Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Síða 12
12 Fréttir Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
K
veikt var í Pajero-jeppa
á Álftanesi á sunnudags-
kvöldið og er bíllinn
gjörónýtur. Eigandi
jeppans er Benjamín Þór
Þorgrímsson, kallaður Benni
Ólsari, en nafn hans hefur oft kom-
ið við sögu í fréttum undanfarin ár.
Benni tekur atburðinum af rósemi
og segist í samtali við DV láta lög-
regluna um að rannsaka málið.
„Þetta er nokkurra milljóna
króna tjón. Þetta er Pajero-jeppi og
ég var búinn að láta breyta honum
fyrir 1.700 þúsund krónur þannig
að þetta er verulegt tjón. Ég skuld-
aði auk þess mjög lítið í honum. Ég
bíð bara rólegur og læt lögregluna
um að rannsaka málið. Það er
rétti farvegurinn fyrir svona mál.
Annars finnst mér verst hvað þetta
er mikið tjón fyrir tryggingarnar.“
Varð fyrir fólskulegri
líkamsárás í vetur
Benni er í sambúð og starfar sem
einkaþjálfari hjá Sporthúsinu í
Kópavogi. Hann hefur getið sér
mjög gott orð fyrir störf sín sem
einkaþjálfari og segist sjálfur vilja
lifa friðsömu og uppbyggilegu lífi.
Í vetur var nafn Benna í fréttum
vegna fólskulegrar líkamsárásar
sem hann varð fyrir og átti sér stað
fyrir utan vinnustað hans, Sport-
húsið.
Fimm hettuklæddir menn réð-
ust þá á hann vopnaðir kylfum.
Ástæða árásarinnar var sögð vina-
tengsl Benna við mann sem árásar-
mennirnir töldu sig eiga í útistöð-
um við.
Líkamsárásin frá því í vetur er
enn í rannsókn. Benni vill ekki
draga neinar ályktanir varðandi
tengsl þessara mála, segist einfald-
lega treysta lögreglunni til að rann-
saka þessi mál þó að óneitanlega
þætti honum betra ef rannsóknin
gengi hraðar fyrir sig.
Bílbruninn í rannsókn
Að sögn Bjarna Ólafs Magnússonar
lögreglufulltrúa er bílbruninn á
Álftanesi í rannsókn en að öðru
leyti verst lögregla allra frétta um
málið. Niðurstöður tæknirann-
sóknar vegna brunans liggja enda
ekki fyrir. n
KveiKt í jeppa
Benna Ólsara
n „Ég bíð bara rólegur og læt lögregluna um að rannsaka málið“ n Nokkurra milljóna tjón
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Benni Ólsari
Benni hefur getið
sér gott orð sem
einkaþjálfari
undanfarin ár. Í
vetur varð hann
fyrir fólskulegri
líkamsárás og um
helgina var kveikt
í jeppanum hans.
Mynd Sigtryggur Ari
JÓhAnnSSon
„Þetta er Pajero-jeppi
og ég var búinn að láta
breyta honum fyrir 1.700
þúsund krónur þannig að
þetta er verulegt tjón
Alþingi minntist Péturs H. Blöndal
Forseti Alþingis flutti minningarorð um þingmanninn fyrrverandi
E
inar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, flutti minningarorð um
Pétur H. Blöndal, fyrrverandi
þingmann Sjálfstæðisflokksins,
í þinginu í gær. Fór Einar þá yfir störf
Péturs sem þingmaður og lífshlaup
hans sem lauk síðasta föstudag. Að
því loknu reis þingheimur úr sætum
sínum til að minnast þingmannsins.
„Í öll um störf um sín um var Pét ur
H. Blön dal fá dæma vinnu sam ur og
sam visku sam ur. Hann naut þing-
mennsk unn ar, var bar áttuglaður og
lagði oft að baki lang an vinnu dag.
Hann upp skar virðingu fyr ir dugn-
að og sérþekk ingu meðal ann ars á
sviði stærðfræði, trygg inga fræði, í
efna hags mál um og fjár mál um al-
mennt, og ekki síður fyr ir heiðar-
leika sinn og hófstillta og sann gjarna
fram göngu í umræðum, bæði í þing-
söl um og í nefnd um Alþing is, sem
aflaði hon um vin sælda utan og inn-
an þings,“ sagði Ein ar í ræðu sinni.
Pétur var fæddur í Reykjavík 24.
júní 1944. Hann lauk doktorsprófi
frá Kölnarháskóla og starfaði með-
al annars sem forstjóri Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna og fram-
kvæmdastjóri Kaupþings áður en
hann settist á þing árið 1995. Bana-
mein hans var krabbamein en Pétur
lést í faðmi fjölskyldunnar.
„Hann upp skar virðingu fyr ir
dugnað og sérþekk ingu meðal ann-
ars á sviði stærðfræði, trygg inga fræði,
í efna hags mál um og fjár mál um al-
mennt, og ekki síður fyr ir heiðar-
leika sinn og hófstillta og sann gjarna
fram göngu í umræðum, bæði í þing-
söl um og í nefnd um Alþing is, sem
aflaði hon um vin sælda utan og inn-
an þings. Við alþing is menn kveðjum
nú ær leg an og góðan fé laga og ákaf-
lega minn is stæðan mann sem við öll
sökn um á þess ari stundu,“ sagði for-
seti Alþingis. n Látinn Pét ur H. Blön dal, þingmaður Sjálf stæðis flokks ins, lést á föstu dags kvöldið, 71 árs að aldri.
Minntist Péturs Einar K. Guðfinnsson,
forseti Alþingis, flutti minningarorð um Pétur
H. Blöndal á Alþingi í gær. Mynd Sigtryggur Ari