Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Qupperneq 31
Heimilið - Kynningarblað 7Helgarblað 18.–21. september 2015
Ljós og steinar
Einstök hönnun úr íslensku stuðlabergi
F
rumkvöðullinn Sölvi Steinarr
hafði lengi gengið með þá
hugmynd að gera eitthvað úr
hinu séríslenska stuðlabergi,
en Sölvi hefur unnið við jarð-
vinnu og yfirborðsfrágang í 35 ár og
býr því yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu á grjóti og efni til jarðvinnu.
„Hugmyndin var að hanna ljós úr
íslenskum efnivið sem hentaði vel
fyrir íslenskar aðstæður, væri sterkt,
viðhaldslítið, fallegt og félli vel að
umhverfinu. Ég vildi nota LED-
ljós og plexigler þar sem það leið-
ir ljós mjög vel og er sterkt efni,“ út-
skýrir Sölvi sem hafði samband
við steinsmiðjuna S. Helgason og
ljósaframleiðandann Flúrlampar.
„Þau tóku mjög vel í hugmyndina og
þá fóru hlutirnar fyrst að gerast.“ Þau
sendu síðan inn umsókn í Hönnunar-
mars 2013 og fengu inngöngu um
leið. „Síðan hefur eigin lega ekki verið
aftur snúið,“ segir Sölvi. Og það má
með sanni segja. Þessi hugmynd
Sölva þróaðist í vörulínuna Ljósberg
sem er samstarfsverk efni hans og
fyrrnefndra aðila.
Hágæðahráefni
Vörulínan Ljósberg hefur síðan þá
verið í stöðugri þróun og vexti, en
auk skrautljósana hafa þau einnig
hannað og framleitt bekki og borð
úr stuðlabergi og harðviði. Í þeirri
framleiðslu hafa þau verið í sam-
starfi við Geislatækni varðandi járn-
smíði. „Þetta hefur verið aukavinna
hjá okkur hjónunum og við kusum að
gera þetta hægt. Það er langhlaup að
koma svona vöru á laggirnar. En við
erum búin að undirbúa okkur mjög
vel,“ segir Sölvi, en aðilar í Noregi og
Danmörku hafa seinnig sýnt vöru-
línunni mikinn áhuga. „Ég vildi ein-
blína á sérstöðuna í stuðlaberginu
og vinna með það. Þetta er hágæða-
hráefni sem er mjög skemmtilegt
að vinna með. Það gefur svo marga
möguleika,“ segir Sölvi og bætir við
að það sé vissulega erfitt að vinna
með það. Þar hefur hann þó notið
góðs af samstarfi sínu við S. Helgason
sem er eini aðilinn á landinu með
réttu vélarnar fyrir stuðlabergið.
Fjölbreyttir möguleikar
Bergið er sagað eftir endilöngu, þvert
eða eftir óskum. Plexigler er sniðið
eftir útlínum bergsins og síðan er
búin til rauf í plexiglerið, u.þ.b. fimm
sentimetrum frá brún til að draga
LED-borðann í. Auðvelt er að skipta
um borðana en þeir eiga að duga í
u.þ.b. fimm ár. Plexiglerið er þá límt
á annan helminginn með tveggja
þátta lími og hinn helmingurinn svo
annaðhvort límdur þar ofan á eða
festur með tein-
um innan frá
svo það sjáist
ekki. Ljósberg
er hægt að nota
á ýmsu vegu,
t.d. til að lýsa
upp göngu-
stíga, afmarka
gönguleiðir,
sem hlið, loka
fyrir akstur,
setja út í tjarnir
eða í garða til
skrauts og svo
mætti lengi
telja. Vörur
Ljósbergs má
skoða í fal-
legum skrúð-
garði við
höfnina í Hafnarf-
irði sem heitir Sól-sýningargarður, en
þessi garður var sérstaklega gerður
til að sýna vörur fyrirtækja í íslenskri
hönnun og framleiðslu sem tengjast
yfirborðsfrágangi. n
Stuðlaberg Útiljós úr
íslenskum efnivið sem hentar
vel fyrir íslenskar aðstæður;
sterkt, viðhaldsfrítt, fallegt og
fellur vel að umhverfinu.
Í vatni Vörulínan Ljósberg er í stöðugri þróun og vexti.
Setberg Útibekkur úr stuðlabergi og harðviði.
Skrúðgarður Vörur Ljósbergs má skoða í fallegum skrúðgarði við höfnina í Hafnarfirði
sem kallast Sól-sýningargarður, en þessi garður var sérstaklega gerður til að sýna vörur
fyrirtækja í íslenskri hönnun og framleiðslu sem tengjast yfirborðsfrágangi.