Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 48
Helgarblað 18.–21. september 201540 Sport
Lítið spilað
Alfreð Finnbogason
Gullskórinn í Hollandi 2014
hefur mestmegnis verið geymdur í
frystikistunni. Komið inn í misstuttan
tíma í þremur leikjum en á meðan hann
hefur verið inn á hefur Ísland gert tvö
mörk en andstæðingarnir ekkert. En
hann hefur leikið of lítið svo hægt sé að
dæma um það.
Viðar Örn Kjartansson
Viðar hefur aðeins verið í mýflugumynd
í undankeppninni. Kom inn á í nokkrar
sekúndur gegn Tyrklandi heima og
svo í fimm mínútur gegn Kasökum
þegar liðin höfðu sæst á jafntefli.
Hefur leikið of lítið til að vera gefin
einkunn.
Ólafur Ingi Skúlason
Hefur þrívegis komið inn á á loka
mínútum. Of lítið til að tala um.
Gylfi
bestur
Hannes Þór Halldórsson
Einkunn: 8,5 Besti leikur: Holland úti
Eftir erfiðan seinni leik í Zagreb
gegn Króatíu óttaðist maður
að það hefði áhrif á Hannes
í þessari undankeppni.
En för markvarðarins til
Noregs virðist hafa tvíeflt
hann og staða hans sem
markvörður númer eitt
hjá landsliðinu stendur á
traustari fótum nú en nokkru
sinni fyrr.
Birkir Már Sævarsson
Einkunn: 8 Besti leikur: Holland úti
Hóf undankeppnina á varamanna
bekknum þar sem Lars og Heimir
veðjuðu á Theodór Elmar í stað hans.
En eftir martraðarleik Theodórs
Elmars í Plzen í Tékklandi stökk Birkir
á tækifærið til að koma aftur í liðið og nýtti
það til hins ýtrasta.
Ragnar Sigurðsson
Einkunn: 9 Besti leikur: Holland heima
Árbæingurinn á mikið hrós
skilið fyrir framgöngu
sína í undankeppn
inni. Var afar
traustur í öll
um leikjum
liðsins og
setti hvern
framherj
ann á fætur
öðrum í rassvasann.
Þá gerði hann mikilvægt mark gegn
Tékkum úti þegar við töpuðum en það
mark mun telja ef við endum
jafnir Tékkum. Því í keppn
um á vegum UEFA eru
það innbyrðis viðureignir
sem telja. Hefði fyrri
leikurinn farið 2–0
Tékkum í vil fengju þeir
efsta sætið. En fyrst innbyrðis viðureignir
eru jafnar þá verðum við fyrir ofan þá á
markatölu.
Kári Árnason
Einkunn: 9 Besti leikur: Tékkland heima
Ég man vart eftir því að
Kári hafi stigið feilspor
í undankeppninni.
Myndar afar gott par
með Ragnari. Átti
stóran þátt í fyrsta
markinu gegn Tyrklandi
heima og það var sending
frá honum sem var upphafið
af vítaspyrnunni í Hollandi.
Ari Freyr Skúlason
Einkunn: 8,5
Besti leikur: Tyrkland heima
Líklega einhver besti vinstri
fótur sem við Íslendingar
höfum átt. Gullsendingar
hans gegn Tyrkjum heima (á
Kolbein) og gegn Tékklandi
heima (á Aron Einar) eru gott
dæmi um nákvæmni hans.
Birkir Bjarnason
Einkunn: 8 Besti leikur: Kasakstan úti
Vinnuþjarkurinn á
vængnum. Hefur átt
góða undankeppni.
Það var hann sem
sótti vítið gegn
Hollandi og
það var
hann sem
gekk frá
Kasakstan í
leiknum ytra sem
var mun erfiðari leikur en margir töldu.
Aron Einar Gunnarsson
Einkunn: 8,5 Besti leikur: Holland úti
Fyrirliðinn hefur myndað gott
samband við Gylfa
Þór Sigurðs
son. Var í
vandræðum
í Tékklandi
en þar með
er það upp
talið. Skoraði
mikilvæg mörk
gegn Lettum og Tékkum
en leikurinn gegn Hollandi í Amsterdam er
líklega hans besti landsleikur.
Gylfi Þór Sigurðsson
Einkunn: 10 Besti leikur: Holland heima
Besti leikmaður
undankeppninnar
það sem af er. Ekki
bara í okkar liði eða
í okkar riðli heldur í
undankeppninni allri
fyrir Evrópumeistara
mótið sem fram fer í
Frakkalandi. Hefur verið
allt í öllu í leik Íslands.
Jóhann B. Guðmundsson
Einkunn: 7,5 Besti leikur: Kasakstan úti
Jói missti af fyrstu leikjum
Ísland vegna meiðsla. En
hefur unnið sig vel inn í
undankeppnina og var
nálægt því að stela
stigi í Tékklandi þegar
Petr Cech varði ótrúlega
frá honum. Verður
lykilmaður í Frakklandi úti
á kanti eða jafnvel frammi
með Kolbeini Sigþórssyni.
Jón Daði Böðvarsson
Einkunn: 8 Besti leikur: Holland heima
Yngsti leikmaður liðsins hóf
veisluna með fyrsta marki
undankeppninnar gegn
Tyrkjum heima. Hefði
einhver efast um Jón
Daða þá voru þeir
efasemdarmenn kjaft
stopp eftir leikinn gegn
Hollendingum hér heima.
Leikmaður sem á aðeins
eftir að vaxa eftir að hann fer til
Kaiserslautern í Þýskalandi frá Noregi.
Kolbeinn Sigþórsson
Einkunn: 8 Besti leikur: Tékkland heima
Hefur leikið alla leikina
í undankeppninni en
verið óvenju róleg
ur miðað við form
hans með lands
liðinu en hann
skoraði þó líklega
mikilvægasta
markið, sigurmark
ið gegn Tékkum sem
fór langt með að tryggja
sæti okkar í Frakklandi. Nálgast markamet
landsliðsins með 17 mörk en metið er 25
mörk og tilheyrir Eiði Smára Guðjohnsen.
Theodór E. Bjarnason
Einkunn: 7,5 Besti leikur: Holland heima
Virtist vera búinn að
eigna sér hægri bak
varðarstöðuna eftir
frábæra leiki gegn
Hollandi og Tyrkj
um hér heima. En
lenti svo í miklum
vandræðum í
Plzen í Tékklandi
og missti í kjölfarið
hægri bakvarðarstöð
una til Birkis Más.
Emil Hallfreðsson
Einkunn: 7,5 Besti leikur: Holland heima
Emil Hallfreðsson
hefur leikið sex leiki
það sem af er
undankeppninni
og verið ágætur.
Oftast leyst stöðu
vinstri kantmanns
en ekki alveg tekist
að færa sitt góða
form með félagsliði
yfir í landsliðið. Hefur
aðeins gert eitt landsliðsmark á ferlinum.
Eiður Smári Guðjohnsen
Einkunn: 7 Besti leikur: Kasakstan úti
Væntanlega síðasta
undankeppni Eiðs
Smára. Hann
byrjaði einn leik
í keppninni en
það var í mars á
meðan hann var
í fullu fjöri í ensku
1. deildinni með
Bolton. Hann lék þann
leik gegn Kasökum vel.
Hinn leikurinn var gegn Hollandi úti þar
sem hann kom inn á sem varamaður.
Rúrik Gíslason
Einkunn: 7 Besti leikur: Lettland úti
Hefur tekið minni
þátt í þessari
undankeppni
en þeirri síðustu
og á enn eftir að
byrja leik. Skoraði
í innkomu sinni
gegn Lettum en
28 mínútur er það
mesta sem hann hefur
fengið í undankeppninni en
það var gegn Tékkum ytra.
Lars og
Heimir
Einkunn: 9,5
Fullkomin
undankeppni
hjá þeim ef leik
urinn hjá Tékkum
ytra er undanskilinn.
Það hefur ekki farið framhjá nokkrum
knattspyrnuáhugamanni að íslenska
karlalandsliðið er komið á EM í Frakk-
landi á næsta ári. Liðið hefur spilað átta
leiki í undankeppninni og aðeins notað
í þeim 18 leikmenn. Þetta eru einkunnir
fyrir þeirra framlag í riðlakeppninni.
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is