Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 12
12 Fréttir Erlent Vikublað 24.–26. nóvember 2015 Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. Ætlaði að drepa einn múslima á viku Alda hatursglæpa hefur riðið yfir Kanada L ögreglan í Montreal hefur handtekið 24 ára gamlan mann í tengslum við Youtube- myndband þar sem grímu- klæddur einstaklingur hótaði því að myrða einn múslima í hverri viku. Maðurinn klæddist grímu Jó- kersins, helsta andstæðings Leður- blökumannsins, í myndbandinu og hélt á skammbyssu á meðan hann talaði um að tilefni hótananna væru hryðjuverkaárásirnar í Par- ís. Maðurinn sagðist ætla að skjóta fórnar lömb sín í höfðuðið og þar sem stjórnvöld ætluðu ekkert að gera varðandi þá ógn sem múslimar yllu þá yrði hann að taka til sinna ráða. Maðurinn var handtekinn síðast liðinn þriðjudag og lagði lög- reglan hald á loftbyssu, sem svipar til vopnsins í myndbandinu. „Við getum ekki liðið slíkt, hótanir sem þessar geta varðað allt að fimm ára fangelsi,“ sagði Pierre Moreau, ör- yggismálaráðherra Quebec. Hót- anir mannsins eru hluti af öldu hatursglæpa sem hafa riðið yfir Kanada í kjölfar árásarinnar á Par- ís, meðal annars var íslamskri konu misþyrmt í Toronto í vikunni og kveikt var í mosku í Ontario. n bjornth@dv.is Skjáskot úr myndbandinu Jókerinn ætlaði að skjóta einn múslima í höfuðið í hverri viku. „Og þetta er hugmyndin mín“ Átta ára drengur reyndi að leysa öryggisvanda flugvéla sem hrapa í hafið É g varð svolítið leiður þegar ég var að horfa á þáttinn,“ segir uppfinningamaðurinn Ben Treider. Hann er aðeins átta ára gamall en hefur vakið heimsathygli fyrir bréf sitt og ráð- leggingar til flugfélagsins Delta. Ben hafði verið að horfa á sjón- varpsþátt um hvarf flugvéla, þar á meðal flugvélarinnar MH370 sem var í eigu flugfélagsins Malaysia Airlines. Ben settist niður og teikn- aði upp búnað sem gæti gert það að verkum að hægt væri að sjá hvar flugvélar brotlenda. Hann sendi flugfélaginu teikningar ásamt bréfi og vakti það athygli stjórn- enda sem brugðust vel við og komu ábendingum hans áfram til öryggissviðs fyrirtækisins. Þá sögð- ust forsvarsmenn einmitt hafa ver- ið að skoða hugmyndir sem þessa til að reyna að tryggja öryggi far- þega og auka líkurnar á því að flug- vélar finnist ef þær brotlendi. Neonlitaðar blöðrur Ben fékk aðstoð móður sinnar, Lauru Treider, við að skrifa bréfið. Þau höfðu horft saman á þáttinn „Why Planes Disappear“ og var Ben talsvert brugðið eftir áhorfið. Hann varð sorgmæddur og vildi finna leiðir til að tryggja að atburð- ir eins og hvarf MH370 myndu ekki endurtaka sig. „Við gætum haft kerfi sem lætur neonlitaðar appel- sínugular blöðrur rísa upp á yfir- borðið þegar flugvélar hrapa yfir sjó,“ segir í bréfi Ben. „Það gætu verið steinar fastir við blöðrurnar svo að þær færu ekki á flakk. Blaðr- an væri ekki nægilega létt til að fjúka eða svífa í burtu og í henni væri sterkt gúmmí sem þyldi mik- ið álag og þrýsting.“ Bréfinu fylgdi svo teikning sem sýndi hvernig Ben hafði hugsað sér þetta. Einnig vildi hann láta fylgja staðsetningar- tæki eða útvarpssendi svo auð- veldara væri að finna blöðrurnar. Ben mun hafa haft áhuga á flugvél- um frá fyrstu tíð, þótt hann sé ung- ur að árum. Hann hefur sérstak- lega mikinn áhuga á herflugvélum, en foreldrar hans eru í bandaríska hernum. Honum finnst gaman að fljúga og fær gjarnan að hitta flug- stjóra og flugmenn þegar fjölskylda hans ferðast, oftast með Delta. Takk fyrir hjálpina Stuttu eftir að Ben sendi bréfið fékk hann svar frá aðstoðarforstjóra flug- félagsins, John E. Laughter. Í bréf- inu, sem sjá má hér á síðunni, fær Ben mikið hrós. „[Ég] vinn með Delta-fólki, Flugmálastjórn og flug- vélaframleiðendum og í samein- ingu reynum við að leysa vandamál eins og þau sem geta skapast þegar flugvélar hverfa. Það eru margir sér- fræðingar sem eru að velta fyrir sér vandamálum á sama hátt og þú. Ég mun svo sannarlega senda teikn- ingarnar þínar og hugmyndir áleiðis til þeirra,“ segir Laughter í bréfinu en því fylgdu meðal annars tvær eftir- líkingar af flugvélum og fjölmargar aðrar gjafir. Nú er spurningin hvort átta ára drengur hafi leyst þetta viðamikla öryggismál flugvéla. n „Kæri herra Anderson [Richard H. Ander- son, framkvæmdastjóri flugfélagsins Delta, innsk. blm.] Mér datt þetta í hug þegar ég horfði á þáttinn „Why planes disappear.“ Hann fjallaði um flugvél Malaysia Airlines. Ég fékk þá hug- mynd til að aðstoða við að leita að flugvélum sem hrapa í sjó. Við gætum haft kerfi sem lætur neon- litaðar appelsínugular blöðrur rísa upp á yfirborðið þegar flugvélar hrapa yfir sjó. Það gætu verið steinar fastir við blöðrurnar svo að þær færu ekki á flakk. Blaðran væri ekki nægilega létt til að fjúka eða svífa í burtu og í henni væri sterkt gúmmí sem þyldi mikið álag og þrýsting. Setjið líka útvarpssendi í blöðrurnar svo hægt væri að finna þær. Og þetta er hugmyndin mín Virðingarfyllst Ben.“ „Kæri Benjamín. Við þökkum þér kærlega fyrir að senda hugmyndina þína um það hvernig hægt væri að finna flugvélar til Richard Anderson. Ég er að svara þér fyrir hans hönd. Sem yfirmaður ör- yggismála hjá Delta Airlines vinn ég með með Delta-fólki, Flugmálastjórn og flugvélafram- leiðendum og í sameiningu reynum við að leysa vandamál eins og þau sem geta skapast þegar flugvélar hverfa. Það eru margir sérfræðingar sem eru að velta fyrir sér vandamálum á sama hátt og þú. Ég mun svo sannarlega senda teikningarnar þínar og hugmyndir áleiðis til þeirra. Takk fyrir að hugsa til okkar. Ég sendi þér einnig nokkra Delta-hluti sem ég vona að þú getir notið. Ég á átta ára son og hann hélt að þetta væri góð leið til að þakka þér fyrir. Virðingarfyllst John.“ Hugmyndin hans Ben Hér er teikningin hans Ben sem öryggisfulltrúar Delta skoða nú. Hér sést hvernig blaðran væri fest við flugvélina og að inni í henni væri útvarpssendir.Sendingin Ben fékk ýmsa muni frá Delta fyrir hugmyndir sínar. Bréfasamskipti Ben og Delta Airlines

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.