. 13:00 Frums Lau 3/12 kl. 13:00 3. sýn Sun 11/12 kl. 13:00 6. sýn Sun 27/11 kl. 13:00 2. sýn Sun 4/12 kl. 13:00 4. sýn Sun 27/11 kl. 15:00 aukas. Lau 10/12 kl. 13:00 5. sýn Bráðfyndin jólasýning fyrir börn Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 30/11 kl. 20:00 aukas. Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Fim 24/11 kl. 20:00 aukas. Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas. Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn Aðeins þessar sýningar. Ósóttir miðar seldir samdægurs. Jesús litli (Litli svið ) Fim 1/12 kl. 20:00 2. sýn Fim 8/12 kl. 20:00 4. sýn Lau 10/12 kl. 20:00 aukas. Fös 2/12 kl. 20:00 3. sýn Fös 9/12 kl. 20:00 5. sýn Sun 11/12 kl. 20:00 6. sýn Margverðlaunuð jólasýning Salka Valka (Stóra svið) Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó umfram allt saltfiskur... Da Da Dans (Nýja svið ) Lau 12/11 kl. 20:00 Frums. Sun 20/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 5.sýn Fim 17/11 kl. 20:00 2.sýn Fim 24/11 kl. 20:00 4.sýn Íslenski dansflokkurinn Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 29.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 27/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 30.sýn Fös 18/11 kl. 19:30 25.sýn Fös 2/12 kl. 19:30 28.sýn Sun 11/12 kl. 19:30 31.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Fös 25/11 kl. 19:30 27.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 31.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 26/11 kl. 19:30 28.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 32.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 25.sýn Sun 27/11 kl. 19:30 29.sýn Sun 11/12 kl. 19:30 33.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 30.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Horft frá brúnni (Stóra sviðið) Lau 19/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 25/11 kl. 19:30 13.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 14.sýn Sýningum lýkur í desember Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 12/11 kl. 13:00 Lau 19/11 kl. 13:00 Sun 20/11 kl. 13:00 Lau 12/11 kl. 15:00 Lau 19/11 kl. 15:00 Sun 20/11 kl. 15:00 Sýningum lýkur í nóvember! Óþelló (Stóra sviðið) Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 6.sýn Mán 26/12 kl. 19:30 Hátíðarsýning Lau 14/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 7.sýn Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 8.sýn Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00 Mið 30/11 kl. 20:00 Fös 18/11 kl. 20:00 Fös 25/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið) Sun 13/11 kl. 19:30 33.sýn Fim 24/11 kl. 19:30 34.sýn Fim 1/12 kl. 19:30 35.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan) Lau 19/11 kl. 15:00 Þri 22/11 kl. 11:00 Keflavík Fim 24/11 kl. 10:00 Sandgerði Mán 21/11 kl. 13:00 Keflavík Mið 23/11 kl. 9:00 Grindavík Lau 26/11 kl. 13:00 Þri 22/11 kl. 9:00 Keflavík Mið 23/11 kl. 10:30 Grindavík Lau 26/11 kl. 15:00 Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 4/12 kl. 11:00 Lau 17/12 kl. 11:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Lau 17/12 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 10/12 kl. 11:00 Sun 18/12 kl. 11:00 Sun 27/11 kl. 13:00 Lau 10/12 kl. 13:00 Sun 18/12 kl. 13:00 Lau 3/12 kl. 11:00 Sun 11/12 kl. 11:00 Lau 3/12 kl. 13:00 Sun 11/12 kl. 13:00 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.