Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Page 4
Vikublað 17.–19. nóvember 20154 Fréttir
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...
„AlgjörlegA mín
eigin sAnnfæring“
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Tilraun til að skaða Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans,
segir umhugsunarvert að þingmaður beiti
valdi sínu í von um að skaða fyrirtækið.
T
ölvuhakkarahópurinn
Anonymous stærir sig af því að
hafa borið ábyrgð á árásum á
nokkrar íslenskar vefsíður í
síðustu viku. Meðal þeirra vef-
síðna sem urðu fyrir barðinu
á árásunum voru mbl.is, vef-
ur HB Granda, vefur forsætis-
ráðuneytisins og fleiri. Árás-
irnar voru gerðar til að mótmæla
hvalveiðum Íslendinga.
Fram kom í Vísi að Sensa, dóttur-
fyrirtæki Símans, hafi sent viðskipta-
vinum tölvupóst fyrir helgi þar sem
greint var frá að um skipulagðar
netárásir á vegum Anonymous væri
að ræða. Anonymous hefur staðið
fyrir margvíslegum tölvuárásum til
stuðnings málefnum eða í baráttu
gegn tilteknum öflum. Hópurinn hef-
ur lýst yfir stríði á hendur ISIS vegna
árásanna í París fyrir helgi. Í mynd-
bandi sem birtist á sunnudag var
því lýst að hakkararnir myndu
svífast einskis við að afhjúpa
og skaða hryðjuverkasamtök-
in.
Árásir Anonymous á ís-
lensku síðurnar munu hafa
valdið talsverðum truflunum. Á
Twitter-síðu hópsins voru birtar
myndir sem sýna áhrif árásanna, en
þar kom meðal annars fram að mbl.
is, stærsta fréttasíða landsins, hefði
tvisvar farið niður og verið óaðgengi-
leg. Tæknimönnum Sensa tókst þó að
koma upp fullnægjandi vörnum gegn
frekari árásum. n
Tölvuhakkarar réðust
á íslenskar síður
Hvalveiðar Íslendinga ástæða netárásanna
F
lokkurinn minn stendur ekki
við bakið á mér í þessu máli
og það þýðir ekkert að blanda
honum í þetta. Þetta er algjör-
lega mín eigin sannfæring og
ég fæ ekkert „backup“ í þinginu held-
ur, þannig að ég er svolítið hissa á því,“
segir Ásmundur Friðriksson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður
hvort hann teldi að Sjálfstæðisflokk-
urinn ætti að hætta að þiggja fjár-
framlög frá Símanum í ljósi þess að
hann hvatti þing og þjóð til að snið-
ganga og hætta viðskiptum við fjar-
skiptafyrirtækið úr ræðustól á Alþingi
í síðustu viku. Ásmundur gagnrýnir
harðlega umdeilda sölu Arion banka
á 5 prósenta hlut sínum í fjarskipta-
fyrirtækinu. Hann hvatti þó fólk ekki til
að ganga úr viðskiptum við bankann.
„Það er kannski líka hægt að segja
það. En ég vorkenni þessum mönn-
um ekki mikið sem haga sér svona,
en Arion banki má eiga það að hann
hefur þó viðurkennt mistök.“
„Óforskammað“
Ásmundur segir að hann hafi fundið
fyrir miklum stuðningi frá almenn-
ingi við gagnrýni sína á söluna, þar
sem hann telur „óforskammað“ að
yfirmenn og stjórnendur Símans
hafi fengið vildarkjör við kaup á hlut
Arion banka umfram aðra starfs-
menn fyrirtækisins.
„Það finnst mér mjög óheppilegt
og hef látið það í ljós. Þeir hefðu get-
að, eins og mér er sagt að mörg fyrir-
tæki geri, tekið frá ákveðið magn
hlutabréfa ætlað starfsmönnum.
Setja bréfin svo á markað þar sem
myndast verð og segja síðan að starfs-
menn fái 10 prósenta afslátt á mark-
aðsvirði af þessum pakka. Ég hugsa
að fáir hefðu sagt eitthvað við því, ég
hefði ekki gert athugasemdir við það
ef allir hefðu setið við sama borð. Það
er mjög mikilvægt í þessu máli.“
Umhugsunarverð framganga
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans, segir að
hafa beri í huga að lífeyrissjóðir eigi
meirihluta í Símanum og að það hafi
verið ákvörðun Arion banka hvern-
ig hann seldi meginþorra hlutar
síns í fyrirtækinu. Umhugsunarefni
sé þó að þingmaður nýti vald sitt til
að hvetja til að einstaka fyrirtæki sé
sniðgengið.
„Það er umhugsunarvert að þing-
maður beiti því valdi sem hann hefur
til þess að hvetja fólk til að hverfa
frá viðskiptum við þetta fyrirtæki í
von um að skaða framtíð þess. Það
er dapurlegt að hugsa til þess að
hafi orð hans áhrif skerðist ekki að-
eins hagur lífeyrissjóða í eigu lands-
manna heldur einnig þeirra 800
starfsmanna sem vinna hjá sam-
stæðunni og fjölskyldna þeirra,“ segir
Gunnhildur í skriflegu svari við fyrir-
spurn DV þegar leitað var viðbragða
við ummælum Ásmundar.
Boðið á fund með forstjóranum
Aðspurður hvort hann hafi fengið
einhver viðbrögð frá forsvarsmönn-
um Símans segir Ásmundur að Orri
Hauksson, forstjóri Símans, hafi haft
samband við hann fyrir helgi og boð-
ið honum til fundar við sig. Segir Ás-
mundur að sá fundur muni fara fram
á næstu dögum.
Styrkt Sjálfstæðisflokkinn
Fáheyrt er að þingmenn hvetji al-
menning til að hætta í viðskiptum
eða sniðganga tiltekin nafngreind
fyrirtæki í ræðustól Alþingis en
benda má á að Síminn, og þar áður
móðurfélags fyrirtækisins Skipti hf.,
hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn með
fjárframlögum undanfarin ár. Árið
2014 fékk flokkurinn 400 þúsund
króna hámarksframlag frá Símanum
og árin 2012 og 2011 styrkti Skipti hf.
flokkinn um sömu fjárhæð. Alls hef-
ur samsteypan því styrkt flokkinn
um 1,2 milljónir króna á síðustu fjór-
um árum. Kosningaárið 2013 styrkti
þar að auki Arion banki flokkinn um
350 þúsund krónur.
Persónulega fékk Ásmundur ekki
framlög frá þessum fyrirtækjum fyrir
prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna
þingkosninganna 2013. En eins og
hann segir sjálfur þá er aðeins um að
ræða hans persónulegu skoðun, sem
flokksbræður hans eru ekki sam-
mála. n
Sannfæring þingmanns
Ásmundur Friðriksson hvatti mjög
afdráttarlaust til þess að þing og
þjóð hætti viðskiptum við Símann.
Hann kveðst ekki njóta stuðnings
þingflokksins vegna þeirrar
skoðunar sinnar. Mynd SigTryggUr Ari
„Arion
banki
má eiga það
að hann hefur
þó viðurkennt
mistök
n Hvatti til sniðgöngu á Símanum n Fyrirtækið styrkt flokkinn talsvert
Píratar stærstir
með 35%
Píratar mælast með 35,3% fylgi
samkvæmt nýrri könnun MMR
á fylgi stjórnmálaflokkanna og
stuðningi við ríkisstjórnina. Fylgi
Sjálfstæðisflokksins mælist nú
23,7% borið saman við 21,7% í
síðustu könnun MMR þann 16.
október 2015.
Framsóknarflokkurinn fékk Í
könnuninni, sem var framkvæmd
á tímabilinu 26. október til 4. nóv-
ember, 10,8% fylgi samanborið
við 10,4% í síðustu könnun. Fylgi
Samfylkingarinnar mældist 10,5%
og hefur því dregist saman um
0,8 prósentustig síðan um miðjan
október. Vinstri græn mældust
með 9,9% fylgi og Björt framtíð
með 4,6%. Fylgi annarra flokka
mældist undir 1%.
Samkvæmt könnun MMR
styðja 33,1% landsmanna ríkis-
stjórnina. Þann 16. október mæld-
ist stuðningur við samstarf Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
31,4% og 35,5% í lok september.
Má heita
Sushisamba
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði veit ingastaðinn Sus hi sam ba í
Þing holts stræti af kröfum Samba
LLC, eiganda
vörumerkisins
Sushisamba
í nokkrum
löndum, um
að skráning
vörumerk-
isins sushi-
samba hér
á landi yrði
ógilt. Samkvæmt dómi héraðs-
dóms taldi Einkaleyfastofa merki
Samba LLC ekki hafa öðlast vernd
á Íslandi og að ósannað væri
að eigendur veitingastaðarins í
Reykjavík hefðu þekkt erlenda
merkið við upphaf síns reksturs.