Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 7
Vikublað 24.–26. nóvember 2015 Fréttir 7 n Laun ráðherra hækkað umfram vísitölu launa frá hruni n Þjóðkjörnir fulltrúar fá tugmilljónir í eingreiðslur Lögreglustjórinn á höfuðborgarsv. 1. febrúar 2014 - 874 þús. 1. mars 2015 - 955 þús. Krónutöluhækkun - 81 þús. Eingreiðsla - 729 þús. Seðlabankastjóri 1. febrúar 2014 - 999 þús. 1. mars 2015 - 1.092 þús. Krónutöluhækkun - 93 þús. Eingreiðsla - 837 þús. Bankastjóri Landsbankans 1. febrúar 2014 - 966 þús. 1. mars 2015 - 1.056 þús. Krónutöluhækkun - 90 þús. Eingreiðsla - 810 þús. Útvarpsstjóri 1. febrúar 2014 - 874 þús. 1. mars 2015 - 955 þús. Krónutöluhækkun - 81 þús. Eingreiðsla - 729 þús. Forstjóri Fjár- málaeftirlitsins 1. febrúar 2014 - 903 þús. 1. mars 2015 - 987 þús. Krónutöluhækkun - 84 þús. Eingreiðsla - 756 þús. Ráðuneytisstjórar 1. febrúar 2014 - 966 þús. 1. mars 2015 - 1.056 þús. Krónutöluhækkun - 90 þús. Eingreiðsla - 810 þús. Ríkislögreglustjóri 1. febrúar 2014 - 903 þús. 1. mars 2015 - 987 þús. Krónutöluhækkun - 84 þús. Eingreiðsla - 756 þús. Svona hækka embættismenn og aðrir starfsmenn Valdir embættismenn og aðrir sem heyra undir ákvörðunarvald kjararáðs ar 131.400 krónur í húsnæðis- og dvalarkostnað að auki og svo mætti lengi telja. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk fyrr á þessu ári frá fjármála- skrifstofu Alþingis fellur ferða- kostnaður út þegar þing- menn verða ráðherrar en þeir sem eiga rétt á húsnæðis- og dvalar- kostnaði halda honum þegar þeir verða ráðherrar. Þá halda ráðherr- ar, líkt og þing- menn, réttinum til að fá endur- greiddan kostnað sem hlýst af starfi þeirra gegn fram- vísun reikninga, að hámarki rúm- lega ein milljón á ári. Forsetinn situr eftir en kvartar ekki Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, hefur hins vegar setið mest eftir þó að hann kvarti nú ekki yfir launum sínum. Þó að hann hafi hækkað úr 1.827 þúsund krónum á mánuði í ársbyrjun 2009 í 2.314 þús- und krónur nú, eða um 26,6 prósent og tæpa hálfa milljón á mánuði þá hafa laun hans síður en svo fylgt launavísitölu. Nemur raunlækkun launa hans miðað við launavísitölu 35 prósentum. Við hækkunina nú hækka mánaðarlaun forsetans um 197 þúsund krónur auk þess sem hann fær eingreiðslu upp á 1.773 þús- und krónur vegna afturvirkni ákvörðunarinnar. Tugmilljóna eingreiðslur Gagnrýnt hefur verið og athygli vak- ið að ákvörðun kjararáðs skuli vera afturvirk, níu mánuði aftur í tímann eða til 1. mars. Það þýðir að upp- söfnuð hækkun á þessu tímabili verður greidd út til þeirra sem heyra undir kjararáð. Ef þessi eingreiðsla, bara til níu ráðherra, forsætisráð- herra og forseta Íslands, er skoðuð má sjá að greiðslur til þessara ellefu einstaklinga mun nema 11,5 milljónum króna. Eru þá ótaldir þeir 53 þingmenn sem fá tæpar 550 þúsund krónur hver. Svona hækka hinir En það eru ekki bara þjóðkjörnir full- trúar sem nutu góðs af ákvörðun kjararáðs á dögunum. Það gera líka dómarar, ráðuneytisstjórar, skrifstofu- stjórar í Stjórnarráði Íslands, forstöðu- menn ríkisstofnana og annarra rík- isstarfsmanna sem svo er háttað um að þau geta ekki ráðist með samn- ingum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Ráð- ið ákveður einnig laun og starfskjör framkvæmdastjóra hlutafélaga og annars konar félaga sem eru að meirihluta í eigu ríkisins og félaga sem eru að meirihluta í eigu þeirra félaga. Í töflunni hér á síðunni má sjá hvernig hækkunin skilar sér til nokkurra valinna starfsmanna, annarra en þjóðkjörinna, sem undir ráðið heyra. Þar ber að hafa í huga að hérna er að- eins mið- að við grunn- launa- flokka við- kom- andi embætta. Í launatölum eru ekki teknar með aukaeiningar sem við- komandi stjórnendur fá og leggjast ofan á grunnlaun mánaðarlega sam- kvæmt launatöflu kjararáðs. Þá ýmist vegna yfirvinnu eða álags. Ein eining er 1% af launaflokki 132, sem gerir í dag 7.818 krónur. Sem dæmi má nefna þá fær Seðla- bankastjóri 80 slíkar einingar á mánuði ofan á ofangreind grunn- mánaðarlaun fyrir „yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir“ skv. ákvörðun kjararáðs 29. júní 2013. Már yfir milljónina Þannig má sjá að grunnlaun Sig- ríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lög- reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, hækka um 81 þúsund krónur á mánuði við ákvörðun kjararáðs nú auk 729 þúsund króna eingreiðslu vegna afturvirkni ákvörðunar- innar. Már Guðmundsson seðla- bankastjóri rýfur einnar milljónar markið með því að grunnlaun hans hækka um 90 þúsund. Hann fær einnig 810 þúsund króna ein- greiðslu vegna afturvirkninnar. n M esta hækkunin sam- kvæmt kjarasamn- ingum á almennum vinnumarkaði í ár nam 7,2 prósentum. Samkvæmt kjarasamningi VR og Samtaka atvinnulífsins, sem undirritaður var 29. maí 2015, er grunnhækkun launa við gildis- töku samningsins 7,2 prósent fyrir starfsmann sem er með 300 þús- und krónur í laun eða lægri og hóf störf hjá launagreiðanda fyrir 1. febrúar 2014. Ef við ímyndum okkur launa- mann sem var með 290.000 krónur á mánuði fyrir þennan samning, þá hækkaði hann upp í 310.880 krónur við undirritun hans miðað við þessar forsendur. Það er krónutöluhækkun upp á 20.880 krónur. En þessi launahækkun fer samt stiglækkandi hjá þeim sem eru með hærri laun en 300 þús- und og lækkar jöfnum skrefum niður í 3,2 prósent hjá fólki með 750 þúsund eða meira í laun. Meirihluti þeirra sem tiltekn- ir eru hér í umfjölluninni um nýjustu launaákvörðun kjararáðs er hátekjufólk í þessum skilningi. Þegar kjararáð ákvarðaði öllum sem undir ráðið heyra flata 9,3 prósenta launahækkun er ljóst að allir þeir sem eru með 750 þúsund krónur eða meira á mánuði eru að fá umtalsvert meiri hækkun nú en launajafnokar þeirra á hinum al- menna markaði. Einstaklingur á hinum almenna markaði fer úr 750 þúsund í 764 þúsund við 3,2 prósenta hækkun en embættismaður undir kjararáði fer úr 750 þúsund í 820 þúsund við 9,3 prósenta hækkun ráðsins. n Hækka mun meira en lægstu launin Hækkun kjararáðs hærri en á almenna vinnumarkaðinum Launaþróun þjóðkjörinna 2009–2015 Samkvæmt launatöflum kjararáðs Staða 1. jan. 2009 1. feb. 2014 1. mars 2015 Forsætisráðherra 935 þús. 1.272 þús. 1.391 þús. Ráðherrar 855 þús. 1.150 þús. 1.257 þús. Alþingismenn 520 þús. 651 þús. 712 þúsund Forseti Íslands 1.827 þús. 2.117 þús. 2.314 þús. Hækkanir þjóðkjörinna 2009–2015 Staða Prósentuhækkun Raunhækkun (%) Krónutöluhækkun Forsætisráðherra 48,7% 18,5% 456.000 Ráðherrar 47% 14,2% 402.000 Þingmenn 36,9% -10,3% 192.000 Forseti Íslands 26,6% -35% 487.000 Hækkanir þjóðkjörinna við ákvörðun kjararáðs nú Hækkun 9,3%, afturvirk til 1. mars Staða Hækkun milli ára í krónum Eingreiðsla vegna afturvirkni Forsætisráðherra 119 þús. 1.071 þús. Ráðherrar 107 þús. 963 þús. Þingmenn 61 þús. 549 þús. Forseti Íslands 197 þús. 1.773 þús. Launaskrið á ráðherrum Aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar hafa einnig hækkað talsvert í launum frá ársbyrjun 2009 eða um 402 þúsund krónur á mánuði. Eru þeir nú með 1.257 þúsund krónur á mánuði. Laun ráðherra hafa hækkað um 14,2 prósent umfram vísitölu launa. Milljónagreiðslur Þegar eingöngu eru skoðaðar eingreiðslur vegna aftur- virkni úrskurðar kjararáðs til ráðherra og forseta Íslands kemur í ljós að launa- greiðslur til þessara ellefu einstaklinga munu nema 11,5 milljónum króna. Eru þá ótaldir þeir 53 þingmenn sem fá tæpar 550 þúsund krónur hver. Mynd STjoRnaRRad.iS „Már Guðmundsson seðlabankastjóri rýfur einnar milljónar markið með því að grunn- laun hans hækka um 90 þúsund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.