Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Qupperneq 18
Helgarblað 22.–26. maí 201518 Fréttir
Komust í bobba vegna baKKusar
n Stjórnmálamenn hafa þurft að svara fyrir uppákomur og axarsköft sem tengjast áfengisneyslu n Þetta lærðu þeir af mistökum sínum
U
m fátt hefur verið rætt
meira en örlagaríka Was-
hington-ferð utanríkis-
málanefndar á dögunum
þar sem þingmaðurinn
Ásmundur Einar Daðason varð fyr-
ir því að kasta upp um borð í flug-
vél WOW Air og víðar. Þrátt fyrir
fullyrðingar um hið gagnstæða þá
hefur þingmaðurinn sjálfur neitað
því að hafa verið ölvaður og bor-
ið því við að hastarleg magakveisa
hafi verið orsakavaldurinn. Hvað
sem því líður þá er atvikið fjarri því í
fyrsta skiptið þar sem einstaklingar
tengdir stjórnmálum á Íslandi hafa
lent í bobba þar sem Bakkus kemur
með einhverjum hætti við sögu eða
þeir hafa þurft að svara ásökunum
um ölvun opinberlega.
DV tók saman nokkur dæmi um
áfengistengt klandur pólitíkusa síð-
ustu árin sem komust í fréttirnar.
Sumir sem hér eru nefndir komust
í fréttirnar sökum glímu sinnar við
þann illvíga fjanda sem áfengis-
sýkin er og tóku þeir á þeim vanda
með viðeigandi hætti. Þar sem við
á viðurkenndu þó flestir sín mis-
tök, báðust afsökunar og lýstu iðr-
un – þó það hafi kannski tekið
mislangan tíma fyrir suma.
DV heyrði einnig í nokkrum
þessara einstaklinga og spurði þá
hvaða lærdóm þeir hefðu dregið af
mistökum sínum forðum. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Eyþór Arnalds var oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Árborg fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar 2006 þegar hann var hand-
tekinn fyrir ölvunarakstur aðfaranótt 14.
maí það ár. Eyþór hafði verið í sextugsaf-
mæli og drukkið þar áfengi með mat og
ákveðið að keyra heim ásamt unnustu
sinni. Ekki tókst betur til en svo að hann
ók á ljósastaur á leiðinni. Eyþór færði sig
yfir í farþegasætið og tók farþeginn við
akstrinum þar til lögreglan stöðvaði för
þeirra í Ártúnsbrekku. Í kjölfarið ákvað
Eyþór að draga sig úr kosningabaráttunni
og kvaðst ætla að taka sér frí frá störfum
ef hann næði kjöri meðan hann tæki út
mögulega ökuleyfissviptingu og tæki á
sínum málum. Lýsti hann því yfir að hann
ætlaði í áfengismeðferð. Sjálfstæðis-
flokkur Eyþórs hlaut 4 kjörna fulltrúa af 7 í
kosningunum um mánuði síðar.
Fallið í
Færeyjum
Alþingismaðurinn og
rithöfundurinn Þráinn
Bertelsson hafði verið edrú
um nokkra hríð þar til hann
fór á ráðstefnu í Færeyjum
sumarið 2011 ásamt fleiri
stjórnmálamönnum. Á
ráðstefnunni skilaði hann
sódavatnsglasinu sem hann
hafði verið að drekka og
teygði sig í freyðivín. Við tók
þriggja daga kojufyllerí bak
við luktar hótelherbergisdyr
þar sem Ólína Þorvarðardóttir
tók að sér að hjúkra Þráni.
Þráinn fór rakleiðis í meðferð
við heimkomuna og skrifaði
síðan opinskátt um fallið í
Færeyjum í bók sem kom út
síðar um veturinn.
Oddviti ók á ljósastaur
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, var sviptur ökuréttind-
um í júní 2012 vegna ölvunaraksturs.
Höskuldur lýsti því í fjölmiðlum að hann
hefði verið á fundaferð um Norðaustur-
kjördæmi og fengið sér rauðvín í lok dags.
Hann settist undir stýri í kjölfarið en var
stöðvaður af lögreglu og síðar sviptur
ökuréttindum í átta mánuði. Í samtali við
DV á þessum tíma kvaðst hann ekki muna
hversu mörg rauðvínsglösin hefðu verið
sem hann drakk en þvertók fyrir að eiga
við áfengissýki að stríða. Hann iðraðist og
kvaðst miður sín yfir mistökunum.
Örlagarík rauðvínsdrykkja
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi
viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar, var
rekinn úr starfi sveitarstjóra Ásahrepps
í ársbyrjun 2015 eftir að upp komst um
meintan fjárdrátt hans í starfi. Björgvin
bar því við að viðvarandi og óhófleg áfeng-
isneysla hans um nokkurt skeið hefði leitt
til dómgreindarbrests í starfi. Björgvin fór
í kjölfarið í meðferð á Vog þar sem hann
tókst á við áfengissýkina sem hann sagði
að hefði látið á sér kræla á ný undanfarin
ár eftir að hann hafði verið edrú í áratug.
Dró sér fé og fór í meðferð
Nýkjörinn á
þing og tekinn
Sigurður Kári Kristjánsson var
kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn sumarið 2003, þá nýorðinn
þrítugur. Í ágúst sama ár komst það
í fréttirnar að þingmaðurinn ungi
hefði verið sviptur ökuréttindum
eftir að hafa verið stöðvaður fyrir
ölvunarakstur. Bar Sigurður Kári því
við að hann hefði lagt of snemma í
hann um morguninn, eftir að hafa
setið að sumbli kvöldið áður.
Dýr en
dýrmæt lexía
Eyþór Arnalds segir öllum hollt
að fá sinn skell og læra af því
„Þetta atvik þegar ég ók ölvaður fyrir
9 árum síðan var mér dýr en dýrmæt
lexía. Öllum er hollt að fá sinn skell og
ég lærði af því. Bæði það að minnka
hroka minn gagnvart sjálfum mér og
öðrum og líka að reka mig á í orðsins
fyllstu merkingu,“ segir Eyþór Arnalds
um ölvunarakstursbrot sitt árið 2006.
Hann segir að hægt sé að taka
uppákomum sem þessum í lífinu með
tvennum hætti.
„Annars vegar að vera fúll út í aðra
en sjálfa sig eða læra af því og reyna
að verða betri eða í það minnsta skárri.
Það er mikilvægt að tala um þessa
hluti og læra af þeim. Fyrst og fremst
fyrir sjálfan sig en ekki er verra ef
einhver annar getur lært af því líka.“
Eyþór Arnalds
Var oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í
Árborg þegar hann
var tekinn fyrir
ölvunarakstur árið
2006.
Höskuldur
Þórhallsson
Fékk sér rauðvín
og settist undir
stýri. Hann var
stöðvaður af lög-
reglu og sviptur
ökuréttindum.
Mynd Sigtryggur Ari
Björgvin g.
Sigurðsson
Fyrrverandi
viðskiptaráðherr-
ann var rekinn
sem sveitarstjóri
Ásahrepps vegna
meints fjárdráttar.
Dómgreindar-
brestur vegna
áfengisneyslu sagði
Björgvin sem hélt
síðan í meðferð.
Mynd róBErt rEyniSSon
Þráinn Bertelsson Eftir að
þingmaðurinn féll í Færeyjum
skrifaði hann bók um lífs-
reynsluna. Mynd Sigtryggur Ari
Sigurður Kári Kristjánsson
Var nýkjörinn þingmaður þegar
hann var sviptur ökuréttindum
eftir að hafa verið tekinn fyrir
ölvunarakstur árið 2003.