Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Page 24
Vikublað 24.–26. nóvember 201520 Sport Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is → Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Frá verðlaunaafhendingu Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins (lengst til hægri), og Sóley Tómasdóttir (lengst til vinstri) afhenda þremur af sterkustu skákkonum heims verðlaunin fyrir bestan árangur á 1. borði. Maria Muzycuk heimsmeistari er fyrir miðju. „Spennufall yfirvofandi“ n Rússar sigurvegarar á EM í skák n Guðlaug með áfanga að titli n Besti árangur Íslands síðan 1992 S tærsta skákviðburði síð- ustu áratuga hérlendis lauk með pomp og prakt í Hörpu um helgina. Rússar stóðu uppi sem sigur- vegarar í opnum flokki og kvenna- flokki og því er óhætt að segja að 17 manna sendinefnd þeirra hafi leikið á als oddi á verðlaunaaf- hendingunni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra afhenti verðlaunin ásamt öðrum fyrirmennum og sagði meðal annars í ræðu sinni: „European Chess Union is much better than European Union“ og uppskar mik- inn hlátur viðstaddra. Lokaúrslit mótsins: Opinn flokkur: 1. Rússland 2. Armenía 3. Ungverjaland Kvennaflokkur: 1. Rússland 2. Úkraína 3. Georgía Besta árangri alla keppenda í mótinu náði georgíski stór- meistarinn Levon Pantsulia sem fékk 6½ vinning af 8 mögulegum sem var árangur upp á 2.868 stig. Næstur á eftir kom moldóvski stór- meistarinn Viktor Bologan með 7 vinninga af 9 sem var árangur upp á 2.845 stig. Þeir keppendur sem náðu bestum árangri einstaklinga fengu meðal annars boð á næsta alþjóðlega Reykjavíkurskákmót sem fer fram í Hörpunni. Í þeim hópi var heimsmeistari kvenna, Maria Muzychuk, sem bar höfuð og herðar yfir einstaka keppend- ur í kvennaflokki, hún tapaði ekki skák og fékk 7 vinninga af 8 mögu- legum. Mikil ánægja var meðal verðlaunahafa með að fá tækifæri til þess að tefla á Íslandi á nýjan leik. Opinn flokkur: Íslendingar efstir Norðurlandaþjóða Fyrir mótið var íslenska a-liðið í 24. sæti í styrkleikaröðinni af 38 þjóð- um. Það var því alltaf ljóst að liðið myndi ekki gera atlögu að verð- launasætum en markmiðið var að vera í hópi tuttugu efstu þjóða og auk þess að vinna „Norðurlanda- titilinn“ sem yrði mögulega þrautin þyngri enda Norðmenn í 11. sæti á stigum. Hápunktur liðsins var stór- kostlegur sigur gegn Svíum í síð- ustu umferð 4-0, sennilega bestu einstöku úrslit Íslands í að minnsta kosti áratug. Tapið gegn Tyrklandi var ömurlegt á öllum mælikvörðum en aðaleftirsjá mótsins voru viður- eignirnar gegn Grikkjum og Ítölum sem töpuðust með minnsta mun en hefðu svo auðveldlega getað snúist okkur í hag. Liðið endaði í 19. sæti, varð efst Norðurlandaþjóða og náði sínum besta árangri síðan 1992. Markmiðunum náð! Allir liðsmenn tefldu á pari við eigin styrkleika fyrir utan einn liðsmann sem sló í gegn, nýjasti stórmeistari okkar, Hjörvar Steinn Grétarsson. Hann önglaði saman 5 vinningum í 7 skákum og tapaði ekki skák. Gullaldarliðið: „Upphitun fyrir HM öldungasveita“ Það var ánægjulegt að sjá fjór- menningaklíkuna svokölluðu aftur saman að tafli, svo ekki sé talað um goðsögnina Friðrik Ólafsson. Árangur sveitarinnar var sveiflu- kenndur og þekkjandi þessa miklu keppnismenn þá er blaðamaður viss um að þeir hefðu viljað gera betur varðandi söfnun vinninga. Hins vegar var taflmennskan oftar en ekki mjög góð en liðið var að tapa vinningum í tímahraki og með fingurbrjótum eftir 4–5 klukku- stunda setu. Hápunkturinn var sig- ur gegn góðu liði Austurríkis en lág- punkturinn var frekar andlaust tap gegn Moldóvu undir lok móts. Tap- ið gegn Tyrklandi var síðan grátlegt því þá viðureign átti liðið að vinna. Það er á engan hallað þegar minnst er á árangur Jóhanns Hjartarsonar sem ljósan punkt liðsins. Jóhann endaði með 5½ vinning af 9 mögu- legum og var í raun óheppinn að fá ekki fleiri vinninga. Meðal annars vann hann þrjár skákir í röð gegn sterkum stórmeisturum. Kvennaflokkur: Guðlaug með áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli kvenna Væntingar til kvennaliðsins voru ekki miklar í byrjun móts. Evrópumótið var ægisterkt og veik- ari skákþjóðir í kvennaflokki ákváðu að sitja heima. Það gerði að verk- um að íslenska liðið var í 29. sæti af 30 liðum í styrkleikaröðinni við upphaf móts. Einnig vantaði þrjár þaulreyndar landsliðskonur í liðið sem allar eru uppteknar í erfiðu há- skólanámi. Ungar skákkonur fengu því tækifæri á þessu móti sem mun efla þær verulega. Guðlaug Þor- steinsdóttir og Lenka Ptacnikova voru hins vegar á öðru máli og stigu upp með stórkostlega frammistöðu. Guðlaug fékk 5½ vinning af 9 mögu- legum og Lenka 5 vinninga gegn afar sterkum andstæðingum og því fengu þær 10½ af 12½ vinning- um liðsins í heildina. Árangurinn tryggði Guðlaugu áfanga að WIM- titli sem er framúrskarandi. Liðin vann frábæra sigra gegn Noregi og Finnlandi auk jafnteflis gegn Svíþjóð og Belgíu. Önnur lið voru of stór biti og 27. sætið var niðurstaðan. „Fullkomið spennufall yfirvofandi“ „Vinnan við mótið hófst fyrir fjórum árum og því er skrýtin tilfinning að mótinu sé lokið. Ég hefði varla get- að ímyndað mér hvað þetta var mik- il vinna. Það er fullkomið spennu- fall yfirvofandi,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands- ins, hlæjandi. „Það hefur rignt yfir okkur heillaóskum frá erlendum keppendum og forsvarsmönnum erlendra skáksambanda og menn segja að þetta sé besta og faglegasta Evrópumót sem farið hefur fram. Það var frábært að sjá samtakamátt- inn í íslensku skáklífi því fjölmargir buðu fram aðstoð sína sem sjálf- boðaliðar og unnu framúrskarandi starf. Ég er stoltur af mínu fólki,“ segir Gunnar að lokum. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „European Chess Union is much better than European Union. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Kaldur á kantinum Forsætisráðherra afhenti verðlaun í mótinu og fékk við það tilefni glæsilegt skákborð að gjöf frá Skáksambandi Íslands. Þrjátíu og tveir helstu skákmeistarar heims höfðu ritað nafn sitt á hvíta reiti borðsins, þar á meðal heimsmeistarinn Magnus Carlsen. MyND MáNi HraFNSSON rússneski hópurinn Rússar voru ánægðir með sigurlaunin í báðum flokkum Evrópumeistaramótsins í skák sem lauk um helgina. Fremstur á myndinni er heimsmeistarinn í hraðskák, Alexander Grischuk, einn allra sterkasti skákmaður heims.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.