Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 52

Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 52
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2016 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Munaði 100 þúsundum að kaupa … 2. Starfsmönnum Debenhams sagt upp 3. „Lifað í hræðslu í eitt og hálft ár“ 4. Í sinni fimmtu eggjagjöf  Góðgerðarsýning verður á fjöl- skyldusýningunni Hvítt í Hafnarhús- inu í dag, laugardag, kl. 13. Allur ágóði rennur til UNICEF á Íslandi til styrktar börnum í Sýrlandi. Guðni Th. Jóhannessson, forseti Íslands, er sér- stakur heiðursgestur sýningarinnar, sem hlotið hefur afar góðar viðtökur. Leikstjóri er Gunnar Helgason. Ljósmynd/Dagur Gunnarsson Hvítt sýnd til styrktar börnum í Sýrlandi  Svo vítt um heim sem sólin fer er yfirskrift tónleika í Krists- kirkju í Landakoti mánudagskvöldið 14. nóvember kl. 20. Þar flytur Hamrahlíðarkór- inn íslenska lof- söngva og friðarbænir. Meðal þeirra sem eiga verk á efnisskránni eru Jón Nordal, Þorkell Sigurbjörnsson, Hugi Guðmundsson og Páll Ísólfsson. Stjórnandi er Þorgerður Ingólfs- dóttir. Hamrahlíðarkórinn syngur í Kristskirkju  Hanna Dóra Sturludóttir messó- sópran og Gerrit Schuuil píanóleik- ari halda ljóðatónleika í Kaldalóni Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 17. Á efnisskránni er ljóðaflokkurinn Söngvasveigur opus 39 eftir Robert Schu- mann og Söngvar föru- sveins eftir Gustav Mahler. Ljóðatónleikar í Kaldalóni á morgun FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og suðvestan 10-18 m/s, hvassast suðaustantil og með norðurströndinni. Smá skúrir eða él, en léttir til austanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag Sunnan- og suðvestan 13-18 m/s og rigning, einkum sunnan- og vestantil og hiti 5 til 10 stig. Hvessir með skúrum eða slydduéljum um kvöldið, léttir til eystra og kólnar talsvert. Á mánudag Suðvestan 10-15 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri norð- austantil. Hvessir með slyddu eða rigningu sunnan- og vestantil um kvöldið. Hiti 0-5 stig. „Hún er liðsmaður. Er hörkuskytta og mjög góður varnarmaður en þekkir um leið takmörk sín. Hún er skynsamur leikmaður og kom upp úr starfi yngri flokka í Keflavík,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálf- ari kvennaliðs Keflavíkur í körfu- knattleik, um Ernu Hákonardóttur, sem kom til liðsins í sumar og hef- ur leikið vel á leiktíðinni. »2 Hörkuskytta og góður varnarmaður Stjarnan styrkti stöðu sína á toppi Domino’s-deildar karla í körfubolta í gær- kvöldi með sigri á Þór á úti- velli í Þorlákshöfn. Lokatöl- ur, 99:74. Stjarnan hefur þar með áfram tveggja stiga forskot á KR. Þá ráku Haukar af sér slyðruorðið með sigri á ÍR á heimavelli og lyftu sér af botnsvæð- inu. »2-3 Stjarnan vann í Þorlákshöfn „Við munum alveg eftir þessum velli og þessu kvöldi fyrir þremur árum. Maður kom inn í klefann eftir leik og ég held að enginn hafi sagt orð í svona 20 mínútur. Þann- ig var það bara og von- andi komum við inn í klefann að þessu sinni í annars konar stemningu,“ segir Gylfi Þór Sigurðs- son, en hann leikur í dag með íslenska landsliðinu gegn Króötum á Maksim- ir-leikvanginn í Zag- reb í undankeppni HM. »1 Vonandi önnur stemn- ing eftir leikinn núna Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Körfuknattleikssamband Evrópu hefur samþykkt tillögu Hannesar S. Jónssonar, formanns Körfuknatt- leikssambands Íslands, um að kynn- ir fylgi hverju liði í úrslitakeppni Evrópumótsins í körfubolta, Euro- Basket 2017, rétt eins og gert var á Evrópumótinu í knattspyrnu í Frakklandi á liðnu sumri. Þar var Páll Sævar Guðjónsson kynnir á leikjum Íslands og gegnir hann sama hlutverki á leikjum Íslands í Finnlandi í september á næsta ári. „Öllum sem hlut eiga að máli þótti sniðugt að fara þessa leið og tillögu Hannesar var því sérlega vel tekið,“ segir Páll, sem að fenginni reynslu kom hugmyndinni á framfæri við Hannes. Að sögn Páls er hugmyndin að hafa skipulagið á EM í sumar til fyrirmyndar á EM á næsta ári. Rætt hafi verið um að kynnirinn gegni svipuðu hlutverki og í NBA- deildinni í Norður-Ameríku, tilkynni til dæmis hver skori, hver fái villu og hvað viðkomandi sé kominn með margar villur, þótt þessar upplýs- ingar birtist jafnóðum á skjá á vell- inum. „Hugsunin er að kynnirinn sé í beinu sambandi við áhorfendur, komi upplýsingum á framfæri til þeirra og geri þannig leikinn og upp- lifunina skemmtilegri,“ segir Páll. Byrjaði í körfunni Páll hefur verið „röddin“ í íslensk- um fótbolta í um aldarfjórðung. Hann byrjaði sem kynnir á heima- leikjum KR í körfubolta 1988 en tveimur árum síðar tók hann að sér sambærilegt starf á heimaleikjum KR í fótbolta og hefur verið á hvor- um tveggja vígstöðvum síðan. Hann hefur verið kynnir á heimaleikjum karlalandsliðsins frá 2000 auk þess sem hann hefur sinnt starfinu á kvennalandsleikjum, leikjum yngri landsliða og í bikarúrslitum karla og kvenna. Þegar KSÍ bauð Páli að vera kynnir á leikjum Íslands í Frakk- landi þurfti hann ekki að hugsa sig um tvisvar. „Upplifunin var engu lík, þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert og þegar ég heyri söng mótsins fer sæluhrollur um mig,“ rifjar Páll upp. „Ég hugsa stöðugt um þetta ævintýri, sem stóð yfir í einn mánuð, að vera mættur þremur tímum fyrir leik, koma upplýsingum til áhorfenda og finna gleðina og ánægjuna. Þetta er engu líkt. Eftir fyrsta leikinn á móti Portúgal sögðu strákarnir við mig: „Palli, það var frábært að heyra í þér í kerfinu.“ Þeir sögðu að það hefði gefið þeim ákveðinn kraft auk þess sem ég fann fyrir þakklæti úr öllum áttum. Það var hárrétt ákvörðun hjá UEFA að gera þetta með þessum hætti og ánægjulegt að FIBA Europe fari sömu leið.“ Návígið við fótboltastjörnurnar er Páli ofarlega í huga. Hann segir eftirminnilegt að hafa fylgst með Ronaldo fyrir leik Íslands og Portú- gals. „Leikmennirnir fara alltaf saman inn á völlinn en Ronaldo bað sína menn um að bíða í nokkrar sek- úndur á meðan hann baðaði sig einn í sviðsljósinu inni á vellinum.“ Hugsanleg skörun Körfuboltalandslið Íslands og Finnlands mætast í Helsinki laugar- daginn 2. september og fótbolta- landslið þjóðanna í Tampere um kvöldið. Þriðjudaginn 5. september tekur Ísland á móti Króatíu á Laugardalsvelli og skarast sá leikur hugsanlega við leik körfuboltalands- liðsins í Finnlandi. „Ég verð kynnir á leikjunum í Finnlandi og ef leikur- inn við Kósóvó sker úr um hvort Ís- land fer á HM í Rússlandi verð ég að sjálfsögðu líka í Laugardalnum, en þetta á allt eftir að koma í ljós,“ seg- ir Páll, sem eins og margir Íslend- ingar horfir á fótboltalandsleik Kró- atíu og Íslands í Zagreb í HM 2018 í beinni útsendingu sjónvarps í dag. Páll kynnir á EM í körfubolta  Körfuknattleikssamband Evrópu samþykkti tillögu KKÍ og Hannesar Á EM í Frakklandi Páll Guðjónsson var vallarkynnir Knattspyrnusambands Evrópu á leikjum Íslands og gegnir sama hlutverki á EM í körfubolta 2017.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.