Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 12
Helgarblað 22.–26. maí 201512 Fréttir
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fermax mynd-
dyrasíma kerfi
er bæði fáguð
og flott vara
á góðu verði
sem hentar
fyrir hvert
heimili. Hægt
að fá með eða
án myndavélar
og nokkur útlit
til að velja um.
CCP taPaði níu milljörðum í fyrra
n Starfsmönnum tölvuleikjaframleiðandans íslenska fækkaði um 169 á síðasta ári n Skuldirnar nema 49 milljónum dala
Í
slenski tölvuleikjaframleið-
andinn CCP tapaði 65,7 millj-
ónum Bandaríkjadala, eða
8,7 milljörðum króna, á síð-
asta ári. Starfsmönnum fyrir-
tækisins, sem rekur skrifstofur í
Reykjavík, Newcastle, Sjanghæ,
San Francisco og Atlanta, fækkaði
þá úr 508 í 339. Skuldir þess námu
tæpum 49 milljónum dala en eign-
irnar 33 milljónum samanborið
við 104 milljónir dala árið 2013.
Eigið fé fyrirtækisins var því nei-
kvætt um 15,3 milljónir dala í árs-
lok 2014 eða rétt rúma tvo millj-
arða króna.
Þetta kemur fram í ársreikningi
CCP sem fyrirtækið skilaði inn til
ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra
síðasta þriðjudag.
11 milljarða tap á tveim árum
Samkvæmt ársreikningnum námu
tekjur CCP 68,6 milljónum dala
í fyrra, jafnvirði 9,1 milljarðs, og
lækkuðu um rúman milljarð króna
milli ára. Gjaldfærður rannsóknar-
og þróunarkostnaður fyrirtækisins
jókst aftur á móti um 30 milljónir
dala og nam rúmum 86 milljónum,
eða 11,4 milljörðum króna.
CCP-samstæðan var einnig
rekin með tapi árið 2013, þegar
þekktasta og elsta vara fyrirtæk-
isins, tölvuleikurinn EVE Online,
fagnaði tíu ára afmæli. Afkoman
var þá neikvæð um 21,3 milljónir
dala, eða 2,4 milljarða króna mið-
að við þáverandi gengi. Tapið mátti
að mestu rekja til afskrifta og niður-
færslu óefnislegra eigna, þar á með-
al á eignfærðum þróunarkostnaði
frá fyrri tímabilum. Athygli vakti
að tekjur fyrirtækisins höfðu aldrei
verið meiri en árið 2013 þegar þær
námu 76,7 milljónum dala.
Einblínir nú á EVE-heiminn
Í ársreikningnum er einnig komið
inn á ákvörðun CCP frá því í fyrra
um að hætta þróun tölvuleiksins
World of Darkness. Ákvörðunin
var kynnt í apríl 2014 þegar 56
stöðugildi í starfsstöð fyrirtækis-
ins í Atlanta í Bandaríkjunum voru
lögð niður. Í árshlutareikningi fyr-
irtækisins, sem var birtur í ágúst í
fyrra, kom fram að ákvörðunin um
að hætta þróun leiksins hefði haft
í för með sér töluverðan kostnað
vegna uppsagnarákvæða. Tæpum
tveimur mánuðum síðar tilkynnti
tölvuleikjaframleiðandinn að
Hluti starfseminnar
fluttur úr landi?
Fréttablaðið greindi fyrr í vikunni, sama
dag og ársreikningi CCP var skilað inn til
Ríkisskattstjóra, að fyrirtækið hugi að
því hvort flytja eigi hluta starfsemi þess
úr landi. Í fréttinni kom fram að málið
hefði verið rætt á ársfundi CCP í síðustu
viku. Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa engar ákvarðanir verið teknar og
ekki stendur til að draga úr starfseminni
hér á landi. Hins vegar sé enn í skoðun að
flytja höfuðstöðvarnar úr landi. Gjald-
eyrishöftin eru sögð leika stórt hlutverk
í þessum vangaveltum fyrirtækisins þar
sem þau geri það að verkum að erfiðara
sé að fá hæfileikaríkt starfsfólk og
fjárfesta til landsins.
Hilmar Veigar hefur einnig sagt, þar
á meðal í ræðu á Iðnþingi Samtaka
iðnaðarins í fyrra, að fyrirtækið hafi
ítrekað fengið boð að utan um að flytja
starfsemi sína. Sagði hann þá það
með ólíkindum að krónan væri enn
gjaldmiðill Íslendinga, miðað við það
sem á undan væri gengið. Í tölvuleiknum
Eve Online hefði á sínum tíma verið
ákveðið að kalla gjaldmiðil hans ISK til
minningar um íslensku krónuna.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is Höfuðstöðvarnar Alls störfuðu 339
manns hjá CCP í árslok 2014 en fyrirtækið
rekur skrifstofur á Íslandi, í Bretlandi, Kína
og Bandaríkjunum. Mynd SiGtryGGur Ari
Hlaupa til styrktar langveikum börnum
n Spartverjar hlaupa frá Kópavogi til Blönduóss og safna áheitum n Hlaupa 244 kílómetra
F
östudaginn 29. maí munu
26 einstaklingar frá Spörtu
heilsurækt í Kópavogi hlaupa
áheitahlaup frá Kópavogi til
Blönduóss til styrktar langveikum
börnum.
Það eru iðkendur, þjálfarar og
eigendur sem hlaupa áheitahlaup-
ið og skiptast þeir á að hlaupa, en
lágmark sem hver hleypur er tíu
kílómetrar. „Þetta er boðhlaup og
við hlaupum alla 244 kílómetrana
fyrir utan Hvalfjarðargöngin,“ seg-
ir Jóhann Emil Elíasson, rekstrar-
stjóri hjá Spörtu. „En við hlaupum
auka fimm kílómetra til að bæta
upp fyrir Hvalfjarðargöngin.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Sparta
er með svona stóran áheitavið-
burð, en áður hefur heilsuræktin
gefið á Góðgerðardeginum á
Álftanesi og gefið fé í Mottumars.
Þegar hafa safnast á annað
hundrað þúsund, en hlaupararnir
hafa að mestu safnað á meðal vina
og í fyrirtækjum sem þeir vinna
hjá. „Áheit hafa verið mismun-
andi, sumir greiða ákveðna upp-
hæð, aðrir heita á einn einstak-
ling og hvern kílómetra sem hann
hleypur og aðrir á hópinn í heild,“
segir Jóhann.
Aðspurður af hverju það varð
fyrir valinu að styrkja langveik
börn segir Jóhann að börn séu
ekki sterkar raddir í þjóðfélaginu.
„Þau eru ekki í fjölmiðlum, en við,
þau fullorðnu, getum látið í okk-
ur heyra. Meginþorri iðkenda í
Spörtu á ættir að rekja út á land og
foreldrar úti á landi með langveik
börn þurfa að leggja í mikinn
kostnað til að flytja fjölskylduna
til Reykjavíkur til lækninga, ásamt
húsnæðiskostnaði og fleiru hér,“
segir Jóhann.
Sparta heilsurækt var stofnuð
árið 2013 og býður upp á Meta-
rekstrarstjóri Jóhann Emil Elíasson er
rekstrarstjóri hjá Spörtu.