Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 54
46 Fólk Helgarblað 18.–21. september 2015
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
É
g er búinn að horfa á amerísku
og bresku þættina og hef að
eins kíkt á þá áströlsku og
dönsku líka. Maður verður að
gera þetta almennilega fyrst
maður er kominn inn í þetta hlut
verk,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi
Björnsson, einn þjálfara í tónlistar
þættinum The Voice sem sýndur
verður á Skjá Einum í byrjun næsta
mánaðar.
Tökum á blindu áhorfendapruf
unum er þegar lokið og Helgi segist
vera kominn með flottan og breið
an hóp af keppendum sem hann
mun nú miðla reynslu sinni til. „Það
skemmtilegasta við hlutverkið er
að vinna með þessum keppendum,
finna lög fyrir þá og útfærslu og hjálpa
þeim að komast sem lengst áfram. Í
keppninni er jákvæðnin í fyrir rúmi
og það finnst mér einmitt svo heill
andi. Við munum hjálpa þátttak
endum með hvort tveggja rödd og
framkomu en þar kemur mín reynsla
sterk inn,“ segir Helgi sem auk söngs
ins er reyndur leikari og lagasmiður.
Helgi játar því að vissulega þurfi
hugrekki til að taka þátt í keppni sem
þessari. „Sérstaklega fyrir þá sem
eru lengra komnir. Þeir eru að leggja
meira undir. Það er viðbúið að ein
hverjir komist ekki áfram, enda ekki
pláss fyrir alla, og það er mjög erfitt.
Það er svo margt sem kemur inn í
eins og dagsformið, hvernig liðið er
skipað og margt annað. Eflaust hefðu
sumir átt frekar skilið að halda áfram
en aðrir en svona er þetta bara.“ n
indiana@dv.is
„Ekki pláss fyrir alla“
Helgi Björnsson miðlar reynslu sinni til keppenda
Helgi Helgi segir
jákvæðnina í fyrir-
rúmi í The Voice.
Mynd Sigtryggur Ari
N
ámskeiðið Stelpur filma!,
var haldið í vikunni, á
vegum Skóla og frístunda
sviðs Reykjavíkurborgar og
Alþjóð legrar kvikmynda
hátíðar í Reykjavík, RIFF. Markmiðið
með námskeiðnu er að rétta af kynja
hlutfallið í kvikmyndagerð og skapa
stelpum umhverfi til að búa til bíó
myndir.
Fríða Rós Valdimarsdóttir, verk
efnastjóri Stelpur filma!, segir nám
skeiðið hafa gengið vonum fram
ar. „Hér hafa 66 stelpur spreytt sig
á kvikmyndagerð og lært af þeim
allra bestu í bransanum í dag. Hver
af þeim 11 skólum sem komust að í
verkefninu mun gera fimm mínútna
mynd sem verður sýnd í kvikmynda
húsi á næstu dögum. Frumsýningin
er háleynileg en almenningi gefst
tækifæri til að sjá myndirnar á RIFF
kvikmyndahátíðinni helgina 3. og 4.
október kl. 13 í Norræna húsinu þar
sem aðgangur verður ókeypis.“
Stelpur filma! byggist á hug
myndafræði rokkbúðanna Stelpur
rokka! sem stofnaðar voru 2012 og
má segja að þau námskeið hafi sleg
ið í gegn. Hugmyndafræðin byggist
á að nánast eingöngu konur koma
að námskeiðinu og er með því verið
að skapa sem bestu aðstæður sem
kostur er fyrir stelpur til að skapa og
tjá sig.
„Hugmyndir stelpnanna eru
ótrúlega fjölbreyttar og viðfangs
efnin spennandi. Það hefur verið
gaman að fylgjast með þeim eflast í
sköpunargleðinni og það er ómetan
legt að taka þátt í þessu skemmtilega
verkefni,“ segir Fríða Rós.
DV heimsótti stelpurnar í Nor
ræna húsið og fylgdi þeim í tökur.
Glatt var á hjalla og þær voru væg
ast sagt innblásnar og einbeittar.
Nokkrar þeirra höfðu þetta að segja
um þátttökuna á námskeiðinu n
n Sköpunargleði gegn kynjaskekkju í kvikmyndabransanum
Stelpur
filma!
„Það var
æðislegt að
fá að kynnast öllu
fólkinu, sérstaklega
Baltasar. Takk kær
lega fyrir mig og
lífið er yndislegt.
Helga rún
„Það sem
mér fannst
standa upp úr var
fyrirlesturinn sem
Elísabet Ronalds
dóttir hélt um
klippingar.
Jóhanna Lan
„Ég hef lært hvernig á að
búa til handrit, taka upp
og klippa stuttmyndir. Svona
tækifæri fær maður ekki oft en
ég er glöð að hafa fengið það.
Bjarndís Lind Jónsdóttir„Ég er
ótrúlega
ánægð að hafa
fengið þetta
tækifæri og
það mun klár
lega hjálpa mér í
framtíðinni.
Brynhildur Vala
„Mér fannst mjög
skemmtilegt að hlusta
á fólkið sem kom og hélt
fyrir lestra og lít mikið upp til
þeirra. Þetta er búið að vera
frábært tækifæri og ég gæti
vel hugsað mér að vinna við kvik
myndir í framtíðinni. Marta María„Námskeiðið
var ekkert smá
skemmtilegt! Ég er svo
heppin að hafa fengið að
taka þátt og ég efast ekki
um að þetta muni nýtast
mér í framtíðinni.
Helga Björg
ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Stelpur í kvikmyndagerð Þær Helga Björg Óladóttir, Marta María
Stephensen, Jóhanna Lan, Helga Rún Hermannsdóttir, Brynhildur Vala Björns-
dóttir og Bjarndís Lind Jónsdóttir voru meðal þátttakenda á námskeiðinu.
Hver með sitt hlutverk
Í tökunum skiptu stelpurnar
með sér hlutverkum.
Fagkonur
framtíðarinnar
Stelpurnar á nám-
skeiðinu höfðu
aðgang að öllum
græjum sem
þarf til að búa til
bíómynd.
Hugmyndaríkar Stelpurnar fengu
tækifæri til að koma ótrúlega fjölbreytt-
um hugmyndum sínum í framkvæmd.
Sáttar við
árangur Elísabet
Ronaldsdóttir
klippari og
Fríða Rós
Valdimarsdóttir
verkefnastjóri
komu báðar að
námskeiðinu.
M
y
n
d
ir
Þ
o
r
M
A
r
V
ig
n
ir
g
u
n
n
A
r
SS
o
n