Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Síða 12
12 Fréttir Helgarblað 18.–21. september 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
AUDI A6 2,0 TDI nýskráður 03/2013, ekinn 48 Þ.km, 2,0 diesel, sjálfskiptur. 19” felgur og ný dekk, leður og alcantaraáklæði, Bluetooth,
Navigation, Stopp/start, Aux tengi, eyðsla aðeins 6L/100km innanbæjar. Lægra verð til leigubílsstjóra . Verð 7.890.000 kr. Raðnr. 254090
Gamli Straumur selur hlut sinn í West Ham
n Afskiptum ALMC af enska knattspyrnufélaginu lokið n Hluturinn bókfærður á rúman
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Ævintýrið á Upton Park
Heildarfjárfesting Björgólfs Guðmundssonar
og Eggerts Magnússonar í West Ham árið 2006
samsvaraði þá 14 milljörðum króna.
Í
slenska eignaumsýslufélagið
ALMC, áður Straumur-Burðar-
ás fjárfestingarbanki, seldi í
júní eignarhlut sinn í enska
knattspyrnufélaginu West Ham
United. ALMC seldi þá 75,6% hlut
í CB Holding, íslensku félagi sem
yfir tók West Ham í júlí 2009, sem á
nú 10% hlut í WH Holding Limited,
bresku móðurfélagi knattspyrnu-
félagsins. Lauk þá afskiptum
ALMC og forvera þess af West
Ham sem hófust fyrir sex árum
þegar kröfuhafar yfirtóku félagið
vegna lána sem Björgólfur Guð-
mundsson, fyrrverandi formaður
bankaráðs Landsbanka Íslands,
tók til kaupa á úrvalsdeildarliðinu
haustið 2006.
ALMC seldi hlutinn til lúxem-
borgska einkahlutafélagsins
Hoxton (Lux) S.á.r.l. sem sam-
kvæmt heimildum DV keypti
á sama tíma aðrar eignir í eigu
ALMC. Hlutur CB Holding í West
Ham var bókfærður á um sjö
milljónir punda, jafnvirði
1.378 milljóna króna, í
árslok 2014.
Söluverðið ekki
gefið upp
Brynjar Þór Hreinsson,
fráfarandi framkvæmda-
stjóri CB Holding og
stjórnarmaður í félaginu
fyrir hönd ALMC, baðst
undan viðtali þegar eftir því
var leitað og vísaði á nýjan
meirihlutaeiganda CB Holding,
Hoxton (Lux). Aðspurður svaraði
hann engu um hverjir eigend-
ur Hoxton (Lux) eru,
aðdraganda
sölunnar eða
söluverðið.
Fjögur
íslensk
fé-
lög eiga í dag samtals 24,4% í CB
Holding. Íslandsbanki er stærsti
hluthafinn með 9,3%. Þrotabú
Fjárfestingafélagsins Grettis, fyrr-
verandi fjárfestinga félags Björg-
ólfs Guðmundssonar, á 7,6% í CB
Holding og slitabú gamla Lands-
bankans (LBI hf.) á 4,6%. Þrotabú
Samson eignarhaldsfélags, sem
var í eigu feðganna Björgólfs og
Björgólfs Thors Björgólfssonar, á
2,9%.
Samkvæmt heimildum DV er
ekki litið á eignarhluti þessara
fjögurra félaga í CB Holding sem
söluvörur þessa stundina. Erfitt sé
að finna kaupendur miðað við nú-
verandi stöðu félagsins. CB Holding
er mjög skuldsett og eigið fé þess
er neikvætt. Félagið tapaði samtals
rúmum 19 milljónum punda, 3,7
milljörðum króna, á síð-
ustu þremur árum. Eign-
ir þess námu 27 millj-
ónum punda í árslok
2014 en skuldirnar 62
milljónum. Eigið fé félagsins
var því neikvætt um 35 milljónir
punda eða 6,9 millj-
arða króna.
Kostnaðarsamt ferli
„Það er mjög flókin skuldsetning á
félaginu og það hefur kostað tals-
vert að hafa þetta fyrirbæri lifandi
og verja kröfuna og verja hagsmuni
kröfuhafanna. Menn þurftu að
setja peninga inn í þetta til að
halda þessu öllu á lífi á sín-
um tíma. Það er vel tryggt
og ALMC hefur haldið vel á
öllum spilum,“ segir Lúð-
vík Örn Steinarsson, sem
situr í stjórn CB Holding
fyrir hönd þrotabús Fjár-
festingafélagsins Grettis,
í samtali við DV.
„Eina markmið hlut-
hafa er að fá eins mikið úr út
þessu félagi [CB Holding] og
kostur er. Þessi hlutur getur verið
einhvers virði en getur einnig ver-
ið lítils virði. Það fer allt eftir gengi
knattspyrnuliðsins,“ segir Lúðvík.
Eignir WH Holding voru metn-
ar á 111 milljónir punda, 22 millj-
arða króna, í maí 2014. Móðurfélag
knattspyrnufélagsins skuldaði þá
162 milljónir punda eða 32 millj-
arða króna. WH Holding
var rekið með 10 millj-
óna punda, tæplega
tveggja milljarða
króna, hagnaði
árið 2014. Félag-
ið hafði þá verið
rekið með tapi
síðan Björgólf-
ur og Eggert
Magnússon,
fyrrverandi
formaður
KSÍ, keyptu
West Ham í
nóvember
2006. n
Gamli Straumur Skilanefnd tók yfir rekstur Straums-Burðaráss í mars 2009 þegar hann hafði farið í greiðsluþrot. ALMC er í dag að mestu í
eigu erlendra fjárfesta og sjóðir á vegum bandaríska vogunarsjóðsins Davidson Kempner eru á meðal stærstu hluthafa eignaumsýslufélagsins.