Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Blaðsíða 36
Helgarblað 22.–26. maí 201536 Fólk Viðtal
É
g held að þetta hafi alltaf átt
að fara svona og að við höfum
þurft að bíða svona lengi eftir
honum því það hafi alltaf átt að
vera hann sem átti að koma til
okkar. Auðvitað hefðum við verið til í
að þetta tæki styttri tíma en þetta var
allt þess virði og ég vildi ekki breyta
neinu. Eftir allt erfiðið erum við að
uppskera núna,“ segir tónlistarmað-
urinn og -kennarinn Heimir Ingi-
marsson, en hann og eiginkona hans,
Anna Rósa Friðriksdóttir, ættleiddu
lítinn dreng frá Kína á dögunum. Sá
litli, Breki Ingimar Chang Heimis-
son, er tveggja ára en litla fjölskyld-
an sameinaðist fyrir rúmum tveimur
vikum.
Hraustur mömmustrákur
Hjónin höfðu lengi reynt að eignast
barn en án árangurs. „Þetta hafði tek-
ið dágóðan tíma og margar meðferð-
ir. Við þoldum einfaldlega ekki meira
og ákváðum að hefja ættleiðingarferli
og vorum strax mjög sátt við það. Það
ferli hefur styrkt okkur sem hjón og
við höfum kynnst mörgu yndislegu
fólki. Allt í einu er maður kominn
inn í góðan vinahóp,“ segir Heim-
ir en þau Anna Rósa héldu til Kína í
byrjun mánaðarins, rúmum tveim-
ur árum eftir að þau sóttu um ætt-
leiðingu. „Þann 11. mars fengum
við mynd af honum og það var al-
veg ólýsanleg tilfinning. Við vor-
um svo sátt og hamingjusöm með
hann og okkur var í rauninni alveg
sama hvort eitthvað væri að en hann
fæddist með hjartagalla. Gleðin varð
svo enn meiri þegar barnalæknirinn
sagði að hann myndi ná sér að fullu.
Þetta hefur gengið svo rosalega vel að
það er eiginlega lyginni líkast. Hann
fékk frábæra læknisskoðun og er
hress og góður og tengdist mömmu
sinni strax gríðarlega vel. Þetta er
mömmustrákur – þótt við eigum líka
okkar góðu stundir saman.“
Fannst úti á götu
Heimir segir ólýsanlega tilfinningu
að fá barnið sitt í fangið eftir svo langa
bið. „Ég veit ekki hvernig ég ætti að
lýsa því. Maður upplifði margs kon-
ar tilfinningar, bæði gleði og svo að
maður vorkenndi honum. Hann hef-
ur upplifað ansi margt og þótt við
værum í hamingjulosti vissum við
ekkert hvað hann var að hugsa. Hann
tók okkur samt ótrúlega vel,“ segir
Heimir og útskýrir að Breki hafi verið
mánaðar gamall þegar hann fannst
úti á götu og að hann hafi dvalið á
barnaheimili fyrstu mánuðina en
síðar hjá fósturfjölskyldu. „Hann hef-
ur greinilega fengið mikla örvun og
góða umönnun á fósturheimilinu því
hann hefur verið ótrúlega fljótur að
aðlagast og er þroskaður miðað við
aldur. Hann vill til dæmis alls ekki
láta mata sig heldur borða sjálfur og
ég er alveg viss um að hann verði
kokkur eða bakari. Þetta er ákveðinn,
ungur drengur sem veit nákvæmlega
hvað hann vill.“
Tilfinningalegur rússíbani
Heimir segir ófrjósemina ekki mik-
ið feimnismál hjá þeim hjónum þótt
vissulega sé málefnið afar persónu-
legt. „Auðvitað var gríðarlegt áfall
að komast að því að við gætum
ekki eignast börn. Þetta hefur verið
svakalegur rússíbani í mörg ár. Það
hefur hins vegar hjálpað okkur að
tala við fólk sem gengur í gegnum
svipað ferli. Auðvitað hugsaði maður
stundum af hverju þessi og hinn væri
að eignast fullt af börnum og manni
fannst við frekar eiga það skilið. En
það þýðir ekkert að fara þá braut,
það er ekkert í boði. Maður verður
einfaldlega að einblína á markmið-
ið. Mér tókst að samgleðjast fjöl-
skyldu og vinum þegar þau eignuð-
ust börn þótt tilhugsunin hafi alltaf
verið hvað það væri nú gaman ef
þetta tækist hjá okkur. Og hvað það
verður gaman þegar þetta gerist. Það
var alltaf peppið, að muna að þetta
Tónlistarmanninn Heimi Ingimarsson og eiginkonu hans hafði lengi
dreymt um að eignast barn. Sá draumur rættist fyrir tveimur vikum þegar hjónin
ættleiddu tveggja ára dreng, Breka Ingimar Chang. Indíana Ása Hreinsdóttir
ræddi við Heimi um barnleysið, ættleiðingarferlið, tónlistina, trúna á Guð og
síðast en ekki síst soninn sem þau hjónin biðu svo lengi eftir.
„Ég vildi ekki
breyta neinu“
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is