Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Side 19
 Kynningarblað - Afþreying 3Vikublað 12.–14. maí 2015 Farþegastökk er einföld leið til að kynnast íþróttinni H já Fallhlífastökksfélaginu Frjálsu falli býðst áhugasömum að prófa fall- hlífarstökk á einfaldan hátt, ýmist með farþegastökki eða námskeiði í fallhlífarstökki. FFF hefur verið starfrækt síðan 2011, en kennarar þess hafa iðkað fallhlífar- stökk síðan 2002. „Ef þig langar bara að prófa þá er farþegastökk málið, þá mætir þú og færð hálftíma undirbúning áður en þú stekkur,“ segir Hjörtur Blöndal hjá Fallhlífastökksfélaginu Frjálsu falli. „Ef þú vilt læra fallhlífarstökk, þá fer einn dagur í bóklegan undirbún- ing, síðan stekkur þú þrjú stökk með tveimur kennurum og síðan fjögur stökk með einum kennara, eftir það ertu tilbúin/n að stökkva sjálfur,“ segir Hjörtur. Farþegastökk Farþegastökk er einföld leið og er algengt að fyrstu kynni fólks af íþróttinni verði með þeim hætti. Farþegastökk er það nefnt þegar nemandinn hangir í ólum fram- an á kennaranum sem sér um að koma báðum aðilum niður á jörðina með öruggum hætti. Saman stekkur „parið“ yfirleitt úr 9.000–13.000 feta hæð og varir frjálsa fallið í allt að einni mínútu en því fylgir svo fimm mínútna flug undir fallhlíf. „Í farþegastökki getur þú öðlast grunnþjálfun í réttri líkamsbeitingu í frjálsu falli og eins lært tökin á stjórnun fallhlífarinnar með lág- marks áhættu þar sem kennarinn getur gripið í taumana á hvaða tíma- punkti sem er. Nemandinn þarf því aðeins grunnfræðslu á jörðu niðri fyrir stökkið sjálft því kennarinn fræðir farþegann um flugið undir fallhlíf þegar búið er að opna hana,“ segir Hjörtur. Kennsla í fallhlífarstökki FFF sér um alla kennslu í fallhlífar- stökki á Íslandi sem framkvæmd er utan björgunarsveita. Fyrstu nám- skeiðin verða haldin um miðjan maí. Skráning fer fram á skydive@skydi- ve.is eða í síma 699-5867. „Hraðvirkasta, einfaldasta og besta leiðin til að læra fallhlífar- stökk er „Hraðþjálfun í frjálsu falli“, þá stekkur nemandinn úr flugvél í fullri hæð (10.000–14.000 fet) með tvo kennara sér við hlið og ber eigin fallhlíf á baki sér. Þessi leið hefst á ítarlegu bóklegu námskeiði áður en haldið er af stað í verklegu þjálfun- ina sem samanstendur yfirleitt af sjö þrepum,“ segir Hjörtur. Lágmarksaldur til að stunda fallhlífarstökk er 18 ár Starfsemin fer fram á flugvellinum á Hellu sem er einungis í 85 kíló- metra fjarlægð frá útjaðri borgar- innar eða 95 kílómetra frá miðbæ Reykjavíkur, frá miðjum apríl fram í lok september, stokkið er alla daga frá 1. júní og fram yfir verslunar- mannahelgi og allar helgar fyrir og eftir það. „Bæði Íslendingar og er- lendir ferðamenn mæta og stökkva og konur stökkva í auknum mæli og í dag eru um 35–45 prósent stökkvara konur, við förum einnig mikið í farþegastökk þegar vina- hópar koma með gæsir og steggi til meðhöndlunar hjá okkur og fá þau alveg sérstaka meðferð,“ segir Hjörtur. Allar nánari upplýsingar má fá í síma 699-5867, netfang skydive@ skydive.is, heimasíða skydive.is. n Prófaðu fallhlífarstökk hjá Fallhlífastökksfélaginu Frjálst fall

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.