Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Qupperneq 16
Helgarblað 22.–26. maí 201516 Fréttir
Á
rslaun fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Lífsverk líf-
eyrissjóðs, sem er lífeyr-
issjóður verkfræðinga og
háskólamenntaðra sér-
fræðinga, hækkuðu um 63 prósent
á árunum frá 2011 til 2014, á sama
tíma og verið var að rétta við sjóð-
inn eftir áföll hrunsins og grípa
þurfti til „sársaukafullra“ skerðinga.
Stjórnarformaður sjóðsins segir að
launin hafi verið samningsatriði og
að stefna sjóðsins sé að laun fram-
kvæmdastjórans séu samkeppn-
ishæf en ekki leiðandi.
Auður Finnbogadóttir, fráfar-
andi framkvæmdastjóri Lífsverk,
lét af störfum í lok síðasta mánað-
ar þar sem borið var við áherslu-
breytingum stjórnar í rekstri sjóðs-
ins.
Launaskrið hjá lífeyrisstjórum
DV fjallaði í síðustu viku um launa-
þróun framkvæmdastjóra nokkurra
stærstu lífeyrissjóða landsins þar
sem meðal annars kom fram að
mánaðarlaun Guðmundar Þ. Þór-
hallssonar, framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna, hefðu
hækkað um 6,7 prósent milli 2013
og 2014 samkvæmt ársreikningi.
Það gerir hækkun upp á 172 þús-
und krónur á mánuði.
Í umfjöllun DV var aðeins litið
til síðustu tveggja rekstrarára sjóð-
anna en ef farið er aftur til ársins
2011 má sjá að laun Guðmundar
hafa hækkað um 49 prósent. Árs-
laun framkvæmdastjórans hafa far-
ið úr 21,8 milljónum króna í tæp-
lega 32,6 milljónir á tímabilinu.
Það gerir árslaunahækkun um ríf-
lega 10,7 milljónir króna.
Þegar þróunin er skoðuð hjá
minni lífeyrissjóðum sker Lífsverk,
sem áður var þekktur sem Lífeyr-
issjóður verkfræðinga, sig veru-
lega úr. Laun framkvæmdastjórans
hækkuðu um 13,7 prósent milli ár-
anna 2013 og 2014 en um 63 pró-
sent ef litið er á tímabilið 2011 til
2014. Árslaun Auðar Finnboga-
dóttur hækkuðu úr tæplega 13,1
milljón króna árið 2011 í 21,3 millj-
ónir árið 2014. Eða um 8,2 milljón-
um króna á tímabilinu.
Í löku meðallagi
Aðspurður hvað hafi legið að baki
þessari umtalsverðu launahækk-
un framkvæmdastjórans segir
Valur Hreggviðsson, stjórnarfor-
maður Lífsverk, meðal annars að
sjóðurinn hafi það markmið að
bjóða samkeppnishæf laun. „Ef þú
skoðar laun framkvæmdastjóra líf-
eyrissjóða almennt þá mun koma
í ljós að þau liggja á ákveðnum
„level“ og við höfum einbeitt okk-
ur að því að leiða ekki þann hóp
heldur vera frekar á eftir honum.
Samt sem áður greiða nægjan-
lega mikið til að hæft fólk fáist til
starfsins. Reyna að vera um það bil
samkeppnishæf.“
Hann vill þó ekki ræða launa-
mál einstakra starfsmanna í smá-
atriðum og segir að launaþróun frá
upphafi ráðningartíma og í fram-
haldinu þegar reynsla er komin á
störf fólks sé samningsatriði. „Þetta
tengist þeim samningum sem gerð-
ir eru við viðkomandi þegar þeir
koma til starfa og vil ég ekki fara út
í smáatriði þeirra. Ég held að með
samanburði sjáist að kjör hennar
[Auðar] á undanförnum árum hafi
verið í löku meðallagi miðað við
aðra sjóði á sömu árum.“
Ekki óeðlileg starfslok
Eftir launaskrið undanfarinna ára
hjá framkvæmdastjórum lífeyris-
sjóðanna eru árslaun þeirra flestra
í kringum 17–20 milljónir króna.
Framkvæmdastjóri Lífsverk árið
2014 voru því í hærra lagi ef eitt-
hvað er.
Aðspurður um starfslok Auð-
ar í lok apríl segir Valur að stjórn-
in standi frammi fyrir því, eftir
ákvörðun á stefnumótunarfundi í
janúar, að leita leiða til að stækka
sjóðinn og gera hann rekstrarlega
hagkvæmari. „Við höfum trú á því
að hagræðing stærðarinnar eigi hér
við og sjáum fyrir okkur, og erum
sammála um, að það sé einhver
annar sem geti leitt það með okk-
ur. Auður skilaði hins vegar gríðar-
lega góðu starfi í því sem fram fór
á undan að koma sjóðnum í það
horf að það vilji yfirhöfuð einhver
tala við okkur. Sjóðurinn er algjör-
lega orðinn sambærilegur við aðra
sjóði varðandi ávöxtun og afkomu
og tryggingafræðilega betur settur
en flestir aðrir. En gríðarlega sárs-
aukafullt ferli sem búið er að fara
í gegnum við að skerða og strau-
ja yfir þau áföll sem hann gekk í
gegnum í hruninu. En það er ekk-
ert óeðlilegt [við starfslokin] sem
liggur að baki þessu.“
Fram kom í tilkynningu um
starfslok Auðar að frá árslokum
2010 til ársloka 2014 hafi hrein eign
allra deilda Lífsverk vaxið úr 34
milljörðum í 57,7 milljarða króna.
Auk þess sem hrein raunávöxtun
samtryggingardeildar síðastliðin
þrjú ár hafi verið að meðaltali 5,4
prósent og tryggingafræðileg staða
hans jákvæð um 0,2 prósent sem
hafi verið veruleg bæting.
Valur segir að eins og staðan
er núna standi yfir leit að nýjum
framkvæmdastjóra og segir hann
marga hafa haft samband vegna
starfsins. „Það er gott til þess að
vita að það eru margir sem hafa
áhuga á okkur.“ Aðspurður hvort
eitthvað sé tekið að skýrast segir
Valur svo ekki vera og býst við að
leitin að næsta framkvæmdastjóra
muni taka langan tíma.
Hækkun til lengri tíma
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflum hefur launaþróun fram-
kvæmdastjóra hjá öðrum minni
lífeyrissjóðum verið ansi mismun-
andi.
Hjá Stapa lífeyrissjóði hækk-
uðu laun stjórans hóflega um tæp 3
prósent milli áranna 2013 og 2014
þó að hækkunin nemi 16 prósent-
um ef litið er til áranna 2011–2014.
Stafir lífeyrissjóður hefur haldið
launum framkvæmdastjórans ansi
stöðugum á undanförnum árum á
meðan athyglisverð þróun átti sér
stað hjá Almenna lífeyrissjóðnum.
Þar voru laun framkvæmdastjór-
ans Gunnars Baldvinssonar lækk-
uð um 12 prósent milli 2013 til
2014 eftir að hafa hækkað nokk-
uð öll árin þar á undan. Þrátt fyrir
lækkunina milli síðustu rekstrarára
nemur hækkunin milli 2011–2014
um 14 prósentum. n
Launin hækkuðu um
8 milljónir í ólgusjó
n Stýrði lífeyrissjóðnum eftir áföll hrunsins og í gegnum „sársaukafullar“ skerðingar
Lífsverk lífeyrissjóður
(Lífeyrissjóður verkfræðinga)
framkvæmdastjóri: Auður Finnboga-
dóttir (Lét af störfum 30. apríl 2015)
Árslaun 2014: 21.340 þús. kr.
Árslaun 2013: 18.760 þús. kr.
Árslaun 2012: 16.200 þús. kr.
Árslaun 2011: 13.098 þús. kr.
Breyting milli áranna
2013–2014: 13,7% hækkun
Hækkun árslauna: 2.580 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 215 þús. kr.
Breyting milli áranna
2011–2014: 63% hækkun
Hækkun árslauna: 8.242 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 686 þús. kr.
Almenni
lífeyrissjóðurinn
Framkvæmdastjóri:
Gunnar Baldvinsson
Árslaun 2014: 18.617 þús. kr.
Árslaun 2013: 20.861 þús. kr.
Árslaun 2012: 17.397 þús. kr.
Árslaun 2011: 16.261 þús. kr.
Breyting milli áranna
2013–2014: 12% lækkun
Lækkun árslauna: 2.247 þús. kr.
Lækkun mánaðarlauna: 187 þús. kr.
Breyting milli áranna
2011–2014: 14% hækkun
Hækkun árslauna: 2.356 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 196 þús. kr.
Stapi lífeyrissjóður
Framkvæmdastjóri:
Kári Arnór Kárason
Árslaun 2014: 19.326 þús. kr.
Árslaun 2013: 18.772 þús. kr.
Árslaun 2012: 18.027 þús. kr.
Árslaun 2011: 16.657 þús. kr.
Breyting milli áranna
2013–2014: 2,95% hækkun
Hækkun árslauna: 554 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 46 þús. kr.
Breyting á milli áranna
2011–2014: 16% hækkun
Hækkun árslauna: 2.669 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 222 þús. kr.
Stafir lífeyrissjóður
Framkvæmdastjóri:
Ólafur Sigurðsson
Árslaun 2014: 17.417 þús. kr.
Árslaun 2013: 17.041 þús. kr.
Árslaun 2012: 17.038 þús. kr.
Árslaun 2011: 17.208 þús. kr.
Breyting milli áranna
2013–2014: 2,2% hækkun
Hækkun árslauna: 376 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 31 þús. kr.
Breyting milli áranna
2011–2014: 1,2% hækkun
Hækkun árslauna: 209 þús. kr.
Hækkun mánaðarlauna: 17 þús. kr.
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur Þ. Þórhallsson
Árslaun 2014: 32.582 þús. kr.
Árslaun 2013: 30.518 þús. kr.
Árslaun 2012: 25.555 þús. kr.
Árslaun 2011: 21.839 þús. kr.
Breyting milli áranna
2011–2014: 49% hækkun
Hækkun árslauna: 10.743 þús. kr.
Launin rokið upp DV greindi frá því að
laun Guðmundar Þ. Þórhallssonar hefðu
hækkað verulega milli áranna 2013-2014. Sé
farið aftur til ársins 2011 hafa árslaun hans
hækkað um ríflega 10,7 milljónir króna, eða
49 prósent.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Ég held að með
samanburði sjáist
að kjör hennar á undan-
förnum árum hafi verið í
löku meðallagi miðað við
aðra sjóði.
Milljónahækkun Auður Finnbogadóttir lét af störfum sem
framkvæmdastjóri Lífsverk lífeyrissjóðs á dögunum eftir að
hafa tekið við starfinu 2010. Laun hennar hækkuðu umtalsvert
síðan þá á sama tíma og hún stýrði sjóðnum í ólgusjó eftir áföll
hrunsins og sársaukafullar skerðingar til sjóðsfélaga.