Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Page 29
Umræða 29Helgarblað 22.–26. maí 2015
Það eru hrikaleg
vonbrigði að falla
Hvurslags skrípa-
leikur er þetta?“
Ég er ekki að hylma yfir neitt
Helgi Vilhjálmsson, eigandi KFC, er harðorður í garð verkalýðsforystunnar. – DVVilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fullyrti að Ásmundur Einar hefði ekki ælt í flugi WOW air. – DV
Myndin Á Þúfu Ferðalangar kynna sér útilistaverk Ólafar Nordal, Þúfu, sem staðsett er við Norðurslóð, yst á Granda. mynd sigtryggur ari
Kastljósið og rangfærslurnar
Í
Kastljósi 9. apríl síðastliðinn
mættu Ragnheiður Haraldsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags Ís-
lands, Kristján Oddsson , kven-
sjúkdómalæknir og yfirlæknir
Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins,
ásamt forsvarsmanni Bláa naglans,
Jóhannesi Valgeirssyni. Umræðan
snerist um EZ Detect-heimaprófið
til leitar að ósýnilegu blóði í hægð-
um og framtaki Bláa naglans við að
dreifa prófinu til þeirra sem verða
fimmtugir á þessu ári.
Fullyrðingar yfirlæknisins
Í þættinum kom Kristján Oddsson
enn með nýjar rangfærslur um EZ
Detect-prófið þegar hann sagði að
,,þetta próf er hvergi notað, til að við
vitum, í heiminum vegna þess að
næmið er lélegt“. EZ Detect frá fyrir-
tækinu Biomerica í Bandaríkjunum
hefur verið á markaði í 30 ár. Að
auki er prófinu dreift og
það selt til 47 landa í
öllum heimsálfum.
Og áfram segir yfir-
læknirinn um prófið:
„Það greinir ekki sjúk-
dóminn, þú getur verið
með sjúkdóminn, en það
greinir það ekki, þú heldur
að allt sé í lagi, þannig að
það skapar falskt öryggi“.
Almenningur veit
betur. Próf til að leita að
blóði í hægðum greina ekki
krabbamein í ristli frekar en
sjálfsskoðun brjósta greinir
brjóstakrabbamein. EZ Detect
er einfalt heimapróf fyrir ósýnilegu
blóði í hægðum, blóði, sem get-
ur verið þar af mörgum ástæðum.
Þegar blóð finnst, þarf að fylgja því
eftir. Í leiðbeiningum, sem fylgja
EZ Detect, er útskýrt, hvenær leita
á til læknis, og einnig er bent þar á
margvísleg atriði til að draga úr á
fölsku öryggi.
Í Kastljósi mátti síðan hlusta
á forstjórann Ragnheiði Haralds-
dóttur halda því fram að þau hjá
Krabbameinsfé-
laginu hefðu aldrei
beint spjótum sín-
um að Jóhannesi
Valgeirssyni
persónulega, sem
þau gerðu vissu-
lega, þó óbeint
væri, ef það
hljómar betur.
Í þættin-
um Reykjavík
síðdegis þann
25. mars síðast-
liðinn gefur Ragnheiður í
skyn að EZ Detect-prófið sé verra en
ekkert próf.
Kristján Oddsson segir í grein
sinni í DV 12. febrúar: ,,Leitarstöðin
vill nota tækifærið til að hvetja Bláa
naglann til að hætta að senda fólki
EZ Detect-prófið, vegna þess að það
veitir falskt öryggi og getur skaðað
verðugt málefni“. Þetta er aðeins fátt
af mörgu, sem komið hefur fram frá
Krabbameinsfélaginu til grafa undan
framtaki Jóhannesar Valgeirs sonar,
Bláa naglanum.
aftur leiðrétt
Í Kastljós-þættinum heldur yfirlæknir-
inn því enn fram að prófið sé ekki
viðurkennt. Þetta er ekki rétt. EZ De-
tect™ er CE (Conformité Européenne)
skráð í Evrópu og er FDA (Food
and Drug Administration) og CLIA
(Clinical Labaratory Improvement
Amendments) viðurkennt (approved,
waived) í Bandaríkjunum, þvert á full-
yrðingar hans.
Prófið er einnig viðurkennt af
Lyfja stofnun hér á landi, (Skv. lögum
um lækningatæki, nr. 16/2001, og
reglugerð um lækningatæki til sjúk-
dómsgreiningar í glasi, nr. 936/2011.
Íslensku notkunarleiðbeiningarnar
uppfylla kröfur 6. gr. laga um lækn-
ingatæki um notkunarleiðbeiningar).
Þá eru þrjú próf í pakkanum sem
Blái naglinn sendir fólki, en ekki eitt
eins og hann heldur fram.
Lokaorð
Rangfærslur Kristjáns Oddssonar
um EZ Detcet eru orðnar fleiri en al-
menningur ætti að sætta sig við. Með
þeim hefur hann ekki aðeins reynt að
skaða framtak Bláa naglans, heldur
hefur hann einnig með rangfærslum
sínum skaðað orðspor Krabbameins-
félagsins. Margir nota EZ Detect-próf-
ið hér á landi, og hefur það fengist
í lyfjaverslunum síðastliðin 5 ár. EZ
Detect-prófið getur bjargað manns-
lífum eins og komið hefur fram í fyrri
greinum mínum til Kristjáns Odds-
sonar. Allir geta gert prófið heima hjá
sér og í leiðbeiningum eru takmark-
anir prófsins áréttaðar. Meira þarf ekki
að segja. Dæmi hver fyrir sig. n
„Með þeim hefur
hann ekki aðeins
reynt að skaða framtak
Bláa naglans, heldur hef-
ur hann einnig með rang-
færslum sínum skaðað
orðspor Krabbameins-
félagsins.
Bergljót Halldórsdóttir
lífeindafræðingur
Kjallari
Mest lesið
á DV.is
1 Blæs á sögusagnir um ölvun: „Ég ældi út um
allt“ Ásmundur Einar Daðason,
þingmaður Framsóknarflokksins, blæs á
sögusagnir þess efnis að hann hafi verið
ölvaður um borð í flugvél Wow air á leið
til Washington með utanríkismálanefnd
Alþingis og segist einfaldlega hafa verið
veikur í maganum.
Lesið: 37.226
2 Flugfreyja segir þingmanninn hafa verið
ölvaðan „Þetta var eitthvað það
vandræðalegasta sem ég hef lent í
í starfinu þótt maður hafi upplifað
ýmislegt skrautlegt. Mjög leiðinlegt
að farþegar okkar hafi þurft að upplifa
þetta og það frá þingmanni sem maður
hefði talið að væri ábyrgur fulltrúi okkar
Íslendinga,” hefur Fréttanetið eftir flug-
freyju Wow air. Flugfélagið hefur hafnað
því að áhafnarmeðlimur hafi brotið
trúnað og segir ekkert hæft í fréttinni.
Lesið: 34.290
3 Yfir 20 starfsmenn deila með sér 3.400
milljónum í bónusgreiðslur
Íslenska eignaumsýslufélagið ALMC,
áður Straumur-Burðaráss fjárfestinga-
banki, hefur sett til hliðar tæplega 23
milljónir evra, jafnvirði um 3,4 milljarða
íslenskra króna, sem félagið hyggst
greiða í bónusa til lykilstarfsmanna og
stjórnarmanna.
Lesið: 30.706
4 Uppgjör í Fellunum: Handrukkun um há
bjartan dag Alvarleg líkamsárás
átti sér stað í Iðufelli í Breiðholti í vik-
unni. Þrír menn réðust þá á einn mann
og veittu honum alvarlega áverka með-
al annars með stálröri. Íbúi í hverfinu
varð vitni að atvikinu frá svölunum að
íbúð sinni og hefur lögreglan staðfest
frásögn viðkomandi.
Lesið: 30.282
5 „Við erum svo hamingjusöm“ Sigrún Eva
Rúnarsdóttir og Mummi Týr Þórarinsson
í Götusmiðjunni gengu í hjónaband í
fallegri athöfn síðasta föstudag, eða
hinn 15.05. 2015, klukkan 15.15.
Lesið: 25.991
Björgvin g. sigurðsson sendi Sigmari góða kveðju á Facebook. – Facebook