Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 10
Helgarblað 18.–21. september 201510 Fréttir stór- útsala allt að 70% afsláttur af vönduðum útihúsgögnum fyrir íslenskar aðstæður Kauptúni 3, 210 Garðabær | S. 771 3800 Opið: mán.-föS. 12-18 OG lau. 12-16 www.signature.is 56 WICKER COLLECTION 2015 MINESOTA YEAR WARRANTY GI_Cat2014_2_Wicker.indd 56 15-08-14 16:12 Ekki vitað hvað skal sniðgengið Liggur ekki fyrir hvaða ísraelsku vörur borgin kaupir E kki er vitað að svo stöddu hvaða ísraelsku vörur eða vöruflokkar verða hugsanlega sniðgengnir af Reykjavíkur­ borg. Borgarstjórn samþykkti í vikunni að fela skrifstofu borgar­ stjóra í samvinnu við innkaupadeild að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á vörum frá Ísrael meðan hernám Ísraels í Palestínu varir. DV spurðist fyrir um hvort vitað væri hvaða ísraelsku vörur það eru sem Reykjavíkurborg sé að kaupa og áhugi er fyrir að sniðganga. Þá hvaða vöruflokkar og helstu vörutegundir væri um að ræða og hvaða svið það væru sem helst yrði að breyta inn­ kaupastefnunni fyrir. „Það sem þú spyrð um er í skoðun og engin svör því tilbúin við því enn­ þá,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upp­ lýsingastjóri Reykjavíkurborgar, í svari við fyrirspurn DV. Vissulega felur hin samþykkta tillaga í sér að farið verði í að undirbúa og útfæra sniðgöngu borgarinnar á ísraelskum vörum og því ljóst að sérstök smáat­ riði málsins liggja ekki fyrir að svo stöddu. Samþykktin er á þessu stigi máls fyrst og fremst táknræn af­ staða gegn mannréttindabrotum ríkisstjórnar Ísraels gegn Palestínu­ mönnum. Tillagan var þó fjarri því óumdeild enda var hún samþykkt með 9 at­ kvæðum gegn 6 þar sem sjálfstæðis­ menn og Framsókn og flugvallarvinir greiddu atkvæði gegn henni. Í bók­ un sjálfstæðismanna er gagnrýnt að ekki liggi fyrir sannfærandi rök um að inngrip af þessu tagi skili miklum árangri og fullyrt að innkaupabann muni engin áhrif hafa í Palestínu. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Íslendingar hafa flutt inn vörur frá Ísrael fyrir á bilinu 700–800 milljónir á ári undanfarin ár. Árið 2012 var 20,9 prósent af innflutningi Íslendinga frá Ísrael grænmeti og ávextir, eða rúmlega 360 tonn. Mynd Bragi Þór JóSefSSon Tillagan samþykkt Björk Vil- helmsdóttir lagði fram tillöguna. Mynd SigTryggur ari „Þetta gengur ekki lengur“ Verið er að leggja upp í sambæri­ legan leiðangur á vinnumarkaði og á tíunda áratugnum þegar laun voru tuttugufölduð en kaup­ máttur jókst á sama tíma innan við eitt prósent. Allir eiga eftir að tapa á slíkri þróun þar sem skuld­ ir fólks og fyrirtækja stökkbreytast og atvinnufyrirtæki glatast. Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, í fréttabréfi samtakanna. Ekki sé rétti tíminn til að leita söku­ dólga en við blasi að þetta gangi ekki lengur. Hann bendir á að gerðar dómur um laun háskóla­ manna og hjúkrunarfræðinga hafi hleypt vinnumarkaðnum í uppnám. Hann hafi úrskurðað um launahækkanir sem eru langt umfram það sem samið var um í kjarasamningum SA í júní – þrátt fyrir að þeir samningar hafi falið í sér miklar launahækkanir. „Það vilja allir rétta sinn hlut og troðast fram fyrir í röðinni í stað þess að leggja sitt af mörkum til að skapa aðstæður þar sem all­ ir hagnast.“ Þorsteinn telur ljóst að hækk­ anir launa hafi ekki tekið mið af stöðu efnahagslífsins. „Ef við höldum áfram á sömu braut mun það skila fólki og fyrirtækjum minna en engu og skerða lífskjör á Íslandi í stað þess að bæta þau.“ Svarar kvörtuninni fimm árum síðar Umboðsmaður Alþingis ætlar að fjalla um kvörtun fjárfestisins Heiðars Guðjónssonar í næstu viku U mboðsmaður Alþingis ætlar að birta niðurstöður athug­ unar hans á tilteknum þátt­ um í starfsemi Seðlabanka Íslands í næstu viku og mun þá koma inn á kvörtun sem fjár­ festirinn Heiðar Guðjónsson sendi embættinu í nóvember 2010. Þetta staðfestir Tryggvi Gunnarsson, um­ boðsmaður Alþingis, í samtali við DV. Tryggvi vildi að öðru leyti ekki tjá sig efnislega um niðurstöðuna. Heiðar kvartaði vegna ákvörðunar Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) um að falla frá sölu á trygginga félaginu Sjóvá til Ursusar, fjárfestingafélags Heiðars, og annarra fjárfesta, árið 2010. Slæm reynsla Heiðar skrifaði í júní í fyrra aðsenda grein í Morgunblaðið þar sem hann ásakaði umboðsmann Alþingis um að hafa vanrækt skyldur sínar. Heið­ ar hafi, ásamt hópi fjárfesta, átt „lang­ hæsta“ tilboðið í opnu söluferli ESÍ á eignarhlut ríkisins í Sjóvá en fengið það svar í nóvember 2010 að ekki væri hægt að ganga frá viðskiptunum þar sem fyrirtæki hans væri til rann­ sóknar hjá gjaldeyriseftirliti bankans. Seðlabankinn hafi í kjölfarið kært Ursus til lögreglu en að málið hafi síðar verið fellt niður. „Á sama tíma og hann átelur stjórnvöld fyrir drátt á málsmeðferð og brot á málshraðareglum stjórn­ sýslulaga, dregur hann mikilsverð mál svo árum skiptir. Það getur vart talist trúverðugt. Reynsla mín gef­ ur mér ekki tilefni til að mæla með því við neinn, að hann láti reyna rétt sinn með kvörtun til umboðsmanns Alþingis,“ sagði Heiðar í grein sinni. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttar­ innar. Vildi bíða og sjá Tryggvi hefur sagt að athugun hans á máli Heiðars hafi beinst að ýmsum álitaefnum tengdum stjórnsýslu þeirra mála sem kvörtunin tekur til og því hafi embættið talið rétt að fylgjast með framvindu þeirra, meðal annars málum sem voru rakin fyrir dómstól­ um, áður en niðurstöðunni yrði skil­ að. Hann skrifaði svargrein til Heiðars, daginn eftir að grein fjárfestisins birt­ ist og hann greindi frá því að hann hefði stefnt Seðlabankanum vegna söluferlis Sjóvár og krafist bóta upp á rúma 1,4 milljarða króna, þar sem hann bað Heiðar afsökunar á þeim drætti sem hafði orðið á vinnslu máls­ ins. Benti hann jafnframt á að starfs­ menn embættisins hefðu þurft að tak­ ast á við mikla fjölgun nýrra kvartana frá árinu 2011 og að óskum um aukna fjármuni til að fjölga starfsfólki þess hefði ekki verið sinnt. „Í samskiptum mínum við fulltrúa Ursusar ehf. hef ég gert þeim grein fyrir að með tilliti til atvika í málinu og lagaumhverfis þess muni endan­ leg afgreiðsla mín á málinu öðru fremur snúast um almenn atriði við framkvæmd Seðlabanka Íslands á rannsóknum vegna meintra brota á reglum um gjaldeyrisviðskipti, þótt þar verði m.a. höfð hliðsjón af atvik­ um í máli félagsins,“ sagði Tryggvi í greininni. n Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is Ætlaði að klára málið í fyrra Tryggvi sagði í grein sinni í Morgunblað- inu þann 27. júní 2014 að hann gerði þá ráð fyrir að birta niðurstöðu sína þegar hann kæmi aftur til starfa 1. júlí það ár. Í viðtali við Morgunblaðið í febrúar síðastliðnum sagði Tryggvi: „Ég á von á því að ég geti lokið frum- kvæðisathugun minni alveg næstunni.“ Styttist í málalyktir Heiðar Guðjónsson kvartaði til Tryggva Gunnarssonar, umboðs- manns Alþingis, í nóvember 2010.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.