Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 23
Helgarblað 18.–21. september 2015
miklu verri og hættu að geta gegnt
mikilvægu samfélagslegu hlutverki.
Ég kom til Argentínu og þar var mér
sagt að járnbrautakerfi sem hafið
var að útbúa í lok nítjándu aldar hafi
verið forsenda mikilla framfara í því
víðlenda og slétta landi – Argentína
er 28 sinnum stærri en Ísland. Fram
á miðja tuttugustu öld var Argent
ína í hópi vel stæðustu ríkja heims
ins, en pólitísk upplausn gerði sam
félagið næstum gjaldþrota. Um 1990
þegar einkavæðing var töfraorð
stjórnmálanna var svo járnbrauta
kerfið selt og afleiðingin var sú að
það hefur varla virkað síðan.
Hér á landi er stóra bölið auðvit
að einkavæðing auðlindanna – og
við getum þakkað Hruninu að sú
þróun gekk þó ekki lengra; ef túr
bókapítalisminn hefði fengið að
þróast óáreittur væri fyrir löngu búið
að selja eða gefa bæði Landsvirkjun
og Orkuveituna og öll þannig fyrir
tæki, ásamt auðlindunum sem þau
nýta.
Róttækar raddir og öðruvísi
Í þannig bulli er mikið gagn að
öfgamönnum; kommúnista
boðskap að hætti manna eins og
Einars Olgeirssonar, Gvendar jaka;
þarna hefði þurft fleiri raddir eins
og hennar Aðalheiðar Bjarnfreðs
dóttur. Og þar erum við held ég
að nálgast skýringar á uppdráttar
sýki vinstrihreyfingarinnar; við
þurfum að muna að það var rót
tæka og sérvitra og dálítið skrýtna
lessan Jóhanna Sig sem síðast vann
fyrir vinstrimenn sigur í alþingis
kosningum. Stjórnmálin hafa orðið
að einhvers konar meginstraumi
hægristefnunnar, farið að snú
ast um hver getur best rekið sam
félagið eins og fyrirtæki, þjónað
atvinnuvegum og markaðsöflum
– fyrir vikið gátu vinstrimenn þrátt
fyrir góðan meirihluta í mörg ár
ekkert brugðist við glæpsamlega
óréttinu sem fylgdi því að helstu
auðlindir höfðu verið gefnar fáum
útvöldum forréttindamönnum.
Það er augljós eftirspurn eftir
stjórnmálamönnum og pólitískum
öflum sem eru öðruvísi, ekki ein
hvern veginn eins og allt hitt. Það
varð auðvitað mjög áberandi þegar
Jón Gnarr og Besti flokkurinn buðu
fram, það sést líka á uppgangi
Píratanna nú um stundir. Björt
framtíð er komin með formann
sem ekki er úr hinni hefðbundnu
deiglu, heldur er þar kominn fyrst
og fremst hugsuður, pælari, bók
menntamaður, músíkant – pönk
ari. Og verður spennandi að sjá
hverju það skilar þeim. n
Umræða 23
Sykurlausar nýjungar
frá Läkerol!
Hefur þú smakkað?
Það vantar róttæka og flippaða stjórnmálamenn
Margaret Thatcher „Það er engin tilviljun að frjálshyggja eins og sú sem Thatcher-
stjórnin breska ástundaði fékk óáreitt að umbreyta samfélaginu.“