Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 6
Vikublað 24.–26. nóvember 20156 Fréttir L aun forsætisráðherra Íslands hafa hækkað um 456 þúsund krónur á mánuði, eða 48,7 prósent, frá 1. janúar 2009, eftir nýjustu ákvörðun kjara- ráðs þann 17. nóvember síðast- liðinn um að hækka laun allra þeirra sem undir ráðið heyra um 9,3 pró- sent, afturvirkt til 1. mars á þessu ári. Laun forsætisráðherra hafa hækkað um 18,5 prósent umfram launavísi- tölu auk þess sem hann mun fá ein- greiðslu upp á ríflega milljón vegna þess að hækkunin er afturvirk um níu mánuði. DV tók saman launa- þróun þjóðkjörinna fulltrúa aftur í tímann í ljósi nýjustu ákvörðunar kjararáðs auk þess að skoða hvað hækkunin þýðir fyrir aðra embætt- ismenn og stjórnendur sem undir ákvörðunarvald ráðsins heyra. Ráðherrar hækka umfram vísitölu launa Eins og sjá má á meðfylgj- andi töflu þá hafa forsætis- ráðherra og aðrir ráðherr- ar ríkisstjórnarinnar notið góðs af hækkunum undan- farinna ára. Þannig hefur forsætisráðherra hækk- að úr 935 þúsund krón- um á mánuði í 1.391 þúsund við ákvörðun kjararáðs nú. Laun Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson- ar voru samkvæmt ákvörðun ráðsins í fyrra 1.272 þúsund krónur og hækkuðu því um 119 þúsund krónur á mánuði. 48,7 prósenta launahækkun for- sætisráðherra frá ársbyrj- un 2009 þýðir að raunhækk- un launa hans hefur verið 18,5 prósent. Það er miðað við þá stað- reynd að vísitala launa hefur frá janúar 2009 til mars 2015 – þangað sem hækkunin nú nær aftur til – hækkað um 41,1 prósent. Aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar hafa hækkað um 47 prósent í laun- um frá hruni. Mánaðarlaun þeirra hafa hækkað um 402 þúsund krónur á tímabilinu sem ger- ir raunhækkun upp á 14,2 prósent. Vegna nýju- stu hækkunarinnar hækka þeir um 107 þúsund krónur á mánuði milli ára og fá eingreiðslu upp á 963 þúsund vegna þess að hún er afturvirk um níu mánuði. Þingmenn hálfdrættingar Af öðrum þjóðkjörnum fulltrúum hafa hins vegar almennir þingmenn og forseti Íslands setið eftir og hefur orðið raunlækkun á launum þeirra miðað við launa- vísitölu. Þingmenn hafa frá hruni hækkað úr 520 þúsund upp í 712 þúsund nú eða 36,9 prósent. Það gerir 10,9 pró- senta raunlækkun launa. Við hækkunina nú hækka laun þingmanna um 61 þúsund krónur á mánuði og fá þeir 549 þúsund krónur vegna aft- urvirkni. Eftir breytinguna nú eru þingmenn því svo að kalla hálfdrættingar forsætisráðherra í launum. Við grunnlaun þingmanna bæt- ast síðan margvíslegar álagsgreiðsl- ur og sporslur sem hækkað geta laun þeirra verulega. Þannig fær þingmaður sem ekki er ráðherra en er formaður flokks sem fékk þrjá eða fleiri þingmenn kjörna 976 þúsund krónur á mánuði vegna 50 prósenta álagsgreiðslu. Þingmenn og ráðherrar utan höfuðborgar- svæðisins fá mánaðarlega greidd- Svona hækka laun þeirra sem öllu ráða n Laun ráðherra hækkað umfram vísitölu launa frá hruni n Þjóðkjörnir fulltrúar fá tugmilljónir í eingreiðslur Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Úrskurður kjararáðs Æðstu stjórnendur undir kjararáði njóta góðs af árangri kjarabaráttunnar Í 10. gr. laga um kjararáð nr. 47/2006 segir að ráðið skuli taka mál til meðferðar þegar því þyki þurfa og ætíð ef orðið hafa verulegar breytingar á þeim launum í þjóðfélaginu sem höfð skulu til viðmiðunar samkvæmt lögunum eða á störfum þeirra sem úrskurðarvald þess tekur til. Á yfirstandandi ári hefur verið samið um laun og starfskjör bæði á almennum vinnumarkaði og við opinbera starfsmenn. Ríkið hefur lokið kjarasamningum við flesta viðsemjendur sína. Kjararáð telur að meginlínur í kjarasamningum séu orðnar það skýrar að ráðið geti nú úrskurðað um almenna launahækkun til þeirra sem undir ráðið heyra. Lágmarkshækkun samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði á árinu 2015 er 3,2% en mesta hækkun 7,2%. Gildistími samninganna var frá 1. maí 2015. Úrskurð- ur gerðardóms samkvæmt lögum nr. 31/2015 um launakjör 18 aðildarfélaga í Bandalagi háskólamanna (BHM) og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) leiddi til 9,3% hækkun- ar launa að meðaltali á árinu og er leiðrétting á launatöflum þar meðtalin. Hækkun til félaga í BHM gilti frá 1. mars 2015 en FÍH frá 1. maí 2015. Niðurstaða gerðardóms hefur í aðalatriðum verið lögð til grundvallar í samningum ríkisins við stór stéttarfélög. Með hliðsjón af framan- greindu ákveður kjararáð að laun skuli hækka eins og í ákvörðunarorði segir. Ákvörðunarorð Laun þeirra sem ákvörðunarvald kjararáðs nær til skulu hækka um 9,3% frá og með 1. mars 2015. „Launahækkun for- sætisráðherra frá ársbyrjun 2009 þýðir að raunhækkun launa hans hefur verið 18,5%. Langt umfram vísitölu launa Laun forsætisráð- herra Íslands hafa hækkað hratt frá ársbyrjun 2009 eða um 456 þúsund krónur. Eru launin nú 1.391 þúsund á mánuði. Hækkun launa forsætisráðherra á tímabilinu er 18,5 prósentum umfram hækkun vísitölu launa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.