Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Page 26
Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
Súðarvogur 3-5, reykjavík
gluggagerdin@gluggagerdin.iS
S: 5666630 / gluggagerdin.iS
HverS vegna að
velja Sprota HúS:
Sprota HúS
Sprota húsin eiga sér rætur í
byggingarsögulegum menningararfi
íslands, samspil manngerðs umhverfis
og náttúru skapa góða upplifun þegar
vandað er til verka.
Sprota húsin eru einlyft með mikinn
þakhalla, 45°, sem eykur
nýtingarmöguleika rissins.
Sprota húsin leitast við að láta arf liðins
tíma njóta sín í útliti, gæða
byggingarefni og vönduð vinnubrögð
tryggja góða útkomu.
22 Menning
Rokkorgía í herstöðinni
Indí og ágeng jaðartónlist verður í aðalhlutverki á ATP Iceland sem fer fram um helgina
T
ónlistarhátíðin All Tomorrow
Parties – Iceland hefst í
gömlu NATO-herstöðinni
við Ásbrú í Reykjanesbæ á
fimmtudag. Dagskráin hef-
ur líklega aldrei verið veglegri.
Fyrir aðdáendur indírokks
og ágengrar jaðartónlist-
ar er hátíðin sannköll-
uð veisla, þótt fáir
þeirra listamanna
sem koma fram hafi
kannski ratað í plötu-
safn pöpulsins.
Meðal þess sem
verður á boðstólum í ár
eru pönkafinn Iggy Pop,
pólitísku rappgoðsagn-
irnar í Public Enemy, skoska
krúttpoppsveitin Belle & Sebastian,
síðrokkhetjurnar í Goodspeed You!
Black Emperor, hávaðarokkararnir í
Swans, skóglápssveitin Loop og 90‘s
emó-rokkararnir í Drive Like Jehu
sem hafa snúið aftur eftir 20 ára hlé.
En það eru ekki bara gamlir rokk-
hundar sem koma fram, meðal yngri
listamanna sem óhætt er að mæla
með eru Run the Jewels, Chelsea
Wolfe, Iceage og Lightning Bolt.
Náin tengsl áhorfenda og
listamanna
Fyrsta All Tomorrow Parties-há-
tíðin (nefnd eftir lagi bandarísku
rokksveitarinnar The Velvet Under-
ground) var haldin fyrir tæpum
fimmtán árum á suðausturströnd
Bretlands. Hugmyndin var að skapa
mótvægi við risatónlistarhátíðir á
borð við Glastonbury. Sérstök áhersla
var lögð á náin tengsl listamanna og
áhorfenda, enga aðkomu stórfyrir-
tækja auk strangrar tónlistarlegrar
gæðastjórnunar. Í aðdraganda hverr-
ar hátíðar fengu skipuleggjendur
virta listamenn eða tónlistarspek-
úlanta til að sinna hlutverki listrænna
stjórnenda og velja sínar uppáhalds-
sveitir til að spila.
Í stað þess að hátíðin stækkaði og
yrði fjölmennari ár frá ári var ákveðið
að halda fleiri litla viðburði á fleiri
stöðum, byggða á sömu hugmynda-
fræði. Regnhlífasamtök All Tomorrow
Parties hafa staðið fyrir fjölda við-
burða, tónleika og tónleikahátíða
undanfarin 15 ár í Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Ástralíu og Íslandi.
Bedroom Community og Rás 2
listrænir stjórnendur
ATP Iceland var haldin í fyrsta skipti
árið 2013 í gömlu herstöðinni að Ás-
brú. Þar sem hátíðin var þá þegar
orðin þekkt nafn í hinum alþjóð-
lega jaðartónlistarheimi tókst að laða
fjölda erlendra gesta á hátíðina strax
á fyrsta ári. Í fyrra komu um tveir
þriðju hlutar miðakaupenda, um tvö
þúsund talsins, erlendis frá.
Hátíðin stendur yfir í þrjá daga og
fer dagskráin fram á tveimur svið-
um, aðalsviðið, Atlantic Studios, er í
flugskýli herliðsins og smærra sviðið,
Andrews Theatre, gegndi áður hlut-
verki kvikmyndahúss bandarískra
íbúa svæðisins. Þá munu plötusnúð-
ar leika fyrir dansi fram eftir nóttu
í Offiseraklúbbnum. Auk tónlist-
ar fer fram leiðsögn um svæðið og
kvikmyndasýningar. Þeir sem gegna
hlutverki listrænna stjórnenda á há-
tíðinni í ár eru breiðhyltski útgáfufé-
lagsskapurinn Bedroom Community,
sem stýrir dagskránni í Andrews
Theatre á föstudag og dagskrár-
gerðarfólk Rásar 2 sem stýrir dag-
skránni í kvikmyndahúsinu á laugar-
dag. Enn eru til miðar á ATP, bæði
helgarpassar og miðar á staka daga
og má nálgast þá á midi.is n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Úlfur úr Oyama
mælir með
Lightning Bolt
„Ég ætla pottþétt
að sjá Lightning
Bolt á laugardag af
því að þeir eru með
rugl live performance:
bara bassi, trommur og heill veggur af
gítarmögnurum.“
n Oyama spila í Atlantic Studios klukkan
14.00 á föstudag.
Curver úr Ghosdigital
mælir með Public Enemy, Loop, The
Bug, Lightning Bolt og Swans
Public Enemy er efst á lista
hjá mér. Lang beittasta
rappsveit fyrr og síðar.
Mér finnst í rauninni
bara óraunverulegt
að hún sé að fara að
spila hérna á Íslandi.
Þetta er eitthvað sem
allt áhugafólk um hiphop
ætti ekki að missa af. Svo er Loop ein af
mínum uppáhalds hljómsveitum. Hún
mótaði mig mikið á yngri árum og er ein
af fáum gítarrokksveitum sem ratar undir
nálina hjá mér í dag. Kevin Martin sem kallar
sig The Bug er goðsagnakenndur pródúser
sem hefur haft mikil áhrif á mig og svo eru
Lightning Bolt alltaf flottir. Þetta er í raun
alveg ótrúlegt line-up á þessari hátíð og við
í Ghostigital erum ótrúlega spenntir að spila
á eftir The Swans. Nú er bara að vona að þeir
mæti loksins. Allt er þegar þrennt er.
n Ghostigital spila í Atlantic Stusios klukkan
24.00 á laugardagskvöld.
Ólafur úr Staf-
rænum Hákoni
mælir með Bardo
Pond og The
Field
ATP er stórmagnað
fyrirbæri, það vita
allir sem hafa þrútna
ökkla. Alls ekki að missa af Bardo Pond og
The Field.
n Stafrænn Hákon spila í Atlantic Studio
klukkan 14.45 á fimmtudag.
Pink Street Boys
mæla með The
Bug og Iggy
Pop
The Bug er
maður sem við
höfum hlustað
mikið á. Platan
hanns London Zoo
er full af þungavigta-
töktum. Hann var líka í Techno Animal
sem er álíka heavy. Við verðum líka að sjá
Iggy Rock, goðsögn í okkar pönkara heimi.
Vonandi verður hann ber að ofan.
n Pink Street Boys spila í Andrews Theare
klukkan 20.15 á laugardag.
Hrafnkell úr
Rythmatik
mælir með Belle
& Sebastian og
Rythmatik
Ég ætla klárlega að
sjá Belle & Sebastian.
Þau eru algjörir snillingar og The Life Pursuit
er ein besta plata sem ég hef heyrt. Svo
náttúrulega mæli ég einnig með að fólk kíkji
á Rythmatik, ég heyrði að þeir væru ágætir.
n Rythmatik spila í Andrews Theatre klukk-
an 23.15 á laugardag.
Tumi úr
Grísalappalísu
mælir með
Lightning Bolt og
Swans
Ég ætla að mæta á
Lightning Bolt á laugar-
deginum. Sá þá á ATP
í Bretlandi fyrir nokkrum árum og það var
alveg snarklikkað, ég held það væri óráðlegt
að láta tækifæri til að sjá þá kakófóníu aftur
úr greipum sér renna. Mjög gott trix að troða
hljóðnemanum sínum í sokk og teipa hann
við andlitið á sér, þá fer hann ekki langt. Ég
held að fleiri tónlistarmenn gætu tekið upp
þetta bragð með góðum árangri. Svo heldur
tryllingurinn áfram þegar Swans ætla loks-
ins að láta sjá sig seinna sama kvöld.
n Grísalappalísa spilar klukkan 20.15 í St.
Andrews Theatre á fimmtudag.
Tónlistarmennirnir mæla með