Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Side 36
32 Fólk Vikublað 24.–26. nóvember 2015
GÓLFMOTTUR
Við leigjum út gólfmottur í anddyri.
Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu
ræstingakostnað.
Við sækjum og sendum.
Fáðu verðtilboð!
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
harmleikir
stjarnanna
n Lífið hefur ekki alltaf leikið við fræga fólkið
Þ
au þéna meira á einum degi
en við hin á heilu ári og
þykja mun kynþokkafyllri.
En líf þeirra hefur ekki alltaf
verið dans á rósum. Mörg-
um af stærstu stjörnum Hollywood
tókst að klífa metorðastigann þrátt
fyrir vandræði heima fyrir. Hér er
listi yfir nokkrar stjörnur sem eiga
erfiðan bakgrunn. n
Systir var mamma Leikarinn Jack Nicholson var 37 ára þegar tímaritið
Time afhjúpaði þá staðreynd að manneskjan sem hann hafði kallað mömmu alla ævi, Ethel
May, var í rauninni amma hans. Raunveruleg móðir hans var hins vegar June sem leikarinn
hélt að væri systir hans. June hafði ung eignast Jack en gefið forræði hans upp á bátinn og
einbeitt sér að dansferli sínum. Til að gera hlutina ennþá flóknari kom einnig í ljós að faðir
hans, Donald, var tvíkvæntur en hann var í öðru hjónabandi þegar hann gekk að eiga June.
Sorgleg saga Fjölskyldusaga Kelsey Grammer er sneisafull af harmleik óháð
þremur skilnuðum sem leikarinn hefur gengið í gegnum. Faðir Grammer var skotinn tvisvar
fyrir utan heimili þeirra árið 1968 auk þess sem litla systir hans var myrt árið 1975 en leikarinn
varð að bera kennsl á líkið. Árið 1980 létust svo tveir stjúpbræður hans í köfunarslysi.
Fátækt, krabbamein og bankarán Foreldrar Tobey
Maguire voru ung og fátæk þegar þau eignuðust hann svo Tobey ólst upp hjá hinum og
þessum fjölskyldumeðlimum. Faðir hans, Vincent, ættleiddi börn systur sinnar eftir að hún
lést úr krabbameini. Vincent var fullviss um að hann væri líka lífshættulega veikur og vildi
skilja eitthvað eftir handa fjölskyldunni sem varð til þess að hann rændi banka. Hann náðist,
sat í fangelsi og hefur snúið blaðinu við.
Pabbi leigumorðingi
Woody Harrelson ólst lítið upp hjá föður
sínum, Charles, sem yfirgaf fjölskylduna varð
leigumorðingi. Charles myrti allavega tvær
manneskjur og var dæmdur í tvöfalt lífstíðar-
fangelsi. Woody heimsótti hann í fangelsið en
Charles lést úr hjartaáfalli árið 2007.
Alltaf vesen Það
hefur sjaldan verið lognmolla í kringum
rokkpíuna Courtney Love. Lætin byrjuðu
strax í æsku en söngkonan var tekin af
foreldrum sínum á unglingsárunum og
send á hin ýmsu fósturheimili. Seinna
missti Courtney sjálf forræðið yfir
dóttur sinni, Frances, en ástandið var
svo slæmt árið 2009 að Frances sótti
um nálgunarbann á mömmu sína.
Leiðinlegur pabbi
Alec Baldwin kemur úr sannkallaðri
skemmtanabransafjölskyldu. Lífið
hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá
leikaranum en fjölmiðlar hafa fylgst vel
með stormasömu sambandi hans við
dóttur sína, Ireland. Eftir að vefmiðlar birtu
upptöku af símsvara Ireland þar sem Alec
úthúðaði henni með öllum illum nöfnum úr
orðabókinni neyddist hann til að biðja hana
opinberlega afsökunar. Atvikið hjálpaði
honum ekki í forræðisdeilu við fyrrverandi
eiginkonuna, leikkonuna Kim Basinger.
Geðveiki og alkóhólismi
Demi Moore þekkti aldrei föður sinn sem yfirgaf
móður hennar, Virginiu, sem þjáðist bæði af geð-
hvarfasýki og alkóhólisma áður en Demi fæddist.
Leikkonan ólst hins vegar upp hjá stjúpföður sínum
sem einnig barðist við fíkn sína sem endaði með því
að hann svipti sig lífi. Samband mæðgnanna var
alltaf brotið en leikkonan átti erfitt með að fyrirgefa
móður sinni sem reyndi að komast áfram á frægð
dóttur sinnar meðal annars með því að sitja fyrir
nakin og skopstæla þannig leikferil Demi. Mæðgurn-
ar náðu þó að sættast rétt áður en Virginia lést.
Mamma drap pabba
Þegar leikkona Charlize Theron var 15 ára skaut
mamma hennar pabba hennar til bana. Faðir
hennar og frændi höfðu komið sótsvartir heim
með hlaðnar byssur og hafið að hóta mæðgun-
um. Eftir að pabbi hennar hóf að skjóta í gegnum
hurð þar sem Charlize hafði falið sig greip
mamma hennar til sinna ráða. Leikkonan hefur
alltaf dáðst að hugrekki móður sinnar.
Sifjaspell og dóp Bijou
og Mackenzie Phillips, dætur tónlistar-
mannsins John Philips úr Mamas and the
Papas, hafa lifað skrautlegu lífi þar sem
eiturlyf hafa skipað stóran sess. Í ævisögu
sinni sagði Mackenzie frá kynferðislegu
sambandi sínu við föður sinn. Í bókinni
sagðist hún hafa slitið sambandinu eftir að
hafa orðið ófrísk en ekki vitað hvort pabbi
hennar eða maðurinn hennar væri faðirinn.