Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Page 15
Kynningarblað Kynningarblað Skreytum húsið Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 17. nóvember 2015 F öndurlist er verslun í versl- unarmiðstöðinni Holtagörð- um 104 í Reykjavík. Versl- unin sérhæfir sig í vöru til skreytinga og föndurs auk gífurlegs úrvals af myndlist- arvöru. Þar er einnig fjölbreytt úr- val af hannyrðavöru. Enn fremur selur Föndurlist efni í skartgripa- gerð og nýtur það mikilla vinsælda. Í jólavertíðinni ber mikið á efni til jólaskreytinga en fyrir fólk sem vill búa til jólagjafir sjálft er Föndurlist án vafa staðurinn því í versluninni fæst afar margt til að gera persónu- legar og einstakar jólagjafir. Meðal þess sem fólk gerir til jólagafa úr vöru frá Föndurlist eru til dæmis sápur og kerti auk skartgrip- anna áðurnefndu. Til jólaskreytinga er keypt efni til að skreyta jólakúlur, kerti, poka og margt annað en allt laust skraut, tilbúin kerti, stafir og fleira er til í miklu úrvali hjá Föndurlist. Í Föndurlist er mikið úrval af efni í handgerð jólakort – sjón er sögu ríkari! Nú þegar jólin nálgast eykst að- sókn sífellt í verslunina og börn hafa ekki síður gaman að koma í Fönd- urlist en fullorðnir enda er þar margt afar heillandi að skoða og til að vinna með í föndri og gjafagerð. n Jólaföndrið og jólagjafirnar Föndurlist í Holtagörðum Dönsk hönnun og fegurð heilla Söstrene Grene í Kringlunni og Smáralind Í versluninni Söstrene Grene í Kringlunni og Smáralind er hægt að fá smekklegar hönnunarvörur til jólagjafa, jólaskreytingar og margs konar föndurvörur. Að auki er boðið upp á leikföng, matvör- ur, eldhúsáhöld, kerti, ritföng og veisluvarning. Söstrene Grene er dönsk keðja og selur mikið af rómaðri danskri hönnun en einnig sækja hönnuðir áhrifa til Spánar og Austurlanda. Verslanirnar eru byggðar upp eins og austurlenskur markað- ur og viðskiptavinurinn upplifir að hann sé staddur á slíkum stað. Mik- ið er lagt upp úr uppstillingum á vör- um, litum og notalegri tónlist, ásamt sterkri og ljúfri angan af tei og kertum. Á boðstólum er ætíð mikið úrval vinsælla vara sem eru ávallt fáanlegar en jafnframt koma reglulega nýjar og spennandi vörur og eru þær mismun- andi frá einni viku til annarrar. Mikl- ar kröfur eru gerðar til gæða og nota- gildi vörunnar en ýmsar vörur eru sérstaklega hannaðar af listhneigð- um hönnuðum sem starfa einungis hjá Söstrene Grene í Danmörku. Söstrene Grene opnaði fyrstu verslun sína á Íslandi í desember 2005 og aðra í Kringlunni í maí 2012. Þrátt fyrir að verslanirnar séu á höf- uðborgarsvæðinu eiga þær stóran og dyggan hóp viðskiptavina af lands- byggðinni. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.