Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Qupperneq 4
4 Fréttir Vikublað 24.–26. nóvember 2015 Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Vilja engu svara um kaupskyldu álversins n Landsvirkjun og Rio Tinto tjá sig ekki um raforkusamning n Fundað í dag F orsvarsmenn Rio Tinto Alcan á Íslandi og Landsvirkjunar vilja ekki svara því hvort raf­ orkusamningur fyrirtækjanna frá árinu 2010 inniheldur fyrir­ vara um að álverið í Straumsvík losni undan kaupskyldu á orkunni fari svo að því verði lokað tímabundið eða til frambúðar ef til verkfalls starfsmanna þess kemur. Samningurinn gildir til ársins 2036 en sérfræðingur í orku­ málum telur afar ólíklegt að fram­ leiðslustöðvun vegna verkfalls losi álverið undan kaupskyldunni til fram­ búðar. Fyrirtækið þurfi því áfram að greiða um 100 milljónir Bandaríkja­ dala, tæpa þrettán milljarða króna, á ári fyrir orkuna þrátt fyrir að slökkt yrði á öllum 480 kerum álversins í byrjun næsta mánaðar. Trúnaðarmál Magnús Þór Gylfason, yfirmaður sam­ skiptasviðs Landsvirkjunar, segir full­ trúa ríkisfyrirtækisins ekki vilja tjá sig um „viðkvæma kjaradeilu“ álversins og starfsmanna þess. Í skriflegu svari hans við fyrirspurn DV er bent á að raforkusamningurinn gildi til ársins 2036 og að hann hafi verið endur­ skoðaður í desember í fyrra með óbreyttum samningstíma. „Ég get ekkert tjáð mig um raforku­ samninginn við Landsvirkjun enda eru ákvæði hans trúnaðarmál,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsinga­ fulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, í samtali við DV. Starfsmenn álversins fara að óbreyttu í verkfall 2. desember næst­ komandi en kjaradeila þeirra við fyrir­ tækið hefur staðið yfir síðan í sum­ ar. Ólafur Teitur sagði í viðtali við Morgunblaðið á mánudag að ekki sé sjálfgefið að álverið verði opnað aftur fari svo að því verði lokað vegna verk­ fallsins. Að hans sögn er aðalágrein­ ingsefnið það að álverið vill aukn­ ar heimildir til að bjóða út verk eins og rekstur mötuneytis, hliðvörslu og þvottahúss álversins. Það geti álverið ekki í dag ólíkt öðrum fyrirtækjum hér á landi vegna ákvæða í kjarasamning­ um sem voru gerðir árið 1972. „Það er samningafundur á morgun [þriðjudag innsk. blm.]. Þá hittumst við hjá ríkissáttasemjara annars vegar samninganefndir Samtaka atvinnu­ lífsins og álversins og hins vegar verkalýðsfélaganna sem eiga aðild að kjarasamningunum. Við höfum ekki farið fram á neitt annað en að okk­ ar starfsumhverfi verði líkara því sem að önnur fyrirtæki búa við. Við greið­ um samkeppnishæf laun og erum að bjóða samkeppnishæfar launahækk­ anir,“ segir Ólafur. Mikið magn Samningur álversins og Landsvirkjun­ ar var undirritaður árið 2010 og gild­ ir eins og áður sagði út næsta 21 árið. Samkvæmt honum greiðir álverið um 100 milljónir dala á ári fyrir þrjár tera­ wattsstundir af raforku. Samningur­ inn er ólíkur öðrum raforkusamning­ um sem íslensk álver hafa gert að því leytinu til að verðið sem Rio Tinto Alc­ an kaupir orkuna á er ekki tengt við ál­ verð. Landsvirkjun og stjórnendur ál­ versins sömdu árið 2010 um raforku sem álframleiðandinn hafði tryggt sér í eldri samningum við ríkisfyrirtækið. Var þar um að ræða 335 MW af orku en einnig var samið um kaup á 75 MW til viðbótar vegna áforma um að auka framleiðslugetu álversins. Sú aukn­ ing náðist ekki að fullu og því endur­ sömdu fyrirtækin í desember í fyrra og fékk Rio Tinto þá að skila 35 MW af afli. Álverið er í dag með kaupskyldu á terawattstundunum þremur en sú orka nemur um fjórðungi af allri raf­ orkuframleiðslu Landsvirkjunar. n Talsmaður álversins Ólafur Teitur Guðnason hefur bent á að það verði afar kostnaðarsamt fyrir álverið að endurræsa ker þess ef til verkfalls starfsmanna kemur. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is „Blöff“ fyrir betri samningi Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum og eigandi Orkubloggsins, segir að ef verkfall starfsmanna álversins í Straumsvík skellur á þá muni það óhjá- kvæmlega leiða til einhvers fjártjóns fyrir fyrirtækið en að hann telji nánast útilokað að því verði lokað til frambúðar. Afar ólíklegt sé að fyrirtækið geti nýtt sér verk- fallið til að losna undan kaupskyldunni. „Það er örugglega ákvæði í orkusamn- ingi Landsvirkjunar og Rio Tinto að það sé heimilt að fella tímabundið niður raforku- viðskipti af hálfu álversins ef til verkfalls kemur. Ég ítreka þó að ég hef ekki séð þennan samning. En ef álverið ætlar að stilla þessu upp þannig að það sé svo kostnaðarsamt að endurræsa það að það ætli þess vegna einfaldlega að loka þá finnst mér afar hæpið að það kæmist upp með að losna undan kaupskyldunni. Það eru til margar leiðir til að leysa úr svona vinnudeilum og að auki tel ég að það sé ekki raunverulegur vilji til að loka álverinu heldur að þetta sé eingöngu „blöff“ til að þrýsta á að álverið nái hagstæðum kjarasamningi,“ segir Ketill. n „Ég get ekkert tjáð mig um raforku- samninginn við Lands- virkjun enda eru ákvæði hans trúnaðarmál. Straumsvík Um 450 manns vinna í álverinu og verkfall hefst 2. desem- ber náist ekki samningar. Margrét sagði upp Margrét Frímannsdóttir, fang­ elsisstjóri á Litla­Hrauni, hefur sagt upp störfum. DV.is greindi frá þessu á mánudag en Margrét hefur gegnt embættinu undan­ farin sex ár. Samkvæmt heimild­ um DV sendi Margrét tölvupóst á samstarfsmenn sína og tilkynnti að hún hygðist ekki halda áfram störfum. Tímasetning uppsagnar­ innar þykir sérstök, enda vika í mánaðamót, en ekki hafa fengist upplýsingar um af hverju Margrét ákvað að láta af störfum. Hvorki hafði náðst í hana né Pál Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar, þegar blaðið fór í prentun, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. OR hagnast um þrjá milljarða Orkuveita Reykjavíkur (OR) hagnaðist um 3,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Að­ gerðaáætlunin Planið, sem hleypt var af stokkunum í ársbyrjun 2011, hafði í lok september skilað fyrirtækinu 53,2 milljörðum króna í bættri sjóðstöðu. Það er 7,3 milljörðum króna umfram markmið tímabilsins. Þetta kem­ ur fram í uppgjörstilkynningu sem OR sendi frá sér á mánudag. Bjarni Bjarnason, forstjóri fyrir­ tækisins, segir þar að sparnaður í rekstri sé varanlegur og að hag­ sýni sé gætt í hvívetna. „Ég tel að tekist hafi að skapa meiri sátt um starfsemi OR og við munum leggja okkur fram um að viðhalda henni,“ segir Bjarni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.