Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Page 17
Vikublað 17.–19. nóvember 2015 Kynningarblað - Skreytum húsið 3 Jólaseríur á 15 til 20% lægra verði í ár Garðheimar skila niðurfellingu vörugjalda og hagstæðara gengi að fullu út í verðlagið Þ róunin í jólaseríum síðustu ár er sú að það er allt að færast í LED. Í dag er miklu meira úrval af LED þannig að fólk getur valið um mis- sterka birtu. Það er ekki lengur bara þetta mjög skæra ljós sem var áður í LED-perunum heldur er hægt að fá mismunandi tóna, allt frá því sem kallað er heitur hvítur litur, sem er dálítið brúnleitur, og út í þenn- an kalda hvíta sem er bláleitur. LED býður upp á alla þessa lita- möguleika í dag.“ Þetta segir Kristín Helga Gísla- dóttir, framkvæmdastjóri Garð- heima, en tilkoma LED peranna gerir jólaseríur bæði hagstæðari í notkun og þægilegri í uppsetningu. „LED hefur svo margt umfram gömlu perurnar. Endingin er miklu meiri, hún eyðir mun minna raf- magni, það getur verið allt að 60– 70% minni rafmagnsnotkun sem er mikill sparnaður. Breytingin hefur verið hröð því það eru ekki mörg ár síðan LED-perur komu á markað- inn en nú eru þær 95% af jólaseríu- markaðnum.“ Kristín bendir á að samtengdar seríur fari núna mjög vaxandi með tilkomu LED-peranna en hægt er að tengja saman allt að tíu seríur á einn tengil. Þannig er hægt að vera með allt að 100 metra af seríum á einum tengli. „Þetta er mikill munur því áður þurfti fólk að vera með fjöltengi úti um allt sem er einstaklega óæskilegt í bleytu,“ segir Kristín. Aðspurð segir Kristín að notkun ljósasería sé ekki lengur bundin við aðventuna og jólin: „Fólk er byrjað að setja seríurn- ar upp fyrr og líka hafa þær leng- ur. Sumir eru farnir að láta seríurn- ar loga í þrjá til fjóra mánuði. Þú slekkur á rauðu ljósunum en það er í lagi að hafa þessi glæru bara alveg þar til fer að birta.“ Umtalsverð lækkun á verði jóla- sería glæðir enn áhugann á þessum skreytingum. „Um síðustu áramót féllu niður vörugjöld af öllum seríum. Það eru ennþá tollar en vörugjöldin sem voru 15% hafa verið felld nið- ur. Við þetta bætist hagstæðara gengi og samanlagt þýðir þetta að allar seríur í ár eru 15 til 20% ódýr- ari hjá okkur. Margir viðskiptavin- ir sjá greinilega þennan mikla mun og tala um hvað skipti miklu máli að geta séð það svart á hvítu að svona breytingar skili sér til neyt- enda,“ segir Kristín en Garðheimar hafa kappkostað að láta þessar hag- stæðu breytingar skila sér að fullu í lækkuðu verði á jólaseríum. Það er því engin furða þó að fólk leyfi sér í auknum mæli að skreyta hús sín með jólaseríum í ár: LED- perurnar gera það að verkum að seríurnar eyða 60–70% minna raf- magni en áður, perurnar endast miklu lengur en áður og þær hafa lækkað í verði um 15 til 20%. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.