Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Blaðsíða 23
Umræða 19Vikublað 24.–26. nóvember 2015
Ég er nú bara venjuleg
stelpa úr Reykjavík
Ég segi það við ykkur; stígið
fram, segið sögu ykkar
Rut Kristjánsdóttir er ánægð með að tekið hafi verið á máli móður sinnar. – DV
Myndin Uppnám í Belgíu Belgíska lögreglan hefur staðið í ströngu vegna þeirrar hryðjuverkaógnar sem vofir yfir Evrópu þessa dagana. Hér fara lögregluþjónar inn í lest í Brussel en ríflega 20 manns hafa verið handteknir
í aðgerðunum. mynd EPA
Við stöndum við stóru orðin
M
iðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins fór fram
um helgina. Þar fór for-
sætisráðherra, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson,
yfir þann árangur sem orðið hefur á
kjörtímabilinu. Frá því að ríkisstjórn
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks-
ins tók við völdum þá hafa orðið til
um 1.500 ný störf hér á landi. Nú er
hagvaxtarspá rúmlega 5%, fjárfesting
að aukast víða um land og atvinnu-
leysi komið niður í um 3%. Jafnframt
er verðbólga minni og stöðugri en
hún hafði verið um langt skeið og
kjarabætur í formi kaupmáttaraukn-
ingar eru meiri en áður hefur sést, á
svo stuttum tíma. Það er því óhætt
að halda því fram að á þessu kjör-
tímabili hefur verið staðið við stóru
orðin. Við höfum náð árangri í mörg-
um stórum málum og sá árangur er
hvatning til að gera enn betur.
Hvað hefur verið gert?
Með aðgerðum ríkisstjórnar Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokksins þurfa
kröfuhafar gömlu bankanna að skila
hundruðum milljarða í þjóðarbúið.
Þegar litið er á heildarumfang þeirra
aðgerða, þá eiga stöðugleikaskil-
yrðin og aðrar ráðstafanir vegna los-
unar fjármagnshafta að nema 856
milljörðum. Aðgerðirnar hafa veru-
lega jákvæð áhrif á skuldastöðu ríkis-
sjóðs sem mun batna til muna. Það
gerir það að verkum að vaxtagjöld
ríkissjóðs munu lækka og því verð-
ur meira svigrúm til uppbyggingar á
innviðum samfélagsins til framtíðar.
Leiðrétting á verðtryggðum hús-
næðisskuldum heimilanna hefur
náð fram að ganga. Þar fóru 80
milljarðar í beina niðurfellingu og
70 milljarðar í séreignasparnaðar-
leiðina. Heildarumfang aðgerðar-
innar var því 150 milljarðar. Vert er
að geta þess að 69 þúsund umsóknir
bárust frá 105 þúsund einstaklingum
vegna þessarar almennu skuldaað-
gerðar. Gaman hefur verið að fá frétt-
ir frá fólki sem er ánægt með leið-
réttinguna. Segja hana hafa góð áhrif
á heimilisbókhaldið. Segjast geta
farið 2–3 sinnum í matvöruverslun-
ina fyrir þá upphæð sem lánið lækk-
ar um. Alla munar um það. Auðvitað
er það mismunandi hvað lánin lækk-
uðu, fer allt eftir skuldahlutfalli hvers
og eins. En þak aðgerðarinnar var
fjórar milljónir.
Ef litið er til heilbrigðismála
og fjárlaga fyrir árið 2016, þá eru
heildarútgjöld til málaflokksins rétt
tæplega 162 milljarðar. Raunaukning
til málaflokksins er 4,4 milljarðar á
milli ára en ef við berum saman fjár-
lög frá 2013 til 2016 þá er raunaukn-
ing til málaflokksins um 16,4%.
Þarna er um að ræða verulega fjár-
muni enda var þörfin orðin mikil og
nauðsynlegt að halda áfram á sömu
braut.
Auk þessa munu bætur almanna-
trygginga og atvinnuleysisbætur
hækka um 9,4%, samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi næsta ár. Samtals leið-
ir þetta til 9,6 milljarða útgjalda-
auka en þegar tekið hefur verið tillit
til fjölgunar lífeyrisþega og annarra,
nemur hækkunin samtals 11 millj-
örðum.
Hvað er framundan?
Eins og fram kemur hér að framan þá
höfum við náð árangri. Sá árangur er
hvatning til að halda áfram á sömu
braut. Þau verkefni sem framund-
an eru, eru m.a. að halda áfram
að byggja upp innviði samfélags-
ins, heilbrigðiskerfið og önnur vel-
ferðarmál eins og húsnæðismálin.
Vinna að afnámi verðtryggingar og
endurskipulagningu fjármálakerf-
isins. Auk þessa verður klárað að
endurskoða stjórnarskrá, unnið að
ljósleiðaravæðingu Íslands og kom-
ið fram með byggðastefnu þar sem
markmiðið er að styrkja byggð-
ir landsins og bæta þjónustu. Í lok
þessarar greinar vil ég gera orð sem
ég heyrði, að mínum orðum. Þessi
orð eru „ég hafna goðsögninni um
hið ömurlega Ísland. Hér er margt
gott en annað sem þarf að bæta. En
Ísland er ekki alslæmt og alls ekki
ömurlegt.“ n
„Hér er margt gott
en annað sem þarf
að bæta.
Elsa Lára Arnardóttir
þingmaður Framsóknarflokksins
Kjallari
mynd dV SigtRyggUR ARi
Ég var rúmliggjandi í
næstum þrjá mánuði
Róbert Wessman um afleiðingar reiðhjólaslyss. – PedalarAníta margrét Aradóttir tók þátt í erfiðustu kappreiðum heims. – DV