Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Qupperneq 36
Vikublað 12.–14. maí 201528 Fólk Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is Fermax mynd- dyrasíma kerfi er bæði fáguð og flott vara á góðu verði sem hentar fyrir hvert heimili. Hægt að fá með eða án myndavélar og nokkur útlit til að velja um. Krúttleg konungs- fjölskylda Nú þegar litla prinsessan Charlotte Elizabeth Diana hefur heillað heimsbyggðina upp úr skónum er við hæfi að rifja upp gamlar barnamyndir af fjölskyldu hennar. Afi prinsessunnar, Karl Bretaprins, var nefnilega einu sinni krúttlegur smákrakki og eflaust finnst mörgum stutt síðan pabbi hennar var það. Eugenie og Beatrice Prinsessurnar tvær, Eugene fædd 1990 og Beatrice fædd 1988, eru dætur Andrews prins og Söruh Ferguson. Charlotte Elizabeth Diana Prinsessan, sem fæddist laugar- daginn 2. maí á St. Mary's-sjúkrahúsinu í London, er sú fjórða í erfðaröðinni. Kate Middleton Af öllum meðlimum konungsfjölskyldunn- ar fylgjast Bretar mest með hertoga- ynjunni. Kate fæddist 9. janúar 1982 en hitti Vilhjálm prins í St. Andrews-háskólan- um í Skotlandi árið 2001. Þau trúlofuðu sig í nóvember 2010. Díana prinsessa Prinsessan af Wales fæddist 1. júlí 1961 og lést 31. ágúst 1997. Prinsessan var gífurlega vinsæl og daglegur gestur í glanstímaritunum. Meira en 750 milljónir aðdáenda um allan heim horfðu á beina útsendingu þegar hún og Karl Bretaprins gengu í það heilaga í St. Paul's-dómkirkjunni árið 1981. Karl Bretaprins Elísabet II drottning og Filippus prins eignuðust sitt fyrsta barn 14. nóvember 1948. Karl hefur verið annar í erfðaröðinni frá árinu 1952. Harry prins Rauðhærði fjörkálfurinn fæddist 15. september 1984. Þegar hann kom í heiminn var hann sá þriðji í erfðaröðinni en í dag er hann sá fimmti. Vilhjálmur Bretaprins Vilhjálmur fæddist 21. júní 1982. Prinsinn er þriðja elsta barnabarn drottningarinnar og annar í erfðaröðinni. George Alexander Louis Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton eignuðust sitt fyrsta barn þann 22. júlí 2013. Litli prinsinn fékk nafnið George Alexander Louis og sá þriðji í erfðaröðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.