Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 33
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Fólk Viðtal 33
„ég gleymdi
sársaukanum
á sviðinu“
upp á leiðinni. Svo er bransinn í dag
allt öðruvísi en hann var þá,“ segir
Jóhanna Guðrún og vísar í hnignun
plötufyrirtækjanna með auknu að-
gengi tónlistar á netinu. „Plötufyrir-
tækin skipta miklu minna máli í dag.
Maður gerir þetta bara sjálfur. Það er
eiginlega meira vit í dag að gefa út
eitt og eitt lag frekar en heila plötu.“
Ævintýri Jóhönnu Guðrúnar í
Ameríku gekk ekki upp, en hún vill
ekki meina að hún hafi orðið fyrir
vonbrigðum vegna þess. Hún sóttist
ekki eftir heimsfrægð og fyrir henni
snerist söngurinn um miklu meira
en það. „Það hefur aldrei verið að-
alatriðið í mínum huga. Aðalatriðið
er að ég geti lifað af því að vera tón-
listarmaður, sem ég hef getað, og er
rosalega þakklát fyrir það. Allt ann-
að er bara bónus. En miðað við að ég
er bara 24 ára hef ég náð mjög góð-
um árangri og fengið fullt af flottum
tækifærum. Ég get ekki kvartað yfir
neinu.“
Töfraaugnablik skiptir máli
Eitt tækifæranna fólst í því að taka
þátt í Eurovison fyrir Íslands hönd
árið 2009, þá aðeins 18 ára gömul.
Það var stærsta verkefnið sem hún
hafði staðið frammi fyrir í söngnum
á þeim tíma. Að syngja fyrir fram-
an 75 þúsund manns í tónleikahöll-
inni í Moskvu, þar sem keppnin var
haldin, og 180 milljónir manna á
sjónvarpsskjánum. Eurovision-veð-
bankar höfðu spáð laginu Is it true?
þokkalegu gengi í keppninni, en það
þótti þó ekki sigurstranglegt. Sjálf
reyndi hún að spá lítið í mögulegt
gengi lagsins og skoðaði ekki um-
fjöllun á netinu. En það kitlaði hana
þó að starfsmenn tónlistarhallarinn-
ar voru búnir að veðja á að Ísland
yrði í fyrsta sæti.
„Ég kúplaði mig svolítið út af
netinu og einbeitti mér bara að því
að vera í vinnunni, en það getur allt
gerst í þessari keppni, ég lærði það.
Árið sem ég keppti tóku til dæmis
nokkrir tónlistarmenn þátt sem voru
mjög þekktir í heimalöndum sínum
– stórum löndum – og nágranna-
löndin þekktu vel til þeirra, en þeim
gekk ekkert vel í keppninni. Ég sá
hvað það skipti litlu máli hver mað-
ur var. Við komum frá litla Íslandi og
vorum að gera þetta fyrir mjög lítinn
pening, enda enginn peningur til á
þessum tíma, og lentum í öðru sæti.
Það er allt hægt. Það fer bara eftir
því hver á töfraaugnablikið á úrslita-
kvöldinu.“
Hefur aldrei drukkið áfengi
Íslenski Eurovision-hópurinn var
úti í Moskvu í tvær vikur og Jó-
hanna Guðrún viðurkennir að það
hafi verið ansi strembið, enda stíf
dagskrá alla daga. Þó vissulega hafi
þetta verið mikil upplifun. „Þetta var
rosaleg keyrsla og ég var alveg búin
á því eftir þessar tvær vikur. En eftir
Ameríkuævintýrið var ég auðvitað
orðin vön pressu. Ég var vön því að
þurfa að standa mig og gera hlutina
vel. Það hafði undirbúið mig mikið
fyrir þessa keppni. Ég var líka með
frábært fólk með mér úti. En það er
engu að síður rosalegt álag að taka
þátt í svona keppni, ef maður ætlar
að gera það vel.“
Í tengslum við keppnina eru
mörg partí og mikið um skemmtana-
hald, enda er Eurovision- samfélagið
þekkt fyrir mikla gleði. Jóhanna
Guðrún tók hins vegar ekki þátt í
partístandinu. Hún einbeitti sér að
því sem skipti máli. „Ég reyndi alltaf
að kúpla mig út um leið og ég gat,
bara til að hvíla mig. Ég gerði allt
sem ég þurfti að gera, svo fór ég bara
að sofa. Ég hef aldrei drukkið áfengi
og var því ekki að því þarna úti, enda
hefði það ekki verið í boði fyrir mig.
En aðrir úr hópnum, sem höfðu ekki
sama hlutverk og ég, gátu farið á
Euro klúbbinn og djammað aðeins,
sem var geggjað fyrir þau. Söngvar-
inn má aldrei gera það.“
Tengsl mynduð yfir áfengi
Jóhanna Guðrún segist lítið hafa
spáð í það hvort það hái henni í
bransanum að drekka ekki, en hún
sé vissulega í minnihlutahópi hvað
þetta varðar. „Fólk myndar oft góð
tengsl og kynnist betur þegar það
fær sér bjór saman, þannig að ein-
hverju leyti háir það mér kannski.
Ég hef samt ekki ekki spáð mikið í
það og ætla mér ekki að gera það.
Ég tek yfirleitt ekki þátt í því að kíkja
á djammið eftir „gigg“ og missi af
þeim kafla. En við þær aðstæður eru
gjarnan mynduð tengsl. Karlmenn
gera það sérstaklega þannig. En það
er allt í góðu mín vegna og ég missi
þá bara af því,“ segir Jóhanna Guð-
rún hreinskilin. Hún segist einstöku
sinnum kíkja með, en endist yfir-
leitt ekki lengi. „Þegar fólk er komið
á aðra bylgjulengd og ég, þá kem ég
mér heim,“ bætir hún kímin við. Og
segist annars lítið spá í það hvernig
annað fólk notar áfengi.
Álag að vera barnastjarna
Jóhanna Guðrún þjáist af liðagigt og
hefur gert frá því að hún var átta ára.
Hún segir þá staðreynd líklega hafa
haft áhrif á ákvörðun sína að byrja
ekki að drekka áfengi, þó frekar
ómeðvituð áhrif en hitt. „Ég tók
bara þessa ákvörðun þegar ég var
yngri. Þegar vinkonur mínar voru
að byrja að drekka þá var ég bara í
Ameríku á plötusamningi. Ég var
undir mjög mikilli pressu miðað við
aldur og var upptekin af því sem ég
var að gera. Ég hafði ekki tíma til að
drekka.“ Aðspurð hvort hún telji að
hún hafi verið undir of miklu álagi,
jafn ung og raun bar vitni, svarar
hún neitandi – en hikandi þó. „Ég
réði alveg við pressuna. En eftir á að
hyggja þá var þetta líklega ekki heil-
brigð pressa fyrir krakka og ungling.
Það voru gerðar miklar kröfur til
mín miðað við aldur. En ég fékk fullt
af tækifærum. Það að fara út svona
ung hefur gert mér kleift að vera
skrefinu framar en margir aðrir sem
eru að byrja að koma sér á framfæri
í bransanum á mínum aldri. Það er
ákveðin blessun. Þetta hefur sína
kosti og galla.“
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Jó-
hanna Guðrún þroskað viðhorf til
lífsins. Þótt plötusamningurinn hafi
ekki skilað henni heimsfrægð þá
öðlaðist hún dýrmæta reynslu sem
nýtist henni vel í öllu sem hún gerir.
Barnastjarnan hefur þroskast í unga
og jarðbundna konu. Það er óhætt
að segja að hún hafi farið vel með
hæfileikana sem hún er gædd.
Jóhanna Guðrún segir það hafa
skipt miklu máli hve vel var haldið
utan um hana í Ameríkuævintýr-
inu. „Það var hugsað mjög vel um
mig. Foreldrar mínir voru vel inni í
því sem ég var að gera og pössuðu
að mér liði vel. Og bræður mínir
líka. Þau pössuðu öll að það væri
ekkert rugl í gangi og það skipti öllu
máli. Maður gerir þetta ekki einn,
sérstaklega ekki svona ungur. Ef ég
hefði átt foreldra sem hefðu lítið
spáð í það sem ég var að gera, þá
hefði þetta getað farið illa með mig.
Ég myndi ekki mæla með þessu fyrir
alla, en ég þoldi þetta, undir þessum
kringumstæðum.“
Mikið áreiti eftir Eurovision
Fyrsta plata Jóhönnu Guðrúnar var
mjög vinsæl hjá ungu kynslóðinni
og allir vissu hver þessi ljóshærða
stelpa með englaröddina var. Hún
viðurkennir að áreitið hafi verið
töluvert fyrst eftir að hún varð þekkt.
„Það var svolítið áreiti í skólanum
fyrst, en svo minnkaði það. Ég var
algjör frekja sjálf og lét aldrei vaða
yfir mig. Svo átti ég góðar vinkon-
ur og eldri bróðir minn í skólanum
fylgdist með mér án þess að ég vissi.
Ég held að ég hefði örugglega get-
að lent í einelti ef ég hefði verið lítil
í mér og farið að gráta, en ég sló frá
mér og krakkarnir sáu að það virk-
aði ekkert að atast í mér.“
Áreitið var líka töluvert úti á götu,
en það var langmest eftir að hún
kom heim úr Eurovision. Henni varð
eigin lega nóg um. „Það var erfitt að
fara út í búð eða í sund, það var eigin-
lega ekki hægt. Fólk kallaði á eftir mér
og var mjög upptekið af því hvað ég
var að gera. Ég lendi stundum ennþá
í þessu,“ viðurkennir hún. Aðspurð
segir hún fólk þó sjaldan vera með
leiðindi eða dónaskap. „Margir eru
einlægir, hafa fylgst með mér og fíla
tónlistina. En svo eru aðrir sem kalla
á eftir mér, sérstaklega unglingar, og
enn aðrir sem vilja bara spjalla.“
Jóhanna Guðrún segir það vissu-
lega hafa áhrif á einkalífið að vera
þekkt andlit og hún sé til dæmis
alltaf meðvituð um að vera vel til
fara þegar hún fer út úr húsi. „Ég
fer ekkert í Kringluna í jogginggall-
anum. Þá fer fólk strax að tala um
hvað ég sé drusluleg,“ segir hún og
breytir röddinni til að leggja áherslu
á hve kjánalegt það er engu að síður.
„ Maður er svolítið í áhættuhópi þegar
kemur að slúðri. Það er bara þannig
þegar maður er í þessum geira.“ Hún
hefur oft heyrt slúðrað um sig sjálfa og
fólk hefur reynt að þræta við vinkon-
ur hennar um eitthvað sem hún
„Það
hefði
samt verið
hægt að
vinna betur úr
árangrinum
Kom á óvart Jóhanna
Guðrún bjóst ekki við að ná
öðru sæti í Eurovision og
segir að eflaust hefði mátt
vinna betur úr árangrinum
ef hún hefði verið betur
undirbúin. Mynd SigTryggur Ari