Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 38
Helgarblað 18.–21. september 201530 Lífsstíll
n Ýmsir þættir spila inn í n Þetta segja vísindin
H
vað ræður því eiginlega að
hverjum við löðumst kyn-
ferðislega? Spurningin er
áhugaverð og svarið æði
flókið, því aðdráttarafl virð-
ist velta á samspili fjölmargra þátta.
Sumir þeirra eru líffræðilegir, aðrir
sálfræðilegir og enn aðrir tengjast fé-
lagslegu umhverfi okkar. Hér eru tíu
áhugaverð atriði sem vísindamenn
hafa komist á snoðir um í rannsókn-
um á aðdráttarafli. n
1 Við höfum tilhneigingu til að laðast að þeim sem líkjast okkur. Hjónasvipur er sem sagt vísindalegt fyrirbæri. Í rannsókn voru
gagnkynhneigðar konur og karlmenn beðin um að skoða nokkrar andlitsmyndir og gefa
þeim einkunn. Ein myndanna var andlit þátttakandans sjálfs, sem hafði með tölvutækni
verið breytt í hitt kynið. Þetta var það andlit sem þátttakendum þótti undantekningar-
laust mest aðlaðandi. Við erum sjálfselsk og með skýran smekk!
2 Þetta hljómar kannski örlítið óviðeigandi, en við virðumst líka laðast að fólki sem minnir á foreldra okkar. Til dæmis hefur
komið í ljós að þeir sem eiga eldri foreldra laðast frekar að eldra fólki.
3 Ef líkaminn er í spenntu ástandi (til dæmis eftir líkams-rækt) og þú hittir einhvern álitlegan, ertu líklegri til að finna fyrir losta og áhuga
en ella. Þetta er talið gerast vegna þess að þú misskilur líkamleg merki um æsing og
upplifir að þau séu af völdum einstaklingsins. Þið horfist í augu og á sama tíma finnur þú
hita í kinnum, svitadropa læðast niður eftir mjóbakinu og hraðari hjartslátt. Þú skynjar
þessi merki sem aðdráttarafl, en horfir framhjá því að líklega er ástandið til komið vegna
tvöfalda eróbikktímans sem þú varst að koma úr.
4 Það er engin lygi að kortér í fimm breytast allir í lostagoð og gyðjur. „Bjórgleraugu“ eru nefnilega raunverulegt fyrirbæri. Því meira sem þú
drekkur á barnum, því meira aðlaðandi finnst þér fólkið í kringum þig. Áfengið hefur líka
áhrif á hversu girnileg við upplifum okkur sjálf – enda oft talað um það sem sjálfstraust í
fljótandi formi.
5 Ef þú ert að leita að langtíma rómantísku sambandi, er líklegt að þú hafir meiri áhuga á þeim sem eru dálítið erfiðir og falla ekki fyrir þér eins og
skot. Þarna er kannski að verki sama lögmál og gildir um aðra fágæta muni sem
mannskepnan girnist.
6 Pikköpplínur virka sjaldan – þetta hafa vísindin leitt í ljós. Bæði konur og karlar kjósa miklu frekar að heyra eitthvað einlægt og einfalt, eins og „hæ“,
„viltu dansa“, eða „hvernig þekkir þú gestgjafann“. Setningar eins og „hei, ég er með
tannpínu, þú ert aðeins of sæt“, „ég er eldfjallafræðingur, má ég síga ofan í sprunguna
þína?“, eða „var ekki vont að detta af himnum ofan?“ eru mun ólíklegri til að virka.
7 Aðdráttarafl er samspil margra skynfæra. Það skiptir ekki bara máli hvernig manneskjan lítur út, heldur hvernig hún lyktar, hvernig bragð er af
munninum hennar við fyrsta kossinn, hvernig röddin hljómar og hvernig hún snertir þig.
Þegar allt smellur eru áhrifin ótvíræð.
8 Tíðahringur gagnkynhneigðra kvenna hefur áhrif á hvers konar körlum þær laðast að. Í kringum egglos laðast þær frekar að
mönnum með ytri einkenni karlmennsku og testósteróns, eins og djúpa rödd, mikinn
vöðvamassa, hæð og hárvöxt. Kvenlegri gaurar eiga meiri möguleika utan egglostímans.
9 Gagnkynhneigðir karlmenn eru sérstaklega veikir fyrir rauðklæddum konum. Enginn annar litur á séns í þann rauða. Möguleg
skýring á þessu gæti verið sú, að ýmsir líkamspartar kvenna roðna við kynferðislega
örvun. Nýleg rannsókn leiðir að því líkur að konur, sem vilja láta frjóvga sig, nýti sér þetta
með því að klæðast rauðu á frjósemistíma tíðahringsins. Spáið svo í rauðar varir, hvað
minna þær helst á?
10 Árstíðirnar virðast skipta máli. Öfugt við það sem flestir halda eru það ekki sumrin sem æra okkur af losta. Í rannsóknum hefur komið fram að
gagnkynhneigðir karlmenn finna til meiri löngunar í líkama kvenna á veturna, en ekki á
sumrin þegar sést í meira hold.
Rómó Hann: „Hún var
bara svo ómótstæðileg
þegar ég kom þarna
út úr eróbikktíman-
um, dúðuð í eldrauða
kraftgallann sinn!“ Hún:
„Oh, hann minnir mig á
pabba …“
Mynd www.123Rf.coM
Kósí „Þú ert spegilmynd
af mér!“ Mynd www.123Rf.coM
Þess vegna
löðumst við
að sumum
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Kossar
Skemmtileg heilsubót
n Flestir, eða um tveir þriðju
mannkyns, halla höfðinu til hægri
í kossum.
n Þegar þú kyssir
einhvern í fyrsta
sinn fram-
leiðir heilinn
tauga-
boðefnið
dópamín
sem fær þig til
að vilja meira. Þú
verður kossasjúk/ur.
Dópamín getur líka truflað svefn og
minnkað matarlyst.
n Kossar auka líka framleiðslu
á adrenalíni og noradrenalíni.
Þannig slær hjartað hraðar, meira
blóð flæðir til heilans og sjáöldrin
víkka – sem gæti verið ástæða þess
að við lokum oft augunum.
n Þegar þú kyssir einhvern notar
þú ekki aðeins 34 vöðva andlitsins,
heldur einnig 112 vöðva líkamans.
Kossar eru þess vegna prýðileg
líkamsrækt.
n Þann 16. júlí 1479 bannaði Hinrik
VI Englandskonungur kossa í kon-
ungsríkinu. Þetta gerði hann til að
reyna að hefta útbreiðslu sjúkdóma.
n Árið 1910 voru kossar í frönskum
lestum hins vegar bannaðir. Þeir
gátu nefnilega valdið töfum og
truflunum í lestarkerfinu.
n Heimsins lengsti koss, samkvæmt
heimsmetabók Guinness, var 58
klukkustundir, 35 mínútur og 58
sekúndur. Metið á taílenska parið
Ekkachai og Laksana Tiranarat.
n Gagnkynhneigðir karlmenn sem
kyssa konur sínar bless á morgnana,
áður en þeir skunda á skrifstofuna
með hatt og skjalatösku, lifa að
jafnaði fimm árum lengur en þeir
sem ekki gera það.
n Í kossarannsóknum hefur
komið fram að 56% fólks segjast
aldrei kyssa af ástríðu. Á Ítalíu er
þessu öðruvísi farið, þar segjast
75% stunda ástríðufulla kossa
nokkrum sinnum í viku. Molto bene!
n Það er til sérstök vísindagrein
sem fjallar um kossa. Hún heitir
„philematology“.
n Með því að kyssa einhvern í eina
mínútu brennir þú 26 hitaeining-
um. Þú þarft sem sagt 18 mínútna
kelerí til að brenna einu Snickers.
Kelerí borgar sig!
n Mannfræðingar áætla að 90%
mannkyns stundi kossa. Kossasiðir
geta hins vegar verið mjög mismun-
andi eftir menningarsvæðum.
Kynlausir titlar og
persónufornöfn
Nýlega var kynlausa titlinum Mx.
bætt í hóp titla eins og Mr. Mrs.
og Miss í Oxford orðabókinni.
Baráttu fólk um hinsegin réttindi
hafði löngum bent á nauðsyn þess
að kynlaus titill væri aðgengilegur
fyrir þá sem skilgreina sig hvorki
sem karl né konu.
Í mars á þessu ári varð Svíþjóð
fyrsta landið til að taka opinber-
lega upp kynlausa persónufor-
nafnið hen. Þannig er nú hægt að
ávarpa fólk, sem fellur utan tvípóla
kynjakerfisins, á réttari og nær-
gætnari hátt.