Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Síða 4
4 Fréttir Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
6.590 kr.
m.vsk.
HVAR KAUPIR ÞÚ TÓNER?
Háskólinn á Bifröst
sektaður fyrir vanskil
n Ársreikningi skilað níu mánuðum of seint n „Misskilningur“ og „klaufagangur“
E
mbætti ríkisskattstjóra (RSK)
sektaði Háskólann á Bifröst
um 250 þúsund krónur síð
asta vor fyrir vanskil á árs
reikningi. Stjórnendur há
skólans skiluðu reikningnum, sem
er vegna reksturs hans á árinu 2013,
inn til RSK fyrir tveimur vikum
eða rúmum níu mánuðum eftir að
lokafresturinn rann út. Vilhjálmur
Egilsson, rektor háskólans, var ekki
kunnugt um vanskilin þegar DV
náði tali af honum en hann telur lík
legt að um misskilning hafi verið að
ræða.
„Ég stóð í þeirri meiningu að það
væri búið að skila þessu inn enda
ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu,“
segir Vilhjálmur og bætir við að
skólinn hafi nýverið ráðið nýjan fjár
málastjóra og skipt um endurskoð
anda.
Gátu lækkað sektina
Samkvæmt upplýsingum frá RSK
ættu stjórnendur háskólans að hafa
fengið áminningarbréf í ágúst í fyrra
og þeir hvattir til að skila ársreikn
ingnum inn. Rúmum mánuði síðar
sé boðuð fésekt vegna vanskila og að
sekt að heildarupphæð 250 þúsund
krónur sé lögð á hvert félag í janúar
hvert ár. Sektin sé lækkuð niður í 100
þúsund krónur sé hún greidd innan
60 daga. Ekki þurfi að óska sérstak
lega eftir lækkun heldur teljist inn
sending ársreiknings vera beiðni um
lækkun sektar.
Skúli Jónsson, forstöðumaður
fyrirtækjaskrár RSK, segir að emb
ættið tjái sig ekki um vanskil
einstakra félaga en staðfestir að RSK
hafi nú fengið ársreikning Háskól
ans á Bifröst fyrir árið 2013.
„Öll félög sem eru með starfsemi
en skila ekki þegar lokafresturinn
rennur út eru sektuð,“ segir Skúli,
spurður hvort háskólinn hafi í vor
verið sektaður fyrir vanskil.
Fær 300 milljónir frá ríkinu
Stjórnendur Háskólans á Bifröst skil
uðu ársreikningnum ekki inn fyrr en
tæpum sex mánuðum eftir að sekt
arákvörðunin lá fyrir. Vilhjálmur og
Hafsteinn Sæmundsson, fjármála
stjóri háskólans, könnuðust ekki við
að áminningarbréf eða sektarboð
hafi borist vegna vanskilanna.
„Ég held að þetta hafi einfaldlega
dregist vegna klaufagangs. Ég er nýr
í starfi hérna og sá fljótlega eftir að
ég kom hingað að þetta vantaði inn.
Ég held að þetta hafi ekki verið neitt
annað,“ segir Hafsteinn.
Háskólinn fær greidd
ar rúmar 300 milljónir
króna úr ríkissjóði í ár
samkvæmt fjárlögum.
Skólinn, sem kennir með
al annars námskeið í við
skiptafræði á borð við
reikningshald og rekstrar
hagfræði, er staðsettur
í Norðurárdal í Borgar
byggð. Samkvæmt síð
asta birta ársreikningi há
skólans var hann rekinn
með 23 milljóna króna
tapi árið 2012. Eignir
hans námu 503 milljónum króna en
stofnfé skólans hafði þá verið aukið
um rúmar tíu milljónir króna. n
Rektor Vilhjálmi Egilssyni, sem tók við
starfi rektors Háskólans á Bifröst um mitt
ár 2013, var ekki kunnugt um vanskilin þegar
DV náði tali af honum. Mynd GuðMunduR ViGFússon
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Ég held að
þetta hafi
einfaldlega dregist
vegna klaufagangs
P
áll Biering, dósent í geðhjúkr
unarfræði við Háskóla Ísland,
hefur lagt af stað í sendiför til
Djíbútí og Jemen, á vegum Al
þjóðaráðs Rauða krossins.
Verkefni Páls felast í að veita
sendifulltrúum og starfsfólki Al
þjóðaráðsins í Jemen sálrænan
stuðning. Einnig er Páli ætlað að
meta þörf starfsfólksins fyrir sálfé
lagslegum stuðningi og setja fram til
lögur um frekari eflingu slíks starfs,
sé þess þörf.
Hörð átök hafa geisað í Jemen síð
an í mars á þessu ári er borgarastríð
braust þar út. Í höfuðborginni Sana,
Aden og fleiri borgum í Jemen hafa
átökin haft áhrif á líf fleiri einstak
linga en þeirra er standa í deilum og
hafa saklausir borgarar þurft að súpa
seyðið af átökunum.
Sameinuðu þjóðirnar telja að
hátt í 3.000 manns hafi þegar fallið í
átökunum og er rúmlega helmingur
látinna saklausir borgarar.
Páll er þriðji íslenski sendifulltrú
inn sem fer til Jemen og er þetta önn
ur för hans á vegum Rauða krossins.
Fyrir þremur árum vann hann að
svipuðum verkefnum í Nígeru á veg
um stofnunarinnar. n
birna@dv.is
Páll Biering á leið til átakasvæða
Í sendiför til Afríku
Leggur í langferð
Páll Biering er dósent í
geðhjúkrunarfræði.
Um 300 manns
missa vinnu
Acta vis til kynnti í gær að
ákvörðun um að færa fram
leiðslu lyfja verk smiðjunn ar á
Íslandi til annarra fram leiðslu
ein inga sam stæðunn ar hefði
verið tekin. Ákvörðunin sé tekin
í hagræðingarskyni en um 300
starfsmenn fyrirtækisins koma
til með að missa vinnuna þegar
verksmiðjunni í Hafnarfirði verð
ur lokað fyrir fullt og allt um mitt
ár 2017. Önnur starf semi fyrir
tækisins á Íslandi verður óbreytt.
Þá eru hér á landi höfuðstöðvar
Med is, dótt ur fé lags fyr ir tæk is ins,
sem sel ur lyf og lyfja hug vit Acta
vis til annarra lyfja fyr ir tækja.
Costco opnað
í Kauptúninu
Forsvarsmenn bandarísku
verslanakeðjunnar Costco
munu undirrita kaupsamning
vegna tólf þúsund fermetra hús
næðis í Kauptúni 3 í Garðabæ.
Undirritunin fer fram 17. júlí
næstkomandi. Fast eign in er í
eigu fé lags ins Sýslu ehf., sem er
í eigu bræðranna Sig urðar Gísla
og Jóns Pálma sonar, sona Pálma
Jónssonar, stofnanda Hagkaups.
Samkvæmt frétt Mbl.is um mál
ið er stefnt að því að verslunin
verði um tólf þúsund fermetrar
að stærð og í þeim hluta Kaup
túnsins sem nær frá húsgagna
versluninni Tekk Company og
að Bónus.