Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 15
Vikublað 24.–26. nóvember 2015 Fréttir Erlent 15 Ruslið kemst fyrir í einni krukku Erin ákvað að breyta lífi sínu og vill hjálpa til við að bjarga jörðinni Í myndaðu þér að frá heimili þínu komi aldrei neitt rusl. Eða gott sem ekkert. Hvorki matarúrgangur eða umbúðir utan af vörum sem þú keyptir í búðinni. Þannig er það á heimili Erin Rhoads, sem hefur ekki „farið út með ruslið“ í að verða tvö ár. Nú súpa eflaust einhverjir hveljur og velta því fyrir sér hvernig aðstæð- ur á heimili hennar séu, en þær eru með besta móti. Hún einbeitir sér að því að frá henni komi sem minnstur heimilis úrgangur, í raun enginn. „Ég set allt ruslið mitt í þessa krukku svo ég geti fylgst með því hversu mikið safnast saman,“ segir hún, en hún not- ar einnig safnhaug fyrir matarúrgang. Til þess að ná þessum markmið- um sínum fer hún óhefðbundnar leiðir, gerir sitt eigið tannkrem og notar rauðrófu sem förðunarvöru. Á átján mánuðum hefur hún fyllt litla krukku með drasli, hlutum sem hún hefur ekki geta forðast að fá, til dæmis kvittun, röri og miðum af fatnaði. Hún tekur alltaf með sér margnota poka í verslanir og fer með sín eigin ílát í verslanir. Hún telur að þessar leiðir hennar séu rétta leiðin til að bjarga jörðinni frá öll- um þeim úrgangi sem kem- ur frá fyrirtækjum og heim- ilum. „Ég vil ekki að næsta kynslóð þurfi að þrífa upp eft- ir mig,“ segir hún en fylgjast má með henni á heimasíðunni, The Rouge Ginger. Hún segist hafa spar- að fé, orðið heilsuhraustari og lag- að húðvandamál sem hún átti við að etja. „Horfðu á það sem þú hendir og hugsaðu með þér hvaða aðra leið þú hefðir geta valið,“ segir hún. n Krukkurusl Erin á eina krukku sem hún notar til að geyma ruslið sitt í. LögRegLan Í vetRaRdýRð Myndir vikunnar að mati ljósmyndara EPA  Vetrardýrð Ljósmyndari EPA náði mynd af þessum lögreglumönnum þar sem þeir dáðust að snjónum í skóginum í Mezquiriz í Navarra á Norður-Spáni. Norðurhluti Spánar var snæviþakinn um helgina og var þar mikil vetrardýrð. Myndir EPA  Minningarstund Tvö ár eru liðin frá óeirðunum á Maydan-torginu (Sjálfstæð- istorginu) í Kænugarði. Minningarstund var haldin á sunnudag til að minnast þess sem þar gerðist. Fjöldamótmæli hófust í nóvem- ber 2013 á torginu og kom til þess að mót- mælendur tjölduðu þar. Viktor Yanukovych, þáverandi forseti Úkraínu, sagði af sér.  Á verði Belgískir sérsveitarmenn sjást hér á mynd í lögregluaðgerðum í Molenbeek í Belgíu á sunnudag. Segja má að hálfgert útgöngubann hafi verið í Brussel yfir helgina, en borgin er á hæsta viðbúnaðarstigi vegna hugsanlegra yfirvofandi hryðjuverka. Neðanjarðar- lestir hafa verið lokaðar og fáir létu sjá sig á götum úti.  Biðin Flóttamenn frá Íran, Marokkó og Pakistan reyna að fara á milli Makedóníu og Serbíu. Makedónía heimilar aðeins flóttamönnum frá Sýrlandi, Írak og Afganistan að koma til landsins og reynir að koma í veg fyrir straum annarra flóttamanna. Láttu þér líða vel Opnunartími Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00 Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00 meccaspa.is Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma) Gildir f yrir alla r tegund ir af nu ddi við afhend ingu þe ssa miða. 20% afsláttu r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.