Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Síða 19
Helgarblað 16.–19. október 2015 Umræða 19 Betra grænmeti Betra kjöt Betri ávextir Fyrst og fremst... þjónusta „Íslendingar eru mesta frjálsíþróttaþjóð heims“ n Clausen-bræður urðu átrúnaðargoð heillar kynslóðar n 65 ár liðin frá einni fræknustu íþróttaför Íslendinga Afburðaíþróttamenn Bræðurnir algjörlega samtaka yfir grindur á Melavellinum. Evrópu, 21,3 sekúndum. Þetta var ekki eingöngu Íslandsmet, heldur einnig Norðurlandamet. Íslands- met Hauks stóð í heil 27 ár. Ferð íslenska liðsins á Evrópumeistaramótið 1950 er ein- hver frækilegasta íþróttaför fyrr og síðar, en Íslendingarnir höfnuðu í áttunda sæti í stigakeppninni, næst- ir á eftir Tékkum. Hinn kunni ítalski frjálsíþróttafrömuður, Roberto L Qercetani, skrifaði í tímaritið Track and Field News um árangur Íslands: „Íslendingar eru mesta frjálsíþrótta- þjóð heims.“ Svo mörg voru þau orð. Keppnisbann Haukur keppti í tugþraut á Reykja- víkurmeistaramótinu 1951 og sigr- aði með 6.663 stigum sem var 21. besta þraut heims það árið, en Örn bróðir hans átti þriðja besta árangur ársins í heiminum, 7.453 stig. Haukur var því greini- lega efni í góðan tugþrautarmann, en hann keppti þó aldrei fram- ar í þraut. Hann var um þetta leyti að ljúka prófi í tannlækningum og á leið í framhaldsnám í Minnea- polis í Bandaríkjunum og lagði því hlaupaskóna á hilluna. Haukur hélt því ekki til keppni á Ólympíuleik- unum í Helsinki 1952. Örn var hins vegar ólympíufari, ásamt níu öðr- um íslenskum frjálsíþróttamönn- um, en varð fyrir því óláni skömmu fyrir keppni að axlarvöðvi slitnaði er hann hugðist snara tösku sinni upp í hillu. Hann gat því ekki keppt á leikunum. Þar sem hann var frá keppni taldi hann sig ekki þurfa að hlíta agaregl- um keppnismanna. Fyrir vikið var hann dæmdur í keppnisbann til árs- loka 1952. Á sama tíma og Erni var gert að hlíta agareglum fóru farar- stjórar út á lífið með keppendum, sem jafnvel áttu að keppa daginn eftir! Erni misbauð framkoma farar- stjóranna og vildi fá að halda hóp- inn með vinum sínum frá Banda- ríkjunum sem lokið höfðu keppni. Löng málaferli Örn höfðaði mál vegna banns- ins fyrir dómstóli Íþróttabanda- lags Reykjavíkur (ÍBR) og vann það, en þeim bræðrum hafði báðum mislíkað svo framkoma íþróttafor- ystunnar að þeir hættu keppni fyr- ir fullt og allt, aðeins 22 ára. Það var forystu íþróttahreyfingarinnar til enn meiri minnkunar að fram- kvæmdastjórn Íþróttasambands Ís- lands kærði Örn og tvo aðra kepp- endur á Ólympíuleikunum til dómstóls ÍBR. Við tók langur mála- rekstur sem lyktaði ekki fyrr en í marsmánuði 1954 og var þeim þre- menningum ekki gerð nein refsing. Í dómnum kemur meðal annars fram að keppnisbannið hefði verið ranglega lagt á. Örn sagði síðar svo frá í blaðaviðtali að keppnisbannið hefði bara verið sett á til að niður- lægja sig, enda látið ná yfir veturinn þegar engin mót voru haldin. „Þess- ir fararstjórar skulu aldrei aftur til útlanda út á okkur“ var hugsunin hjá þeim bræðrum, sagði Örn síðar. Hefðu þeir bræður sinnt íþrótta- iðkun sinni áfram má telja mikl- ar líkur á að þeir hafi staðið á verð- launapalli á Ólympíuleikunum í Melbourne árið 1956. Íslandsmet Arnar í tugþraut stóð allt til ársins 1962 er annar ÍR-ingur, Valbjörn Þorláksson, bætti það um 94 stig. Ís- landsmet Hauks í 200 metra hlaupi, 21,3 sekúndur stóð í heil 27 ár og er enn þann dag í dag ÍR-met. Það var á sínum tíma Norðurlandamet og besti tími ársins í Evrópu árið 1950. Heimildir: Ágúst Ásgeirsson: Hundrað ár til heilla, Frímann Helgason: Fram til orustu og frá- sagnir blaðanna á sínum tíma. n „Örn höfðaði mál vegna bannsins fyrir dómstóli Íþrótta­ bandalags Reykjavíkur (ÍBR) og vann það, en þeim bræðrum hafði báðum mislíkað svo framkoma íþrótta­ forystunnar að þeir hættu keppni fyrir fullt og allt, aðeins 22 ára. Barátta Örn í hörkukeppni við Bob Mathias á Ólympíuleikunum 1948.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.