Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 3
Vikublað 12.–14. maí 2015 Fréttir 3 Stytta sumarlokanir R úmlega fimm þúsund manns hafa bókað skoðunarferðir um íshellinn sem verður opnaður í Langjökli 1. júní næstkomandi. Mestmegnis er um útlendinga að ræða. Verið er að leggja lokahönd á hell- inn og eru átta manns að störfum, meðal annars við að setja upp lýs- ingu. „Þetta virðist ætla að nást. Veðrið er að vinna með okkur þessa dagana,“ segir Sigurður Skarphéðinsson, fram- kvæmdastjóri Ísganga. „Þegar færðin og skyggnið er svona gott þá styttir það ferðalagið að sjálfum jöklinum.“ Voru orðnir svartsýnir Hann segir að framkvæmdirnar síð- ustu vikur hafi gengið mjög vel en að veturinn hafi verið mjög erfið- ur. „Hann hægði á öllu og við vorum orðnir svartsýnir á tímabili. Svo hef- ur gengið mjög vel síðustu vikur og mannskapurinn er gríðarlega öflug- ur. Það eru allir að gera sitt besta.“ Ýmsir erlendir fjölmiðlar hafa skoðað göngin. Um síðustu helgi komu þangað meðal annarra blaða- menn frá enska dagblaðinu The Times og frá tímaritinu National Geographic. Göngin eru fimm hundruð metra löng og tekur ferðalagið í gegnum þau eina klukkustund með leiðsögu- manni. 30 þúsund gestir 2017 Reiknað er með 15 þúsund gestum á þessu ári, 25 þúsund á næsta ári og 30 þúsund árið 2017. Aðal ferða- mannatíminn er frá júní til septem- ber þar sem þrjár ferðir verða í boði á hverjum einasta degi. Eftir það minnkar framboðið og verður opið þrjá daga í viku fyrir einstaklinga en alla daga vikunnar fyrir hópa. Þrenns konar ferðalög að göngun- um eru í boði. Frá Jökulrönd kostar 17.900 krónur, frá Reykjavík klukkan 9 um morguninn kostar 29.900 krón- ur og annað fyrirtæki býður upp á hádegisferð frá Reykjavík á 27.900 krónur. Forsendur hafa breyst Kostnaðurinn við göngin nemur rúmlega 300 milljónum, sem er meira en lagt var upp með í byrjun. Verkefnið er fjármagnað af Icelandic Tourism Fund, sem er í eigu Lands- bankans, Icelandair Group og nokkurra lífeyrissjóða. „Forsendur hafa allar breyst. Við stækkuðum verkefnið og lentum í þessum vetri líka. Það er talsverður munur á kostnaðinum en hann er ásættanlegur,“ segir Sigurður. n „ Þetta virðist ætla að nást n Þrjár vikur í opnunina í Langjökli n Gott veður síðustu vikur hefur skipt sköpum 5.000 gestir eru Freyr Bjarnason freyr@dv.is Snjóbíll Þessi bíll verður notaður til að flytja fólk á áfangastað. Sigurður Skarphéðinsson Veðrið hefur verið Sigurði og hans samstarfsfólki hliðhollt að undanförnu. Inni í íshellinum Verið er að leggja loka- hönd á hellinn. bókaðir í íshellinn Lífrænt Valið besta heilsuefnið Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni, Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup. www.thebeautyshortlist.com Best Health Supplement - Overall Wellbeing Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt, fegrar og frískar húðina Bætir meltingu, gerir líkamann basískan, kemur á réttu pH gildi Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku, einbeitingu og vellíðan Spirulina, Chlorella & Barleygrass Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru, eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu. Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks upptaka og nýting á næringarefnum. 120 hylki. Hlaðin búnaði: Bakkskynjarar - Loftkæling - Cruise Control - Skilrúm - 250° opnun á afturhurðum - Spólvörn Stöðugleikakerfi - Handfrjáls búnaður fyrir síma - USB tengi ofl. Okkar verð : 3.900 þús án vsk. (4.836. þús með vsk.) Nýr 2015 Renault Master L2H2 ←

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.