Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2015, Síða 38
34 Fólk Vikublað 24.–26. nóvember 2015
„Fannst kominn tími til
að fara að hreyfa mig“
Rannveig Hildur hafði æft í tvö ár þegar hún varð í þriðja sæti á heimsmeistaramóti
É
g er mjög mikil keppnismann-
eskja og reyni alltaf að gera mitt
besta. Ég myndi aldrei taka þátt
í móti bara til að vera með,“
segir tannsmiðurinn Rannveig
Hildur Guðmundsdóttir sem varð í
þriðja sæti á heimsmeistaramótinu
í fitness sem fram fór í Búdapest á
dögunum.
Rétt hugarfar mikilvægt
Rannveig Hildur notaði síðustu vik-
una fyrir mót til að byggja upp sjálfs-
traustið. „Til að stíga á svona stórt
svið verður maður að hafa trú á sjálf-
um sér og vera mjög ánægður með
sig. Ef maður hefur ekki trú á sjálfum
sér er enginn annar að fara að hafa
trú á manni. Ég mætti því á sviðið,
litla Ísland, ákveðin í að gera mitt
besta. Auðvitað má mað-
ur ekki gleyma sér í
sjálfsánægjunni en
þessa síðustu daga
fyrir mót verður mað-
ur að einblína á sjálf-
an sig til að komast í
rétta hugarástandið.
Ég er sem betur fer
ekkert lík þessari
manneskju alla hina
dagana enda finnst
mér auðmýkt mjög
mikilvægur kostur í
fari fólks.“
Stefndi aldrei á mót
Heimsmeistaramótið í Búdapest var
fyrsta mótið á erlendum vettvangi
sem Rannveig keppti á en í hennar
flokki voru 39 keppendur svo ár-
angurinn verður að teljast ansi flottur.
Rann-
veig
stefndi
einnig á að keppa á Bikarmóti IFBB
sem haldið var í Reykjavík um síð-
ustu helgi en hún vann einmitt
sinn flokk í fyrra auk þess að vinna
heildarkeppnina. „Ég var búin að
skrá mig en hætti við, ég varð að hvíla
mig,“ segir Rannveig Hildur sem er
frekar ný í íþróttinni en hún hefur
aðeins æft í tæp tvö ár. „Ég var aldrei
týpan sem var í íþróttum en fannst
kominn tími til að fara að hreyfa mig.
Ég hef líka alltaf verið mikil B-mann-
eskja og bróðir minn vissi ekki hvað
var að gerast þegar ég var allt í einu
farin að mæta í ræktina klukkan sex
á morgnana. Ég stefndi aldrei á að
keppa og hélt að það væri ekkert fyrir
mig en eftir að ég fór að æfa á fullu
breyttist viðhorfið. Þjálfarinn var
alltaf að spyrja mig hvort ég væri til
í þetta og svo fór mig að langa til að
sjá hvar ég væri stödd miðað við aðra.
Fyrir mig snýst fitness ekki um að
fá viðurkenningu frá öðrum heldur
snýst þetta um að skora á sjálfan sig
og reyna að byggja upp ákveðna lík-
amsbyggingu. Þessi íþrótt krefst mjög
mikils sjálfsaga og maður lærir að
standa með sér, vera ákveðinn og láta
ekki undan pressu eins og frá vinnu-
félögunum sem vilja að maður fái sér
súkkulaði með þeim.“
Engar útlitskröfur
Rannveig Hildur stefnir ekki á byggja
sig upp í vaxtarræktarflokk. „Mér
finnst ágætt að vera svona lítil og vil
halda í kvenlegan vöxt. Það hentar
mér. Ég hef samt mjög gaman af
að fylgjast með vaxtarræktinni.
Stelpurnar eru mjög flottar en það
er ekki líkams formið sem ég sæk-
ist eftir,“ segir Rannveig Hildur og
neitar því aðspurð að vera með mikl-
ar útlitskröfur þegar kemur að hinu
kyninu. „Ég held að ég hafi bara
aldrei sérstaklega sótt í að vera með
mössuðum strák eða einhverjum
sem er svakalega skorinn. Ég pæli
meira í persónuleikanum. Ég set
engar kröfur um ákveðið útlit.“
Ekki öfgakennd
Rannveig Hildur segist fá mikla
gagnrýni á íþrótt sína en er ákveðin
að láta slíkt ekki stoppa sig. „Ég þarf
að hlusta á gagnrýni bæði frá fjöl-
skyldunni og fólki úti í bæ. Það eru
svo ótrúlega margir sem skilja þetta
ekki. Mamma hefur til dæmis áhyggj-
ur af því að ég þurfi að nota einhver
efni en ég hef engan áhuga á slíku svo
þær áhyggjur eru óþarfar. Hún skil-
ur ekki hverju ég er að leita eftir. Ég
er alls ekkert öfgakennd í þessu eins
og svo margir halda. Ég borða bara
hollan mat og mæti í ræktina. Það er
ekki eins og ég sé að svelta mig enda
hefði maður ekkert úthald í ræktinni
ef maður ætlaði að borða lítið,“ segir
Rannveig Hildur sem fór eftir ná-
kvæmu matarprógrammi þjálfarans
síns, Jimmy Routley, fyrir mótið.
„Fyrir svona keppni þarf maður að
breytast í nokkurs konar vélmenni.
Ég tók langan undirbúning og var
komin á þann stað í huganum að
sælgæti væri bara fyrir annað fólk en
mig. Ég var svo ákveðin og með hug-
ann við mótið allan tímann. Núna,
svona stuttu eftir mót, hef ég þó leyft
mér smá súkkulaði og óhollustu en
fljótlega fer ég í hollustuna aftur enda
stefni ég á mót á næsta ári. Maður
getur ekki alveg misst sig.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Ef þú hefur ekki
trú á sjálfum þér er
enginn annar að fara að
hafa trú á þér.
Mynd FItnESS.IS
Mynd FItnESS.IS
Mynd FItnESS.IS
Mynd SIgtRygguR ARI
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?