Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Qupperneq 42
34 Skrýtið Sakamál Helgarblað 18.–21. september 2015
dk Viðskiptahugbúnaður
- Þróaður fyrir íslenskar aðstæður
- Öruggur, einfaldur í notkun og veitir
góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins
- Yfir 5.000 fyrirtæki á Íslandi nýta sér
þjónustu okkar
dk POS afgreiðslukerfið
- Hraðvirkt og einfalt í notkun
- Eitt öflugasta afgreiðslukerfið á markaðnum í dag
- Yfir 900 afgreiðslukerfi um land allt
dk Vistun
- Heildarlausn í hýsingu forrita og gagna
- Örugg vistun og framúrskarandi þjónusta
dk hugbúnaður
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sími: 510 5800
www.dk.is
Íslenskur hugbúnaður í 16 ár
Veldu íslenskan
hugbúnað
Þ
vert á ráðleggingar fyrrver-
andi eiginkonu sinnar afréð
Kevin Gates að ganga í hjóna-
band með Mary Lucretiu
Gates. Kevin þessi var sendill
fyrir UPS-póstþjónustuna í Baltimore
í Maryland í Bandaríkjunum. Mary
hafði verið vinkona Donnu, fyrrver-
andi eiginkonu Kevins, og hafði á
stundum gætt Russels, sonar Kevins
og Donnu.
Þegar Kevin og Donna skildu
flutti Mary inn til Kevins, hún var í
húsnæðisvandræðum og virtist sem
fyrirkomulagið hentaði báðum vel
því Kevin vann langan vinnudag og
vantaði ráðskonu og einhvern til að
líta til með Russell. „Þetta var gott
fyrirkomulag,“ sagði Kevin síðar, en
hann og Mary gengu í það heilaga
árið 2004.
Syrtir í álinn
Vart höfðu Kevin og Mary farið með
hjúskaparheit sín er syrta fór í ál-
inn á heimilinu og nánast áþreif-
anleg spenna sveif þar yfir vötnum.
Að sögn Russels þoldi Mary meðal
annars ekki hve gott samband Kevins
og hans og systur hans var.
„Hún kvartaði sí og æ yfir því að
hún væri út undan, í reynd vildi hún
hafa pabba gjörsamlega fyrir sig,“
sagði Russel og bætti við að Mary
gerði í því að niðurlægja hann fyr-
ir framan vini hans og laug því að
kennara hans að hann svikist um að
vinna heimaverkefnin. „Það nægði
að líta í augu hennar, þá hugsaðirðu:
Þessi manneskja er hefnigjörn,“ sagði
Russel um stjúpmóður sína.
Mary viðrar morðhugmyndir
Sumarið 2007 tók steininn úr, að
mati Kevins, þegar Mary fór til lög-
reglunnar og sagði Russel hafa geng-
ið í skrokk á systur sinni og krafðist
þess að Kevin kastaði Russel á dyr.
„Ég harðneitaði að gera nokkuð slíkt
því ég vissi að hún var að ljúga,“ sagði
Kevin um þá uppákomu. Þaðan í
frá, sagði Kevin, lá leiðin niður á við
og Mary lét feðgana finna fyrir því.
Í nóvember sama ár gaf Mary sig á
tal við nágranna þeirra hjóna, Marty
Frost, og ámálgaði við hann hvort
hann væri ekki til í að senda Kevin
yfir móðuna miklu. Marty tók þessari
fyrirspurn sem undarlegu gríni og
sagði Mary að fara heim og spjalla við
bónda sinn.
Leit að launmorðingja hefst
En Mary var ekki á þeim buxunum
heldur bar hugmyndir sínar undir
Heather McNeal, vinkonu sína sem
dvaldi á heimili Gates-hjónanna.
Mary vissi sem var að fyrrverandi
kærasti Heather hafði verið í glæpa-
gengi og spurði hana hvort hann vissi
hvar launmorðingja væri að finna.
Í skiptum fyrir veitta aðstoð lofaði
Mary að kaupa hús fyrir líftryggingar-
féð sem hún sá fram á að fá í hend-
urnar. Heather snarbrá og sagði
Kevin frá ráðabruggi eiginkonu hans
og Kevin fór rakleitt til lögreglunnar.
Ekki trúað
Lögreglan lagði ekki mikinn trúnað á
frásögn Kevins í fyrstu, en nokkrum
vikum síðar fékk Kevin að vita að
Mary hefði einnig haft samband við
Marty. Mary hafði boðið Marty 6.000
Bandaríkjadali fyrir að koma Kevin
fyrir kattarnef. Nú vaknaði áhugi lög-
reglunnar.
Heather samþykkti að setja sig í
samband við Mary og hljóðrita sam-
tal þeirra og átti sá fundur sér stað 29.
nóvember 2007.
Mary staðfesti að hún vildi að
Kevin yrði fyrirkomið og sagðist
greiða fyrrverandi kærasta Heather,
eða einhverjum vina hans, fyrir.
Í gildru lögreglunnar
Viku síðar hitti Mary rannsóknarlög-
reglumann sem hún hélt að væri
launmorðingi og komust þau að því
samkomulagi að morðið ætti að líkj-
ast ráni og að Kevin yrði skotinn í
höfuðið. „Hafðu engar áhyggjur af
subbuskap, dreptu hann bara. Það
skiptir mig engu máli hvort kistan
verður opin eða lokuð við útförina,“
sagði Mary og náðust ummæli henn-
ar á upptöku.
Áður en leiðir Mary og „laun-
morðingjans“ skildi lét hún hann fá
ljósmynd af Kevin og handskrifaðar
upplýsingar um vinnutíma hans og
hvaða leið hann fór til vinnu. Mary
lagði á það áherslu að Kevin yrði að
vera liðið lík innan hálfs mánaðar.
Játning og dómur
Til að gera langa sögu stutta þá var
Mary handtekin daginn eftir og hún
ákærð fyrir að hvetja til morðs. Í júní
árið 2008 játaði hún sig seka og var
dæmd til fimm ára fangelsisvistar og
fékk að auki 10 ára skilorðsbundinn
dóm sem tæki gildi að afplánun lok-
inni. n
Mary bruggar banaráð
n Hjónabandssæla Kevins og Mary varð ekki langlíf n Kevin lifði í stöðugum ótta um skeið„Hafðu engar
áhyggjur af subbu-
skap, dreptu hann bara.
Lifði í ótta Kevin vissi að Mary myndi láta til skarar skríða, en ekki hvenær.
Bruggaði launráð
Mary hugsaði eiginmanni
sínum þegjandi þörfina.