Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Blaðsíða 19
Gæðapítsur Umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 24. nóvember 2015 Kynningarblað F latbökurnar á XO njóta gríðarlegra vinsælda enda hrikalega góðar og hollar í ofanálag sem gerir upp- lifunina einstaka, bæði fyr- ir bragðlaukana og líkamann. Súr- deigsbotnarnir í flatbökunum eru sérþróaðir úr heilkornum enda er hvorki hvítt hveiti né hvítur sykur notaður í öllum mat sem XO fram- reiðir. Flatbökusósan er einnig sér- þróuð af XO. „Vinsælustu flatbökurnar á XO eru Kjúklingaflatbaka Italiano og Humar flatbaka en margir af okkar frábæru viðskiptavinum hafa haft á orði að þessar flatbökur séu þær bestu og jafnvel langbestu flatbökur sem þeir hafi smakkað og hafa þeir margir hverjir ferðast víða,“ segir Elvar Már Torfason, matreiðslu- maður og annar eigenda XO. Kjúklingaflatbaka Italiano inni- heldur kjúkling, parmaskinku, mozarella, kryddolíu, flatbökusósu og ost og er þetta hættulega góð blanda að mati blaðamanns. Humar flatbakan er líklega ein besta humarflatbaka landsins en á henni eru hvítlaukskryddað- ir humarhalar, sveppir, klettasalat, hvítlaukskrem, flatbökusósa og ostur. XO býður einnig upp á Ceasar flatböku, XO flatböku og Græn- metisflatböku á matseðlinum og hafa þær einnig notið vinsælda. XO er hollustuskyndibitastaður sem framreiðir mat í fusion-stíl þar sem asísk og evrópsk matreiðsla renna saman. Maturinn er eldað- ur frá grunni og XO kappkostar að gera bragðið einstakt. XO styðst ein- göngu við topphráefni og er hvorki hvítur sykur né hvítt hveiti notað við matreiðsluna. Hugmyndin að XO var í mótun í yfir 10 ár en það var ekki fyrr en snemma á síðasta ári sem hún fór að taka á sig mynd. Eigendur XO hafa mikla ástríðu fyrir hollum mat en þeir segja það miður skemmti- lega staðreynd að óhollur skyndi- biti sé mjög algengur í mataræði fólks. Þeir vildu því bjóða fólki upp á hollan og góðan valkost á sann- gjörnu verði. Á XO starfa úrvals matreiðslu- menn með áralanga reynslu af mörgum af bestu veitingastöðum á Íslandi í gegnum tíðina. Matseðillinn var endanlega klár í byrjun árs 2015 en dyrnar á XO opnuðust um mitt sumar eftir gríðarlegar framkvæmdir á hús- næðinu. Auk þess að bjóða upp á dýrindis flatbökur býður XO einnig upp á úrvals salöt, döner-samlok- ur, kjúklingarétti og ferska djúsa, ásamt áðurnefndum flatbökum. Einkunnarorð XO eru Fun, Fast, Fusion sem lýsir staðnum og hug- myndafræðinni að baki staðnum vel. XO er í senn skyndibitastaður og veitingastaður. Fólk á jafnt að geta stokkið inn til þess að taka með sér rétti af matseðli eða sest niður í ró- legheitunum og notið veitinganna í skemmtilegu og frísklegu umhverfi. Móttökurnar hafa verið vonum framar: „XO hefur eiginlega vaxið ótrú- lega með hverjum mánuðinum. Við ákváðum að byrja rólega og láta staðinn spyrjast út þar sem við vorum sannfærðir um gæðin á matseðlinum. Við vildum að við- skiptavinir XO yrðu ánægðir frá upphafi og kæmu aftur. Það hefur svo sannarlega gengið eftir enda á XO líklega mörg hundruð fasta við- skiptavini í dag eftir aðeins nokkra mánuði í rekstri, bæði einstaklinga og fyrirtæki,“ segir Elvar Már, mjög þakklátur fyrir viðtökurnar enda gríðarleg vinna og áhætta fólgin í því að taka skrefið langþráða. XO er í JL-húsinu við Hringbraut 119. Allar upplýsingar um XO og matseðilinn má sjá á heimasíðu XO, www.xofood.is n Þegar skyndibitinn verður hollustufæða Gómsætar og hollar flatbökur á XO Vinsælasta flatbakan á XO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.