Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Page 22
Vikublað 30. júní –2. júlí 201518 Sport 10 stærstu laxarnir 4 Neymar Aldur: 23 ára Félag: Barcelona Með samning til: 2018 Virði: 90–99 milljónir evra n Vonarstjarna Brasilíumanna stendur undir væntingum. Hann hefur skorað 31 mark í 59 leikjum fyrir Barcelona og myndar með Luis Suárez og Lionel Messi eitthvert öflugasta sóknarþríeyki knattspyrnusögunnar. Neymar er, þótt hann sé ungur að árum, fyrirliði brasilíska landsliðsins og mun sjálfsagt vera á topp tíu-listanum næstu árin, hið minnsta. Aldur: 30 ára Félag: Real Madrid Með samning til: 2018 Virði: 113–125 milljónir evra n Ronaldo er orðinn þrítugur en er enn einn sá albesti í heimi. Aldurinn spilar hins vegar kannski einhverja rullu í því að hann nái því ekki að vera hálfdrættingur á við Messi hvað verðmæti varðar. Ronaldo hefur í tvígang verið kjörinn besti leikmaður heims og í tvígang hefur hann hafnað í öðru sæti, á eftir Messi sjálfum. Hann virðist ekki á leið frá Madrid. n Tíu verðmætustu knattspyrnumenn heims samkvæmt CIES 2 Eden Hazard Aldur: 24 ára Félag: Chelsea Með samning til: 2020 Virði: 135–149 milljónir evra n Þessi ungi Belgi er fyrsti leikmaðurinn í mörg herrans ár til að skjótast upp á milli Messi og Ronaldo. Hazard er rísandi stjarna og hefur sýnt frábæran leik eftir að Mourinho tók við Chelsea. Belginn mun væntanlega skemmta knattspyrnuunnendum næsta áratuginn eða svo – og er ekki á leið frá Chelsea í bráð. 1 Lionel Messi Aldur: 27 ára Félag: Barcelona Með samning til: 2018 Virði: 255–281 milljón evra n Um þetta þarf svo sem ekkert að fjölyrða. Messi hefur um árabil verið besti leikmaður heims og er metinn á hátt í 40 milljarða íslenskra króna. Það er með ólíkindum að einn knattspyrnumaður sé verðmetinn svo hátt. Messi er handhafi fjögurra Ballon d'Or-verðlauna, og hefur verið í fyrsta eða öðru sæti í vali á besta manni heims síðustu fimm árin. 3 Cristiano Ronaldo Cech í Arsenal Landsliðsmarkvörður Tékklands, Petr Cech, er genginn í raðir Arsenal. Hann hefur þar með yfirgefið herbúðir Chelsea. Talið er að kaupverðið hlaupi á 11 milljónum punda en fyrir Chelsea hefur Cech spilað meira en 400 leiki. „Hann hefur margsannað að hann er einn besti markvörður heims,“ lét Arsene Wenger knattspyrnustjóri hafa eftir sér við kaupin. Norðmenn í fyrsta leik Ísland hefur leik gegn Noregi í B-riðli Evrópumótsins í hand- knattleik, sem fram fer í Póllandi í janúar á næsta ári. Leikurinn fer fram þann 15. janúar. Tveim- ur dögum síðar mæta Íslendingar Hvít-Rússum en lokaleikur riðils- ins verður gegn Króötum. Fyrsti leikur gestgjafanna verð- ur gegn Serbíu en þjóðirnar leika ásamt Makedónum og Frökkum í A-riðli. Landsliðsmenn skipta um lið Eiður Smári á leið til Kína og Kári til Malmö K nattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen flýgur í dag út til Kína til að skoða að- stæður hjá liði í kínversku úr- svalsdeildinni. Þetta staðfestir hann í samtali við DV. Eiður Smári lék vel með Bolton á Englandi í vetur og hafði lýst yfir áhuga á að vera um kyrrt hjá liðinu. Þau plön gætu verið að breytast. Annar landsliðsmaður, Kári Árna- son, sem leikið hefur í neðri deildum Englands frá árinu 2009, hefur samið við sænska félagið Malmö. Vísir hef- ur eftir Kára að hann sé afar ánægður með vistaskiptin. „Þetta er virkilega flott félag sem er orðið það stærsta á Norðurlöndum. Ég er sáttur með allt og þetta lítur bara ágætlega út.“ Kári hefur verið máttarstólpi íslensku varnarinnar undanfarin ár. n baldur@dv.is Á leið út Eiður Smári ræðir við kínverskt lið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.