Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Page 18
2 Afþreying - Kynningarblað Vikublað 12.–14. maí 2015 Kynnstu verkum Richards Serra Listasmiðjur, sýning og fjölskylduferðir L istasafn Reykjavíkur mun bjóða upp á skemmtilega og viðamikla dagskrá tengda sýningu á verkum Richards Serra, en hann er einn virt- asti listamaður samtímans. Sýn- ingin verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 21. maí nk. og ber heitið Áfangar, eins og umhverfisverk listamannsins í Viðey, en á þessu ári er aldarfjórð- ungur síðan verkið var sett þar upp. „Við munum auk sýningarinnar bjóða upp á fjölskylduferð um áfanga Richards Serra, leiðsagnir um sýninguna í Hafnarhúsi og Viðey auk grafíksmiðju fyrir ung- menni og listsmiðjur fyrir börn,“ segir Berghildur Erla Bernharðs- dóttir, deildarstjóri markaðs- og kynningarmála hjá Listasafni Reykjavíkur. Dagskráin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Sýning á verkum Richards Serra Á sýningunni í Hafnarhúsi eru 19 teikningar og 30 grafísk verk sem eru í eigu Landsbanka Íslands sem Serra gerði í tengslum við Áfanga auk myndbanda af uppsetningu verksins og viðtals við listamann- inn. Verkið Áfangar er einstakt í ferli Serra, bæði vegna umfangs þess og efnis, en þetta er eina stóra verk hans úr steini. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason. Fjölskylduferð um Áfanga Richards Serra Laugardaginn 30. maí verður boðið upp á leiðsögn um sýningu Richards Serra í Hafnarhúsinu og gestum boðið að skoða verk listamannsins og njóta veitinga í Naustinu í Viðey. Ferjusigl- ingar verða frá Ægisgarði yfir daginn. Leiðsögn um sýninguna verður í Hafnarhúsi og í Viðey á laugardögum frá júní–ágúst Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna í Hafnarhúsi alla laugar- daga í sumar kl. 11 og gengið verður um verk Serra í Viðey kl. 12.30. Grafíksmiðja á Menningarnótt Á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst verður grafíksmiðja fyrir ung- menni í tengslum við grafísk verk Richards Serra sem eru til sýnis í Hafnarhúsinu. Listsmiðjur fyrir börn í Viðey Listsmiðjur um myndlist og nátt- úruskoðun fyrir börn og unglinga í tengslum við verk Richards Serra í Viðey. Námskeiðin verða haldin 8.– 12. júní, 22.–26. júní, 20.–24. júlí og 10.–14. ágúst. Skráning í listsmiðjur fer fram á info@halendisferdir.is Allar frek- ari upplýsingar má fá hjá Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, síminn er 590-1200, netfangið er listasafn@ reykjavik.is n F eðgarnir Elís Hólm Þórðar- son og Þórður Guðmundsson bjóða einstaklingum og hóp- um upp á snjótroðaraferðir á fjallið Múlakollu við Ólafs- fjörð. Fyrirtækið er nýtt, en starf- semi hófst um miðjan mars. Ferðun- um hefur verið vel tekið hjá bæði einstaklingum og starfmannahóp- um og eru ferðamenn sérstaklega hrifnir af norðurljósaferðunum. „Við keyrum á snjótroðara upp á Múlakollu og fólk velur svo hvort það fer með troðaranum aftur til baka eða rennir sér á skíðum niður fjallið,“ segir Elís. Feðgarnir smíðuðu sjálfir hús- ið á troðarann, það er upphitað og með öryggisbeltum. Það var teikn- að á verkfræðistofu, en lög sem eru í undirbúningi gera kröfu um lokað hús. „Húsið mun því standast allar öryggiskröfur, en það tekur 28 far- þega og allan skíðabúnað sem þeim fylgir,“ segir Elís. Feðgarnir hafa einnig boðið upp á norðurljósaferðir á kvöldin, en því tímabili er lokið núna. „Þegar þú ert uppi á Múlakollu þá sérðu inn Eyjafjörðinn, Hrísey og Grímsey og Vestfjarðakjálkann ef það er sérstaklega gott útsýni. Þetta er langbesta útsýnið á þessu fjalli,“ segir Elís. Hann bætir við að útlendingum finnist sérstaklega spennandi að sjá sjóinn, að skíða niður og horfa á sjóinn um leið. Nálgast má frekari upplýs- ingar hjá Arcticfreeride, Ólafs- fjarðarmúla, Ólafsfirði, síminn er 859-8800, netfangið er info@ arcticfreeride.com, heimasíða er arcticfreeride.com. n Upplifðu útsýnið af Múlakollu Ferðastu með snjótroðara MyndiR GiSLi KRiStinSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.