Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 27
Jólahlaðborð - Kynningarblað 3Helgarblað 9.–12. október 2015
Culina: Allt eldað frá grunni
Allt frá purusteik til grænmetisrétta
C
ulina er veisluþjónusta þar
sem áhersla er lögð á að elda
alla rétti frá grunni. Maturinn
er án aukaefna og óþekktra
rotvarnarefna eða ofnæmis
valda. „Maður er ekkert að svíkja
prinsippin þó að það séu jólin,“
segir Dóra Svavarsdóttir, matreiðslu
meistari og eigandi Culina, aðspurð
hvort þessi hreinleiki fæðunnar sé
ráðandi á jólahlaðborðum veislu
þjónustunnar. Viðskiptavinir Culina
geta treyst því að þeir fái hreina fæðu
sem elduð er frá grunni.
„Þar sem við erum veisluþjón
usta en ekki veitingastaður þá er
enginn ákveðinn tími fyrir jólahlað
borðið, það er í rauninni hægt að
panta þetta hvenær sem er. Ég er
annars vegar með jólahlaðborð þar
sem allir eiga að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi og hins vegar jólahlað
borð bara fyrir grænmetisætur,“
segir Dóra Svavarsdóttir. Löng hefð
er fyrir því að grænmetisætur leiti til
Culina varðandi jólahlaðborð:
„Ég var í Á næstu grösum árum
saman, sem var auðvitað græn
metisveitingastaður, og það hafa
margir fylgt mér þaðan, þó að þessi
þjónusta sé öðruvísi.“
Þeir sem vilja hefðbundið hlað
borð fá svo sannarlega sitt enda er
Dóra bæði með á boðstólum puru
steik og kalkún. Sérstaða jólahlað
borðsins frá Culina er hins vegar
gómsætir, kjötlausir réttir á borð við
graskersböku og hnetusteik.
Jólamatseðill Culina
Snittur í forrétt: Blini með reyktum
laxi, spínatbaka með blaðlauk og
riccotta, fyllt egg með fáfnisgrasi og
rauðrófugrafinni bleikju, maltsoðið
lamb með steinseljurótarmauki á
steiktu brauði
Aðalréttahlaðborð: Hægeldaður
kalkúnn með rósmarín og smjöri,
purusteik, graskersbaka með kórí
ander og engifer, villisveppasósa
ristað rótargrænmeti með tímjan,
sætkartöflumús, eplasalat með val
hnetum, nýsoðið rauðkál með kanil,
púrtvínssoðnar plómur.
Brauð og lakkríssmjör
Eftirréttir: Súkkulaðimús með
espressotóni Möndlugrautur og
saftsósa Marineraðir ávextir með
myntu
Þessi herlegheit kosta 5.500
krónur á mann, lágmarkspöntun er
fyrir 20 manns.
Það má sleppa forréttinum ef
fólk kýs svo og er verðið þá 4.500
krónur. n