Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Qupperneq 31
Menning 27 B ernska, Æska og Manndóms- ár, skáldsögur rússneska rit- höfundarins Lev Tolstoj, eru komnar út í veglegri inn- bundinni bók. Áður hafa bækurnar komið út í kilju. Áslaug Agnarsdóttir þýðir skáldsögurnar en þær byggði Tolstoj að miklu leyti á eigin ævi. Áslaug þýddi verkin úr rússnesku. „Þegar ég var í námi við háskólann í Ósló var hægt að læra rússnesku frá grunni sem ég gerði og síðan fékk ég styrk til að vera tíu mánuði í Moskvu. Ég hef haft áhuga á rússneskum bók- menntum síðan í menntaskóla, ekki síst verkum Tolstoj og Önnu Karen- inu hef ég lesið margoft.“ Gott og einlægt líf Var einfalt eða erfitt að þýða þessi verk Tolstoj? „Það var ekki einfalt enda tók það mig um það bil fimm ár að þýða all- ar sögurnar. Það er ýmislegt í texta hans sem er erfitt. Til dæmis skrifar hann oft langar setningar og þá þarf að velja hvort það eigi að brjóta þær upp svo þær hljómi betur eða reyna að halda þeim. Ég geri ýmist. Ná- staða, sem þykir ekki góð lenska hér á landi, kemur oft fyrir hjá Tolstoj og þá þarf sömuleiðis að vega og meta hvort halda eigi því orðalagi.“ Bernska er fyrsta bókin í þríleikn- um og Manndómsár sú síðasta. Sástu breytingar á stíl hans frá fyrstu bók til þeirrar þriðju? „Bernska er fyrsta bók Tolstoj og kom út þegar hann var kornungur, 23 ára. Þar eru áberandi fallegar ljóð- rænar náttúrulýsingar og stundum kemur það mér þannig fyrir sjónir að hann sé að æfa sig í stílnum. Í síðustu bókinni, Manndómsár, er hann far- inn að fjarlægjast þessa ljóðrænu.“ Þegar maður les þessar bækur finnst manni Tolstoj hafa verið óvenju þroskaður ungur maður, ertu sammála því? „Bækurnar eru þroskasaga þar sem Tolstoj leggur áherslu á að lýsa tilfinningalífi söguhetjunnar. Hann vill lifa góðu og einlægu lífi en stund- um er hann eigingjarn og sjálfselskur. Hann veit af því, vill ekki fela það heldur lýsir því. Mér finnst líka koma fram að hann hefur oft verið ófram- færinn og óöruggur. Tolstoj hefur greinilega samúð með þeim sem minna mega sín og það kemur til dæmis fram í lýsing- um hans á gömlu barnfóstrunni og kennaranum Karli Mauer. Í Bernsku er kafli þar sem ungur drengur er lagður í einelti af félögunum. Sögu- hetjan stóð hjá og gerði ekkert. Tolstoj lýsir þeim atburði þannig að ljóst er að honum finnst þetta afleitt. Þarna er líka kafli þar sem hann skriftar. Allt í einu man hann eftir einu atriði sem hann gleymdi að skýra frá og ákveð- ur að fara aftur næsta dag og finna prestinn til að létta þessu af samvisk- unni. Hann fær ekil til að fara með sig og á heimleiðinni er hann upp með sér, segir honum frá erindi sínu og hugsar um leið með sér að maðurinn hljóti að telja hann frábæran ungan mann. Það er hins vegar augljóst að ekillinn hefur engan áhuga á málinu. Mér finnst þetta mjög skemmtilegur kafli hjá Tolstoj því hann kemur eigin monti vel til skila.“ Gott samstarf um yfirlestur Lev Tolstoj er einn af risum heims- bókmenntanna og Áslaug er spurð hvort hún íhugi að þýða fleiri verk hans. Sú mikla bók Stríð og friður berst í tal en hún hefur ekki komið út hér á landi nema í mjög styttri útgáfu. „Við eigum Önnu Kareninu í mjög góðri þýðingu og mér finnst ekki kominn tími á að þýða hana aftur. Mig myndi langa til að þýða Stríð og frið sem er stórt og mikið verk en það er spurning hvort mér myndi endast ævin til þess,“ segir Áslaug. Áslaug starfar sem sviðsstjóri á þjónustusviði Landsbókasafns Ís- lands – Háskólasafni. „Þetta er skemmtilegur vinnustaður, sérstak- lega fyrir bókaorm eins og mig,“ segir hún. Hún er gift Óskari Árna Óskars- syni ljóðskáldi en hann er með bók á markaði fyrir þessi jól, ljóðabókina Blýengillinn. Áslaug segir gott sam- starf um yfirlestur vera á milli þeirra hjóna. „Ég er yfirleitt sú fyrsta sem les yfir hjá honum og hann sá fyrsti sem les yfir hjá mér.“ Spurð um eigin bóklestur segir Áslaug: „Ég hef alltaf lesið mikið. Ég las mjög mikið sem barn og man þegar bekkjarsystir mín sagði: Ég hef gaman af að lesa, en ég er alls ekki bókaormur. Hún kom því rækilega til skila að hún vildi ekki láta tengja við sig það orð. Ég man að ég hugsaði með mér: Ég er bókaormur. Ég naut þess að lesa og geri vitanlega enn.“ n Vikublað 24.–26. nóvember 2015 Þroskasaga Tolstoj Áslaug Agnarsdóttir hefur þýtt þríleik eftir rússneska bókmenntarisann Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Hann vill lifa góðu og einlægu lífi en stundum er hann eigin­ gjarn og sjálfselskur. Hann veit af því, vill ekki fela það heldur lýsir því. Áslaug Agnarsdóttir „Mig myndi langa til að þýða Stríð og frið sem er stórt og mikið verk en það er spurning hvort mér myndi endast ævin til þess.“ Mynd SiGtryGGur Ari Sigursæl Swift Bandarísku tónlistarverðlaun- in (AMA) voru veitt í Los Angel- es á sunnudagskvöldið. Jenni- fer Lopez var kynnir og komu fjölmargar stórstjörnur fram á hátíðinni, þar á meðal Justin Bieber, Celine Dion, One Direct- ion og Gwen Stefani. Popp- stjarnan Taylor Swift fékk flestar viðurkenningar, eða þrjár talsins fyrir lag ársins, plötu ársins og sem besti listamaðurinn í flokki „fullorðinstónlistar“ (e. Adult Contemporary). The Weeknd, Nicki Minaj og kántrýdúettinn Florida Georgia Line hlut tvenn verðlaun hver. Fagna nýrri plötu Á dögunum kom út önnur breið- skífa djasstríóisins Hot Eskimos. Platan, sem nefnist We Ride Pol- ar Bears, kemur út á vegum JR Music. Sveitina skipa píanóleik- arinn Karl Olgeirsson, Jón Rafns- son kontrabassaleikari og Krist- inn Snær Agnarsson trommari en þeir munu fagna plötuútgáfunni með teiti og tónleikum í Lucky Records við Rauðarárstíg. Hot Eskimos hefur að mestu einbeitt sér að því að spila þekkt íslensk popp- og rokklög í djassútsetn- ingum, en á nýju plötunni leikur sveitin einnig erlenda slagara og tvö ný lög eftir Karl Olgeirsson píanóleikara. JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.