Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 22.–26. maí 201544 Lífsstíll
Smart föt
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54
Einfaldir réttir í
Eurovision-partíið
n Það þarf ekki að vera flókið að töfra fram dýrindis veislumat n Fljótlegt og þægilegt
G
óðar veitingar eru alveg
ómissandi í Eurovision-
partíið, en þær þurfa alls ekki
að vera flóknar eða krefjast
mikils undirbúnings. Snakk
og ídýfur standa alltaf fyrir sínu, en
í ljósi þess að Eurovision-keppn-
in er nú bara einu sinni á ári, þá vilja
margir gera vel við sig. Auðvitað ligg-
ur eldamennska eða hvers kyns fönd-
ur í eldhúsinu misvel fyrir fólki, en hér
eru nokkrar hugmyndir að einföldum
veitingum í partíið sem standa alltaf
fyrir sínu, og geta ekki klikkað. n
Eðlan
Heit nachos-ostadýfa, sem í daglegu
tali hefur fengið nafnið Eðlan, er einn
vinsælasti saumaklúbba- og partíréttur
landsins. Rétturinn er einstaklega einfald-
ur og það er óhætt að fullyrða að það sé á
allra færi að útbúa hann.
Það sem þarf:
n Hálf dós af rjómaosti, um 200 grömm
n Ein krukka af taco-sósu
n Einn poki af gratínosti
n Einn poki nachos
Aðferð:
Smyrjið rjómaosti í botninn á eldföstu
móti. Hellið taco-sósunni yfir og toppið
með ostinum. Þessi hlutföll eru ekki
heilög og einfalt að prófa sig áfram. Eitt
er þó víst, að rétturinn er alltaf betri með
miklum osti. Hitað í ofni við 180 gráður,
þangað til osturinn er vel bráðinn, í um
það bil tíu til fimmtán mínútur.
Borið fram með nachos.
Ostasalat
Þetta salat er klassískt á veisluborðið. Það
er eitthvað einstakt við osta og vínber,
löðrandi í sýrðum rjóma og/eða majónesi.
Það eru til nokkrar útgáfur af salatinu og
auðvelt að þróa eigin útgáfu af því. Sumir
kjósa að nota eingöngu sýrðan rjóma í
blönduna en aðrir bæta við majónesi eða
grískri jógúrt.
Það sem þarf:
n Einn hvítlauksostur
n Einn mexíkóostur
n Ein dós sýrður rjómi
n Hálfur til einn desilítri majónes eða grísk
jógúrt (má sleppa, en salatið verður aðeins
blautara með þessari viðbót)
n Ein rauð paprika
n Púrrulaukur eftir smekk
n Vínber eftir smekk
Aðferð:
Skerið ostinn, papriku, púrrulauk og vínber
í litla bita og blandið saman í skál. Setjið
svo sýrða rjómann út í og hrærið vel saman.
Ef notað er majónes eða grísk jógúrt líka er
best að blanda því við sýrða rjómann áður
en honum er hellt út í ostablönduna.
„Mini“ pítsur
Litlar pítsur, sem eru einn eða tveir
munnbitar, eru sérlega vinsælar sem
fingramatur í partíum og börnum finnst
þær einstaklega spennandi. Slíkar pítsur
er vissulega hægt að kaupa frosnar og
hita upp, en þær eru klárlega betri ef
maður gerir þær sjálfur. Það er reyndar
hægt að stytta sér leið með því að kaupa
tilbúið pítsudeig og pítsurnar verða ekkert
síðri við það. Áleggið er nefnilega rúsínan í
pylsuendanum.
Það sem þarf:
n Tilbúið pítsudeig (fæst í flestum mat-
vöruverslunum)
n Pítsusósa
n Skinka
n Pepperóní
n Rjómaostur
n Piparostur
n Pítsuostur
Athugið að hér er aðeins um að ræða
hugmyndir að áleggi, en það má í raun
setja hvaða álegg sem er á pítsurnar, það
sem hverjum og einum þykir best. Og
magnið fer auðvitað eftir því hve margar
pítsur á að útbúa.
Aðferð:
Skerið litla pítsubotna úr þeim stóra með
því að nota glas. Skerið áleggið smátt
niður, í anda pítsanna. Smyrjið pítsusósu
á litlu botnana og dreifið álegginu og
ostinum yfir. Svo er gott að krydda með
óreganó og basilíku. Bakað í ofni í um
fimmtán mínútur við 180 gráður.
Grísir í teppi
Hér er um að ræða klassískan pinnamat
sem hefur verið mikið notaður í veislum
í gegnum tíðina. Nafnið á réttinum er
kannski ekkert sérstaklega girnilegt en
dregur nafn sitt að sjálfsögðu af pylsunum
sem eru vafðar inn deig, líkt og um dún-
mjúkt teppi væri að ræða. Alveg skotheld
blanda. Í þennan rétt er einmitt líka hægt
að nota tilbúið pítsudeig til að auðvelda
vinnuna, eða smjördeig.
Það sem þarf:
n Tilbúið pítsudeig eða smjördeig
n Pylsur, annað hvort venjulegar vínar-
pylsur eða litlar partípylsur
Aðferð:
Skerið deigið niður í litla þríhyrninga og
hverja pylsu í fjóra bita (nema partípylsur
séu notaðar, þá þarf ekkert að skera). Vefj-
ið svo deiginu utan um pylsurnar og setjið
á bökunarplötu. Bakað í ofni í fimmtán til
tuttugu mínútur við 200 gráður.
Niðurskorið grænmeti með ídýfu
Þetta er líklega einfaldasta lausnin í
partíið, og ekki skemmir fyrir að hér er
um að ræða tiltölulega hollt partísnakk.
Það þarf allavega ekki mikla kunnáttu í
eldhúsinu til að skera niður nokkrar gerðir
af grænmeti og bera fram á diski. Í þessari
uppskrift er notast við hálftilbúna dýfu,
en hana er vissulega hægt að gera sjálfur
frá grunni.
Það sem þarf:
n Gúrka
n Gulrætur
n Blómkál
n Sellerí
n Brokkólí
n Paprika
n Tómatar
n Ein dós sýrður rjómi
n Eitt bréf Knorr-salatdressing mix
Athugið að hér er aðeins um að ræða
hugmyndir að grænmeti, en vissulega má
nota hvaða grænmeti sem er.
Aðferð:
Skerið grænmetið niður í litla strimla,
nema tómatana. Best er að stinga tann-
stönglum í þá svo þægilegt sé að dýfa
þeim í ídýfuna. Ídýfan er svo útbúin eftir
leiðbeiningum á pakkanum. Raðið fallega
á bakka, berið fram og njótið.