Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 10
Helgarblað 16.–19. október 201510 Fréttir
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Hlutabréf í CCP boðin
til sölu á bland.is
H
lutabréf í íslenska
tölvuleikjafyrirtækinu CCP
eru boðin til sölu á bland.is
á 2.500 krónur á hlut. Í aug-
lýsingu sem var birt á söluvefnum
síðastliðinn mánudag segist not-
andi vera með „nokkur hundruð
hluti í CCP sem [hann] er tilbúinn
að selja“. Miðað við að hann óski
eftir að fá 2.500 krónur fyrir hlutinn
þá nemur markaðsverðmæti hluta-
bréfanna sem eru boðin til sölu á
bland.is að lágmarki hundruðum
þúsunda króna.
Verðið á bréfunum er í samræmi
við það sem fram kom í frétt Við-
skiptablaðsins hinn 1. október síð-
astliðinn en þar sagði að stærsti
framtakssjóður í heimi og Novator,
fjárfestingarfélag Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hafi verið á höttun-
um eftir hlutabréfum í CCP og boð-
ið allt að 2.500 krónur á hlut.
Þannig sagðist blaðið hafa heim-
ildir fyrir því að hluthöfum CCP
hafi í byrjun júlí á þessu ári boð-
ist að selja hluti sína í félaginu fyr-
ir þúsund krónur á hlut. Fljótlega
hafi boðið hins vegar verið hækk-
að í 1.200 krónur á hlut og í ágúst
hafi verðið verið komið upp í 2.000
krónur á hlut. Þá hafi sumum hlut-
höfum verið boðnar 2.500 krónur á
hlut fyrir bréf sín í félaginu í sept-
ember.
Í lok síðasta árs var fjöldi hluta í
CCP 9.949.452 og ef miðað er við að
bréfin séu að ganga kaupum og söl-
um á 2.500 krónur á hlut þá nemur
markaðsverðmæti tölvuleikjafyr-
irtækisins tæplega 24 milljörðum
króna. n
hordur@dv.is
Vill selja nokkuð hundruð hluti á verðinu 2.500 krónur á hlut
CCP Stórir fjárfestar hafa að undanförnu
verið á höttunum eftir bréfum í tölvuleikja-
fyrirtækinu. Mynd Sigtryggur Ari
Ölgerðin stefnir á hluta-
bréfamarkað á næsta ári
n Sjóður í rekstri Virðingar ætlar að selja 28% hlut sinn n Undirbúningur að skráningu hafinn
H
luthafar Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar hafa tek-
ið ákvörðun um að stefna
að því að fara með félagið á
hlutabréfamarkað í Kaup-
höll Íslands á næsta ári og hyggst
framtakssjóður í rekstri verðbréfa-
fyrirtækisins Virðingar þá selja allan
hlut sinn í fyrirtækinu. Hannes Frí-
mann Hrólfsson, forstjóri Virðingar,
staðfestir þetta í samtali við DV en
eignarhluturinn í Ölgerðinni er
stærsta einstaka eign framtakssjóðs-
ins Auðar I.
Á sjóðurinn ríflega 62% hlut í
Eignarhaldsfélaginu Þorgerður ehf.
sem keypti hlut í Ölgerðinni árið
2010 ásamt meðfjárfestum. Félagið
er í dag stærsti hluthafi fyrirtækisins
með 45% eignarhlut og nemur hlutur
framtakssjóðsins í Ölgerðinni því
um 28%. Eigendur Auðar I eru með-
al annars flestir stærstu lífeyrissjóðir
landsins.
Hannes Frímann segir að á
undanförnum árum hafi ýmsir fjár-
festar reglulega lýst yfir áhuga á hlut
Auðar I í Ölgerðinni og hann eigi því
von á „miklum áhuga“ á félaginu
þegar skráningarferlið hefjist fyrir
alvöru. Hann bendir á að undirbún-
ingsferlið sé nú rétt að hefjast en að
stefnt sé að því að klára það á næsta
ári. Aðspurður hvort aðrir hluthafar
Eignarhaldsfélagsins Þorgerðar, sem
heldur utan um 45% hlutinn í Öl-
gerðinni, muni selja samhliða því að
Auður I losar um sinn hlut í félaginu
segir Hannes of snemmt að segja til
um slíkt – það muni skýrast á síð-
ari stigum. Það er fyrirtækjaráðgjöf
Virðingar sem hefur umsjón með
skráningunni.
Stærri markaðshlutdeild
Hannes bendir á að rekstur Ölgerðar-
innar hafi farið síbatnandi á síðustu
árum samtímis því að félaginu hef-
ur tekist að styrkja markaðshlut-
deild sína, en helsti keppinautur fyr-
irtækisins er sem kunnugt er Vífilfell.
EBITDA-hagnaður Ölgerðinnar nam
ríflega 1.200 milljónum króna á fjár-
hagsárinu sem lauk í febrúar 2014 og
var heildarvelta fyrirtækisins nærri
18,5 milljarðar króna. Ekki hefur ver-
ið birtur ársreikingur fyrir síðasta fjár-
hagsár Ölgerðarinnar.
Ölgerðin varð hins vegar fyrir tals-
verðu áfalli undir árslok 2013 þegar
fyrirtækið var krafið af embætti ríkis-
skattstjóra um að greiða endurálagn-
ingu tekjuskatts vegna öfugs samruna
árið 2007. Þurfti félagið að gjaldfæra
hjá sér 1.004 milljónir vegna þessa
auk þess sem það þurfti að greiða
25% álag samkvæmt ákvörðun rík-
isskattstjóra. Stjórnendur Ölgerðar-
innar kærðu ákvörðunina til yfir-
skattanefndar en hún staðfesti síðar
ákvörðun ríkisskattstjóra.
Hluturinn bókfærður á milljarð
Fyrir utan hlut sinn í Ölgerðinni
á framtakssjóðurinn Auður I
eignarhluti í fimm öðrum rekstrar-
félögum, meðal annars Já upplýs-
ingaveitum, Íslenska gámafélaginu
og 365 miðlum. Auk lífeyrissjóða eru
eigendur framtakssjóðsins, sem var
stofnaður í febrúar 2008, ýmsir þekkt-
ir einstaklingar úr íslensku viðskipta-
lífi. Þar má nefna Ernu Gísladóttur,
forstjóra BL, Jón Sigurðsson, for-
stjóra Össurar, Guðbjörgu Eddu Egg-
ertsdóttur, fyrrverandi forstjóri Act-
avis á Íslandi og einn af hluthöfum
Virðingar, og hjónin Steinunni Jóns-
dóttur og Finn Rey Stefánsson í gegn-
um fjárfestingafélag sitt Snæból ehf.
Á síðasta ári skilaði framtakssjóð-
urinn hagnaði upp á 560 milljónir
króna og námu heildareignir sjóðs-
ins tæplega 3,5 milljörðum króna.
Samkvæmt ársreikningi Eignarhalds-
félagsins Þorgerðar, þar sem Auður I
er stærsti eigandinn með 62% hlut,
er 45% hlutur félagsins bókfærður á
1.019 milljónir króna. Miðast sú fjár-
hæð við kaupverð í Ölgerðinni á sín-
um tíma en ljóst má vera að verðmæti
hlutarins er orðið umtalsvert meira í
dag.
Næststærsti hluthafi Ölgerðar-
innar er OA-eignarhaldsfélag með
38% hlut en eigendur þess eru Andri
Þór Guðmundsson, forstjóri fyrir-
tækisins, og Októ Einarsson, núver-
andi stjórnarformaður Ölgerðarinn-
ar. Þá á eignarhaldsfélagið F-13 17%
hlut í fyrirtækinu en það er í eigu
fjögurra millistjórnenda Ölgerðar-
innar. Eignarhlutur stjórnenda Öl-
gerðarinnar þynntist út árið 2010
samhliða því að fyrirtækið fór í gegn-
um fjárhagslega endurskipulagningu
og framtakssjóðurinn Auður I kom
inn sem nýr hluthafi. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Forstjóri Virðingar Hannes Frímann seg-
ist eiga von á „miklum áhuga“ frá fjárfestum
á hlut sjóðsins í Ölgerðinni.
Ölgerðin á leið á markað
Velta fyrirtækisins á fjárhags-
árinu sem lauk í febrúar 2014
nam um 18,5 milljörðum króna.
„Ýmsir fjárfestar hafa
reglulega lýst yfir áhuga á
hlut Auðar I í Ölgerðinni og því á
ég von á miklum áhuga á félaginu