Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 11
Fréttir 11Vikublað 24.–26. nóvember 2015 „Guð elskar Glaðan Gjafara“ rausnarleg fjárframlög úr sal n Blaðamaður sakaður um myndatökur og vísað á dyr sagði að Mattias hefði fengið sýn fyr­ ir nokkrum dögum um þetta tiltekna sunnudagskvöld. Að þar yrðu minnst 10 manns sem vildu gefa „50 þús­ und krónur eða meira“ enda hefðu svo margir þarna fengið ómetanlega lækningu, eitthvað sem ekki væri hægt að meta til fjár. Viðstaddir voru hvattir til að „sá inn í Guðs ríki“ með því að láta allt sem þeir höfðu, stórt og smátt, af hendi rakna. Peningafötur látnar ganga Að svo búnu var hafist handa við að dreifa samskotabaukum, sem raunar voru engir baukar heldur sex græn­ ar fötur sem starfsmenn gengu með um salinn oftar en einu sinni og fengu seðlar og klink að fljúga þar ofan í. Fólk virtist bókstaflega tæma allt smálegt úr vösum sínum ofan í föturnar. Ef fólk var ekki með reiðufé þá hafði posi sem stóð á stöku borði við innganginn verið ræstur fyrir þá sem vildu greiða með korti. Talsverð bið­ röð myndaðist við posann og ljóst að margir voru reiðubúnir að gefa til málefnisins. Þriðji möguleikinn var í boði fyrir þá sem hvorki voru með peninga né kort. Þeim stóð til boða að skrifa sig niður á blað og heita fé til söfnunarinnar. Talsverður tími fór í þetta enda sögðust menn ætla að gefa sér góðan tíma í þennan dag­ skrárlið. Þarna lagði blaðamaður saman tvo og tvo og áttaði sig á því að for­ leikurinn að söfnuninni var fullkom­ inn. Þar var verið að höfða til þeirra sem trúðu því að þeir hefðu hlotið bót sinna meina með kraftaverkum til að gefa rausnarlega og vitnisburð­ ur þeirra átti að vera öðrum trúuð­ um í salnum sönnun þess að þarna væri eitthvað á ferðinni, sem mikil­ vægt væri að styrkja. Það virtist hafa virkað. Mattias skammaður fyrir myndatöku Stefan Edefors var næstur á svið eftir þetta og hélt hann langa prédikun sem varð vissulega enn lengri þar sem hann gat aðeins sagt hluta setn­ inga í einu því túlkurinn þurfti að þýða orð hans yfir á íslensku. Túlk­ urinn má eiga það að hann stóð sig ágætlega við erfiðar aðstæður enda getur ekki verið auðvelt að þýða nán­ ast hvert orð í rauntíma. Blaðamaður hafði komið sér fyrir aftast í salnum og fylgdist með því sem fram fór og tók niður punkta á litla skrifblokk. Líkt og fleiri þarna gerðu. Blaða­ maður hafði í byrjun, áður en form­ leg dagskrá hófst, tekið tvær flass­ lausar yfirlitsmyndir yfir salinn á farsíma sinn. Sú myndataka átti eftir að reynast vendipunktur kvöldsins hjá blaðamanni. Sem fyrr segir voru það jakkafata­ klæddir starfsmenn viðburðarins sem huguðu að öllu sem gera þurfti úti í sal og höfðu vökul augu með salnum og gestum. Meðan Stefan hélt tölu sat Mattias Lekardal á fremsta bekk og tók mynd­ band á farsíma sinn. Sneri hann sér við til að taka myndskeið af salnum sem hlýddi á prédikun vinar hans, Stefans. Það fór ekki fram hjá nein­ um að Mattias var með flassið þegar hann beindi símanum að áhorfend­ um. Einnig starfsmanni í salnum sem strunsaði niður að fremstu röð og gaf sig á tal við Mattias eftir myndatök­ una. Blaðamaður gat aðeins gefið sér að hann væri hugsanlega að skamma spámanninn fyrir myndatökuna. Fyrr hafði kona sem sat framarlega ver­ ið að taka upp atriði með spjaldtölvu sinni og sami starfsmaður gefið sig á tal við hana. Væntanlega til að gera athugasemdir við myndatökuna. Það kom hvergi fram, hvorki í upphafi samkomunnar né annars staðar, að myndatökur væru bannaðar. Nokkuð sem gjarnan hefði mátt taka fram nú þegar nánast hvert einasta manns­ barn er með myndavél og upptöku­ búnað á snjallsíma sínum. Án þess að vita það fyrir víst gaf blaðamaður sér að myndatökur væru illa séðar, jafn­ vel bannaðar, þó að enginn hefði haft á því orð. Blanda af miðilsfundi og Benny Hinn Eftir langdregna dæmisöguprédikun Stefans boðaði hann kraftaverka­ stund þar sem hann gekk um sviðið og taldi upp að þar væri fólk með ýmiss konar kvilla sem þyrfti krafta­ verkalækningu. Var hann eins og spámiðill sem sagði blint út í salinn að „hér er manneskja sem er með verk í vinstri öxl“ og þar fram eftir götunum. Bað hann þá sem kenndu sér meins að stíga upp á svið til hans. Nú var samkoman farin að minna blaðamann á skrautsýningar sjón­ varpsprédikarans Bennys Hinn. Tvennt steig á svið, maður og kona. Maðurinn hafði verið sárkvalinn í baki í tvo mánuði og lýsti hann ein­ kennum í ætt við brjósklos. Stefan spurði manninn: „Er í lagi að Jesús lækni þig?“ og svaraði maðurinn ját­ andi. Upp á svið voru komnir tveir menn sem tóku sér stöðu fyrir aftan fólkið sem prédikarinn var að ávarpa. Líkt og hjá Benny Hinn var ljóst að þeir voru þarna til að grípa viðkom­ andi þegar heilagur andi svipti þau meðvitund. Eins og margir vita þá gerist það gjarnan að fólk sem Benny Hinn snertir fellur í yfirlið þegar hann útdeilir „smurningunni.“ Stemm­ ingin var svipuð í Austurbæ. Stefan lagði hendur sínar á manninn, hróp­ aði á verkinn og meiðslin að koma sér burt og stuggaði eilítið við hinum stæðilega miðaldra manni. Sjálfsagt blessunarlega fyrir hann, þá ákvað bakveiki maðurinn þó ekki að láta sig falla aftur á bak í arma aðstoðar­ mannanna sem biðu þess að grípa hann. Maðurinn lýsti því þó yfir að bakverkurinn væri horfinn. Blaðamanni vísað á dyr Þegar konan var að hljóta sína lækn­ ingu á sviði gaf einn af hinum vökulu útsendurum samkomunnar sig á tal við blaðamann þar sem hann sat í öftustu röð. Var blaðamaður beðinn að fylgja viðkomandi út úr salnum og fram í anddyri. Þar var blaða maður, sakaður um að hafa verið að taka myndir „í allt kvöld“ og að það væri stranglega bannað. Blaðamanni leið í sakleysi sínu eins og sakamanni sem staðinn hefði verið að búðar­ hnupli og reyndi í þessum árekstri að koma starfsmanninum í skiln­ ing um að hann hefði vissulega tek­ ið myndir í byrjun, en ekki verið að taka myndir þegar kraftaverkagjörn­ ingurinn átti sér stað, auk þess sem hvergi hefði komið fram að mynda­ tökur væru bannaðar. Annars hefði hann vissulega farið að þeim regl­ um. Hann hafi vissulega haldið á síma sínum en engin upptaka var gerð. Eftir á rifjaðist það upp að hann hafði rekið sig í vasaljós símans sem ljómaði örskamma stund áður en hann slökkti. Kannski taldi einhver það flass. Ljóst var að á meðan aðr­ ir höfðu fengið tiltal og fengið að sitja áfram, var búið að ákveða að vísa undirrituðum á dyr. Án þess að skýr­ ingar blaðamanns væru teknar til greina var honum bent á útidyrnar með orðunum: „Takk fyrir komuna í kvöld.“ Hið hlýja handaband í byrjun kvölds var orðið að kaldri kveðju. Að notfæra sér trúgirni Ringlaður og örlítið sleginn yfir brott­ vísuninni hélt blaðamaður aftur út í rigninguna. Hvorki með myndband né annað en yfirlitsmyndir yfir salinn frá upphafi fundar í farteskinu. Ljóst var að hann myndi missa af aðal­ númeri kvöldsins, kraftaverkastund Mattiasar Lekardal. Klukkan var langt gengin ellefu á sunnudags­ kvöldi og hafði blaðamaður setið í rúma tvo tíma í Austurbæ, á þessum ókeypis viðburði, að bíða eftir krafta­ verkunum sem lofað hafði verið. Sökin kann að hafa verið myndatök­ ur, en blaðamann grunar að eitthvað annað hafi búið að baki brottvísun­ inni. Hvort það var Guðs andi sem ekki mátti trufla að störfum eða að krafta­ verkagjörningar prédikaranna, sem ekki þoldu kastljós myndatöku, skal ósagt látið. Hvort Mattias hafi lækn­ að sjúka, blinda og lamaða unnvörp­ um eftir að blaðamanni var gert að fara veit hann ekki, en miðað við braginn sem yfir þessum sænsku fé­ lögum var, ætlar hann að leyfa sér að nýta sér sinn frjálsa vilja og efast. Það er eitt að hafa trú, það getur verið fal­ legt og þar finna margir huggun og ístað í óhugnanlegum heimi. En það er eitt að hafa trú og annað að nýta sér trúgirni annarra. Það getur aldrei verið fallegt. n Kraftaverkum lofað Í auglýsingu fyrir kraftaverkahátíð Lekardal, Edefors og Omega var gestum lofað kraftaverkum. Forboðin mynd Hér má sjá eina af tveimur myndum sem blaðamaður smellti af við upphaf samkomunnar. Honum var síðar vísað á dyr fyrir myndatökur „allt kvöldið.“ Mynd SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.