Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 54
Helgarblað 22.–26. maí 201554 Menning ATN Zebra 16 Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin • Diesel • Vinnuhæð: 16,4m • Pallhæð: 14,4m • Lágrétt útskot: 9,3m • Lyftigeta: 230kg • Aukabúnaður: Rafmagns- og lofttenglar í körfu. • Til afgreiðslu strax Ýmsar aðrar ATN spjót- og skæralyftur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. Þ að var ekki með ráðum gert að auka hlut kvenna á hátíðinni, það gerðist bara af sjálfu sér,“ segir Helga Rakel Rafnsdóttir, kvikmyndagerðarkona og talsmaður heimildamyndagerðar­ hátíðarinnar Skjaldborgar. Tæplega helmingur heimildamyndanna sem eru sýndar á hátíðinni í ár eru eftir konur. Þá eru heiðursgestirnir báðar danskar kvikmyndagerðarkonur. Einstæð mynd um Jóhönnu Hátíðin hefst í dag, 22. maí, og er þetta í níunda sinn sem hún er haldin. Það er óhætt að segja að hér sé um eina athyglisverðustu kvikmyndahá­ tíð okkar Íslendinga að ræða en hún fer fram á Patreksfirði og nýtur mikils stuðnings heimamanna. Alls verða 16 myndir sýndar í ár og meðal mynda er einstæð heimildamynd um síð­ ustu daga valdatíðar Jóhönnu Sig­ urðardóttur, fyrrverandi forsætisráð­ herra. Jón Karl Helgason tökumaður fylgdi Jóhönnu eftir í 50 daga og veit­ ir þannig einstæða innsýn inn í líf Jó­ hönnu, stjórnmálanna og eðli emb­ ættis forsætisráðherra. Það er Björn S. Björnsson sem leikstýrði myndinni. Heiðursgestir konur Heiðursgestirnir í ár eru þær Eva Mulvad leikstjóri og Sigrid Dyekjær. „Sigrid er svona ofurframleiðandi í heimi skapandi heimildamynda og þess fyrir utan flottur framleiðandi,“ útskýrir Helga Rakel aðspurð hverj­ ir gestirnir séu. Eva Mulvad er heim­ ildamyndagerðarkona og sló í gegn með myndinni Enemies of happiness. Þar fylgdist Eva með afgönsku stjórn­ málakonunni Malalai Joya sem bauð sig fram til þings í fyrstu lýðræðis­ legu kosningunum í Afganistan í 30 ár. Myndin var gerð árið 2005 og vann meðal annars til verðlauna á einni virtustu kvikmyndahátíð veraldar, Sundance, árið 2007. „Það sem heill­ aði okkur var kannski sú leið sem þær fóru varðandi framleiðslufyrirtæki sitt, Danish Documentary. Nokkrar konur stofnuðu fyrirtækið og í dag eru um tuttugu manns að vinna hjá þeim. Á meðal þeirra eru sex kvenkyns leik­ stjórar og fjórir karlkyns. Það er rosa­ lega mikill kraftur í þessu fyrirtæki og sýnir á margan hátt möguleikana í þessum bransa,“ segir Helga Rakel. Fylgst með Hugleiki Opnunarmynd hátíðarinnar verð­ ur heimildamynd Evu Mulvad, The Good life, sem er einkennileg en forvitnileg sýn inn í heim danskra yf­ irstéttarmæðgna sem búsettar eru í Portúgal. „Við endum svo á að sýna heimildamynd eftir Ragnar Hansson um uppistandarann Hugleik Dags­ son,“ segir Helga Rakel en í myndinni er fylgst með Hugleiki ferðast um landið og undirbúa sig fyrir uppi­ stand í Finnlandi. „Það má segja að þetta sé mjög athyglisvert portrett af Hugleiki,“ segir Helga Rakel. Hugleik­ ur mun að auki vera með uppistand á hátíðinni. Hjálpsamir heimamenn Skjaldborgarhátíðin hefur vax­ ið hægt en örugglega síðustu ár og að sögn Helgu Rakelar hafa sigur­ myndir hátíðarinnar ávallt fengið gott brautargengi, bæði hér á landi sem og erlendis. Má þar nefna heim­ ildamyndina Salóme sem var fyrst ís­ lenskra stuttmynda til þess að hljóta verðlaun sem besta norræna heim­ ildamyndin á Nordisk Panorama­ hátíðinni á síðasta ári. Það var Yrsa Roca Fannberg sem leikstýrði myndinni og fjallaði hún á margan hátt um samskipti Yrsu við móð­ ur sína, Salóme Herdísi Fannberg veflistakonu. „Ég held að hátíðin sé orðin mjög mikilvægur vettvangur fyrir heim­ ildamyndagerð á Íslandi,“ segir Helga Rakel. Hún bætir við að hátíðin hafi ekki síst dafnað vegna mikils stuðn­ ings íbúa og sveitarstjórnar á Patreks­ firði. Þannig er hátíðin bæði styrkt af sveitarfélaginu auk þess sem Lions­ klúbbur Patreksfjarðar safnar nú fyr­ ir fullkominni sýningarvél sem kostar mikið fé og er varla á færi svona lítillar hátíðar að festa kaup á. „Þeir eru komnir langleiðina með að safna fyrir vélinni,“ segir Helga Rakel og því ljóst að hátíðin er ekki síst mikilvæg fyrir bæjarlífið á Patreksfirði. Árshátíð kvikmyndagerðarmanna Eins og fyrr segir verða sextán myndir sýndar á hátíðinni. „Og það sýnir kannski helst styrk hátíðarinn­ ar hvað myndirnar er fjölbreyttar,“ segir Helga Rakel. Eins og fyrr segir má finna myndir um síðustu daga Jó­ hönnu Sigurðardóttur sem forsætis­ ráðherra og ævintýri uppistandarans Hugleiks á ferðalagi sínu um landið. Þá verður einnig myndin „Hvað er svona merkilegt við það“ eftir Soff­ íu Bjarnadóttur, rithöfund og kvik­ myndagerðarmann, einnig sýnd en sú mynd fjallar um kvennabarátt­ una. Fréttakonan Alma Ómarsdóttir sýnir einnig mynd sína, Ástandið, en þar verður varpað ljósi á einkenni­ legt tímabil þar sem konur voru beitt­ ar órétti fyrir það eitt að vera í tygjum við erlenda hermenn á stríðsárunum. „Svo er þessi hátíð líka dálítil árshátíð okkar kvikmyndagerðarmannanna,“ segir Helga Rakel og bætir við að það sé mikilvægt að kvikmyndagerðar­ menn eigi í samskiptum og geti bor­ ið verk sín á borð fyrir kollega. Með­ al annars verður þarna að finna fjögur verk í vinnslu sem verða kynnt fyr­ ir almenningi. „Og það er á margan hátt mikilvægt út frá mórölskum sjón­ armiðum,“ segir Helga Rakel. Limbó og Einarinn En það er ekki bara boðið upp á það ferskasta í heimildamyndagerð á Ís­ landi á hátíðinni. Þannig verður hin árlega limbókeppni haldin auk skrúð­ göngu sem Ragnar Ísleifur Bragason leikhúsmaður fer fyrir eins og fyrri ár. Eins býður Kvenfélagið á Patreksfirði upp á plokkfisk eins og síðustu ár fyr­ ir svanga gesti hátíðarinnar. Að lok­ um verður slegið upp heljarinnar balli þar sem Einarinn svokallaði verður af­ hentur. „Það er hann Einar Skarphéð­ insson, smíðakennari á Patreksfirði, sem smíðar Einarinn á hverju ári,“ út­ skýrir Helga Rakel en gripurinn eftir­ sótti er verðlaunagripur hátíðarinnar. Hátíðin hefst í dag, 22. maí, og lýkur 25. maí. n n Skjaldborgarhátíðin hefst í dag og kennir þar ýmissa grasa Konur fyrirferðar- miklar á Skjaldborg Valur Grettisson valur@dv.is Helga Rakel Rafnsdóttir Seg- ir stuðning heimamanna nauðsyn- legan svo hátíð eins og Skjaldborg geti þrifist. Mynd SiGtRyGGuR ARi Árleg limbókeppni Árleg limbókeppni Skjaldborgar er alltaf vinsæl. Allar bækur 1 Skutlubók Villa Vilhelm Anton Jónsson 2 Ég á teppi í þúsund litum Anne B. Ragde 3 Ekki snúa aftur Lee Child 4 Sætmeti án sykurs og sætuefna Nanna Rögnvaldardóttir 5 Rachel fer í frí Marian Keyes 6 Mörk Þóra Karítas Árnadóttir 7 Breyttur heimur Jón Ormur Halldórsson 8 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 9 Iceland Small World- lítil Sigurgeir Sigurjónsson 10 Hilma Óskar Guðmundsson Íslenskar kiljur 1 Ég á teppi í þúsund litum Anne B. Ragde 2 Ekki snúa aftur Lee Child 3 Rachel fer í frí Marian Keyes 4 Hilma Óskar Guðmundsson 5 Gleymdu stúlkurnar Sara Blædel Metsölulisti Eymundsson 13.–19. maí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.