Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Blaðsíða 32
28 Menning Vikublað 24.–26. nóvember 2015
Skuggamyndir
andlita í hönnun
n DV tekur dæmi um hönnun nokkurra menningarafurða sem eru áberandi í dag
S
kuggamyndir sjálfsins
eru ekki bara í forgrunni í
skáldævisögum sem hafa
verið áberandi í yfirstand-
andi jólabókaflóði. Tíðar-
andinn er sterkur í hönnun eins og
öðru. Eitt helsta trendið í hönnun
kynningarefnis fyrir menningar-
afurðir á Íslandi í dag eru skugga-
myndir af andlitum, með einlitan
bakgrunn utan við útlínur andlitsins
sem er svo fyllt með annarri mynd –
helst af íslenskri náttúru.
DV tók saman nokkur dæmi. n
Þrestir Á hvítu kynningarplakati
kvikmyndarinnar Þrestir er andlitum
aðalleikaranna, Atla Óskars Fjalarssonar og
Ingvars E. Sigurðssonar, skellt saman í einn
Janusarhaus sem er svo fylltur með mynd af
náttúru Vestfjarða.
Kristín Guðmunds-
dóttir Fjallkona Ingibjargar minnir
umtalsvert á skuggamynd af andliti
Kristínar Guðmundsdóttur, híbýlafræðings,
sem prýðir nýja bók um ævi hennar og
hönnun. Skuggamynd Kristínar er fyllt með
litarenningum sem gætu sæmt sér vel í
innanhússhönnun hennar.
Stelpur Kápuna á nýrri sjálfstyrkingar-
bók Kristínar Tómasdóttur, Stelpur – tíu skref að
sterkari sjálfsmynd, prýðir mynd af höfundinum
sjálfum. Fínni drættir andlitsins eru sýnilegir á
ljósmyndinni, en skyggða hluta andlitsins er
blandað saman við aðra mynd af tjátoppum,
sindrandi stjörnuhimni og fuglum.
Fjallkonan Sama má segja um
andlit sögupersónunnar Ríkeyjar sem prýðir
kápu skáldsögunnar Fjallkonan eftir
Ingibjörgu Hjartardóttur. Þetta er hrein
skuggamynd af konuandliti með uppsett
hár, en himinn, fjöll og fjörður fylla inn í
myndina.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Helgi Björns
Blá fjöll og fjörður fylla
einnig upp í skeggjaða
skuggamynd Helga
Björnssonar á hulstri
nýjustu plötu hans,
Veröldin er ný.
Þ
að er hægt að gera margt
annað við þrívídd en að
sprengja upp byggingar. Fyrr
á árinu sáum við franska ný
(gömlu)bylgjuþrívídd hjá Jean-Luc
Godard og um daginn fengum við
tvíburaturnana í öllu sínu veldi þegar
Frakki gekk á milli þeirra á stálvír
(The Walk). Hér er það hins vegar
kynlífið sem um ræðir.
Nóg er af því, og er það notað á
hugmyndaríkan (eða kannski öllu
heldur augljósan) hátt þar sem
það sprettur út úr skjánum. Það
sem hneykslar hvað mest er þó hve
amerísk mynd hins argentínska
Noé er. Hinn vel limaði en annars
persónuleikalausi Murphy kemur til
Parísar þar sem evruskvísurnar eiga
erfitt með að standast hann. Hann
byrjar með einni og barnar aðra, sem
setur tilvistarkreppu hans af stað.
Í millitíðinni lemur hann fyrr-
verandi kærasta annarrar þeirra og
lendir á lögreglustöð þar sem hann
heldur hina óhjákvæmilegu ræðu
um að Kanar séu duglegri í stríðum
en Frakkar. Hann fer á kynlífsklúbb
eins og lenska er þar um slóðir en
tryllist af afbrýðisemi þegar konan
hans hagar sér þar eins og hann. Að
lokum segja evrómennirnir honum
að hann verði að hætta að vilja eigna
sér allt og læra að deila.
Love 3D er nýjasta myndin sem
reynir að þurrka út mörkin milli
kláms og listar, en virðist þó liggja
lítið annað á hjarta, ólíkt til dæmis
Paradise: Love eða jafnvel hinni ís-
lensku Webcam. Megingalli henn-
ar er hve litla samúð maður hefur
með persónum sem búa um rúm sitt
sjálfar en vilja síður sofa í því. Gaspar
Noé getur talsvert betur en þetta. n
Þrenning í þrívídd
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Love 3D
IMDb 6,4 RottenTomatoes 40% Metacritic 51
Leikstjórn og handrit: Gaspar Noé
Aðalhlutverk: Karl Glusman og Aomi
Muyock
135 mínútur